Main | apríl 2007 »

mars 2007 Archives

mars 24, 2007

Hello

internet.gif Já maður er mættur aftur eftir hrakfarirnar. Hrollur.com sennilega alveg týndur, leiðinlegt að missa allar myndirnar og allt bloggið yfir síðustu 3 árin. Maður hefði sennilega átt að taka afrit af þessu einhverntímann hmmmm. Á nú reyndar allar myndirnar í tölvunni hjá mér, þannig að það má bjarga einhverju. En ástæðan fyrir því að þetta datt út er eitthvað í áttina að síðan var vistuð í USA á netþjóni sem einn fyrrverandi vinnufélagi minn var með, Einhverra hluta vegna var hann tekinn niður og vandræði að fá hann upp aftur. Hrollurinn er alveg til, bara spurning hvar hann sé staddur. Til þess að svona gerist ekki aftur þá er ég núna að vista hrollur.net sjálfur á eigin server, sem ég er búinn að eyða alveg hellings tíma við að setja upp PHP, CGI, MySQL, Perl og IIS til þess að geta haft svona "gagnvirkar" síður einsog blogg og myndaalbúm, og í nótt fór þetta loks að virka. Veit samt ekki hversu sprækur hann verður þar sem vélin er gömul og internet tengingin bara venjuleg ADSL, en það verður tekið til prufu. Svo þarf maður að fá nýtt look á þetta líka, það var nú kominn tími til, en þangað til verður þetta rauða þema bara í gangi :)

Í öðrum fréttum þá fór ég síðustu helgi á árshátíð Árdegis, það er móðurfyrirtæki BT, Skífunnar, Next, Noa Noa og sony center, þar fylltum við alveg heilt hótel í hveragerði. Við hörðustu fórum á föstudeginum og vorum 2 nætur. Fyrra kvöldið vorum við bara í herbergispartýi og tókum svo leigara í pakkhúsið á selfossi, vissum ekki um neitt annað sem var opið. Þetta var mjög spes, minnti óneitanlega á Dalvík einhvernveginn. En þar var einhver "local" hljómsveit að spila og rúsínan í pylsuendanum var þegar úngfrú suðurnes sem var kosin um svipað leiti kom uppá svið og tók lagið með hljómsveitinni, ég man ekki alveg hvaða lag/lög hún tók, en hún átti allavega fölskustu tóna sem ég hef heyrt í langann tíma :) , en lokkaði samt vel, má eiga það greyið. Svo á laugardeginum var svaka dagskrá, leikir og svona, var helvíti gamanl. Um kvöldið var svo matur og skemmtiatriði, sem lauk svo með balli. En aftur þá voru harðnaglarnir djammandi, og hótelstarfsfólkið náði einhvernveginn að smala okkur í lobbíið þar sem við fengum að djamma án þess að "trufla" neina. Svo daginn eftir tók við heimferðin, sem gegg bara frekar vel þrátt fyrir að hellisheiðinni hafi verið lokað vegna veðurs ... annars kalla ég þetta bara skotfæri, ekkert sem maður hefur ekki 100x lent í fyrir norðan. En þynnkan á sunnudeginum var alveg svakaleg, og ekkert mikið skárri á mánudeginum haha, held að ég hafi ekki verið orðinn góður fyrr en á fimmtudeginum. Það var svosem ekkert svakalegt drukið, maður var bara útkeyrður, gamli maðurinn.

En núna er komin ný helgi, og henni verður ekkert sleppt, enda búinn að sleppa helgi marsmánaðar, en það gerði ég strax í byrjun til að ljúka því af bara :) - áramótaheitið mitt var nefnilega að sleppa úr allavega einni helgí í hverjum mánuði, sem hefur gengi ágætlega bara. En í kvöld er ég að fara í útgáfupartý playstation3 hjá Senu sem er umboðið fyrir hana. Það verður haldið á Nasa í kvöld og býst ég við hörkustuði, það fylgir með miði á ballið með GusGus um kvöldið sem verður spennandi að sjá. Mér tókst að smala í fyrirpartý sem við ætlum að hafa bara á kaffistofunni góðu í BTSK, en verður að haga okkur, því búðin er opin á þeim tíma :)

Jæja, þá líkur fyrsta blogginu á hrolli.net @ M35 servernum góða, verður spennandi að sjá hvenar hann hrynur :)

mars 29, 2007

I have the power

orkuveitumerki.jpg ... einsog HE-MAN sagði einusinni. En hérna ætla ég að koma með smá gátu:
Hvað ætli gerist ef maður borgar ekki rafmagnsreikninginn sinn í 3 mánuði??
Jú, svarið er einfallt, "blessuð" rafveitan kemur bara heim til þín og lokar fyrir rafmagnið þitt :o

Ég lenti í því í síðustu viku að rafmagnið mitt var tekið :( - Veit ekki hvað mér þótti verst við þetta því það kemur svo margt til greina. Til að byrja með var heildarskuld mín við fyrirtækið rúmar 7.800 krónur og ég átti nógann pening, sennilega var það ástæðan, því ég hafði ekki farið í heimabankann ansi lengi og nenni ekki að opna allan þennan gluggapóst sem ég fær, reyndar opna ég hann bara ekki, ég sé alla reikningana í heimabankanum (hehe, of seint kannski stundum) og leiðist bara að opna þessa umslög, getur maður ekki fengið þetta í E-mail bara?? Okey, ég var í vinnuni þegar þetta gerðist og vildi svo einkennilega til að ég var loggaður inná serverinn minn þegar rafmagnið var tekið og fann þessvega strax að það var eitthvað að, ég prófaði að bíða smá og loks að pinga routerinn minn og ekkert svar, mér leist ekkert á blikuna, hugsaði að annaðhvort hafði flætt í kjallarann og allt slegið út, eða það hafi verið brotist inn og öllu stolið, þannig að ég dríf mig heim í kaffitímanum og sé umslag á hurðinni minni frá orkuveitunni og kem að öllu rafmagnslausu... jæja, það hafði þá bara verið lokað. Ég hringi strax og greiði þessa svaka skuld og bið um að það verði búið að opna þetta áður en ég kem heim. Nema hvað hringir ekki frekar leiðinlega konan frá orkuveitunni og segjir mér "Við tökum það mjög alvarlega þegar það er átt við lásana frá okkur, það var búið að brjóta þetta allt upp þegar ég kom og eiga við rafmagnstöfluna, mælirinn þinn fer ekki í gang og þú þarft að fá þér rafvirkja ef þú vilt fá rafmagnið á aftur" og einfaldlega kenndi mér um að hafa brotið þennan lás og tengt eitthvað framhjá, og það greinilega eftir að ég greiddi skuldina, því það leið það lítill tími þarna á milli. Og ég var eitthvað að reyna afsaka mig í símanum að ég hefði ekki gert neitt og hún var bara "ummhumm, jájá, þetta hefur bara gerst að sjáfu sér" alveg með hútsímama attitúdi. Svo kem ég heim og byrja á því að kíkja á einu rafmagnstölfuna sem ég vissi um í stigaganginum, sem er svona 100 ára gömul með skrúfuðum einnota öryggjum sé ég að það sem gæti átt við mig var með brotnu öryggi sem var eitthvað búið að tengja frammhjá og sá líka reyndar einhverja svona lása sem höfðu verið sagaðir í sundur. Það voru engin öryggi þannig að ég þurfti að drífa mig út til að kaupa ný. Klukan var þá orðin 19:05 og byrja ég á að fara í Bykó og það var lokað, fer næst í Húsasmiðjuna í grafarholti, lokuð og fer því næst á bensínstöð að leita af þessum öryggjum og þeir bara "uhh, nei við vorum með svona 1968 en ekki í dag", og bentu mér á húsamiðjuna niður á granda, þannig að ég keyri þangað og kaupi pakka af svona öryggjum og skelli í blessaða töfluna og EKKERT! Skil ekkert í þessu og skrúfa töfluna í sundur byrja að mæla hvar rafmagnið stoppi en þar virðist allt vera í lagi. Þvínæst banka ég hjá nágrönnunum og spyr þá ráða, þá kemst ég að því að það vissu bara allir í blokkinni um að það hafi verið lokað rafmagnið mitt, mjög gaman, því að rafveitan hafði bara látið hleypa sér inn til að gera þetta og tekið rafmagnið af nokkrum íbúðum á undan mér og sett allt á hvolf þarna í husinu. Formaður húsfélagsins kemur og skoðar þetta og virtist ekkert kunna heldur, þannig að ég fer bara í kompuna mína og sit í myrkrinu með öll tækin mín öll rafmagnslaus :( og hugsa að þetta gangi ekki svona, kolniðamyrkur og ekkert að gera. Hringi þvínæst í neyðarsíma orkuveitunnar og segju þeim að þetta sé bara ekki í lagi, þau tóku rafmagnið af mér í dag, ég hefði borgað minn reikning en það væri ekkert rafmagn og ég vildi fá það á STRAX! Í símanum var sama leiðindargellan sem kenndi mér um þetta og um leið tilkynnti að þetta væri ekki á ábyrgð orkuveitunnar, en eftir smá rökræðslu fæ ég hana til að hringja í þann sem lokaði á mig til að kanna hvað í ósköpunum hafi verið gert. Svo hringir hún aftur "uhh, ég var að heyra í lokunarmanninum og ég er að koma og kíkja á þetta". Svo mætir hún og opnar dyr yfir í næsta stigagang þar sem er þessi nýja fína stóra rafmagnstafla, er þar ekki á einum rofanum innsigli sem hún klippir af og setur rafmagnið mitt á aftur :/ . Þá hafði hún farið í vitlausa töflu einsog ég til að setja rafmagnið á aftur, þar sem einhverjir gamlir lásar síðan 1979 lágu, sem hún kenndi mér um að hafa brotið. En hún segir svo "uhh, sorrý, ég hef bara farið í vitlausa töflu" og ég var bara, já okey, magnað. Núna var klukkan orðin 22:30 og hafði ég eytt öllu kvöldinu, hellings bensíni, 500 kalli í öryggi og slatta af niðurlægingu til að reyna fá blessað rafmagnið á aftur. En hvað er samt málið, afhverju þarf allt að verða að svona stórmáli hjá mér. Og á maður bara að taka svona þeigjandi og hljóðalaust? Ég var meiraðsegja búinn að hringja í leigusalann og spurja hann útí þetta, hvort það væri eitthvað að rafmagninu, þannig að það vissu bara orðið allir um mína ógreiddu rafmagnsreikninga, hann skelfur örugglega á beinunum með það hvort ég hafi yfirleitt efni á leigunni ef ég get ekki borgað rafmagnið mitt. Og hvað getur maður gert ef maður er ósáttur?? Fengið sér díselrafstöð?? Eða lítið kjarnaorkuver í garðinn?? Já, svo þarf ég að greiða 1800 krónur í opnunargjald. Ég þarf bara að ákveða hvort ég eigi að gera allt brjálað þarna á orkuveitunni, eða hvort þetta sé bara mér að kenna og ég eigi bara að vera sáttir við að vera með rafmagn. Ég er viss um að þau sitja núna í fína matsalnum í orkuveituhúsinu með þjónana og kokkana að hlægja að þessum rafmagnslausa í stóragerðinu sem vissi ekki einusinni um rafmagnstöfluna sína haha.

About mars 2007

This page contains all entries posted to hrollur.net in mars 2007. They are listed from oldest to newest.

apríl 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34