Já maður er mættur aftur eftir hrakfarirnar. Hrollur.com sennilega alveg týndur, leiðinlegt að missa allar myndirnar og allt bloggið yfir síðustu 3 árin. Maður hefði sennilega átt að taka afrit af þessu einhverntímann hmmmm. Á nú reyndar allar myndirnar í tölvunni hjá mér, þannig að það má bjarga einhverju. En ástæðan fyrir því að þetta datt út er eitthvað í áttina að síðan var vistuð í USA á netþjóni sem einn fyrrverandi vinnufélagi minn var með, Einhverra hluta vegna var hann tekinn niður og vandræði að fá hann upp aftur. Hrollurinn er alveg til, bara spurning hvar hann sé staddur. Til þess að svona gerist ekki aftur þá er ég núna að vista hrollur.net sjálfur á eigin server, sem ég er búinn að eyða alveg hellings tíma við að setja upp PHP, CGI, MySQL, Perl og IIS til þess að geta haft svona "gagnvirkar" síður einsog blogg og myndaalbúm, og í nótt fór þetta loks að virka. Veit samt ekki hversu sprækur hann verður þar sem vélin er gömul og internet tengingin bara venjuleg ADSL, en það verður tekið til prufu. Svo þarf maður að fá nýtt look á þetta líka, það var nú kominn tími til, en þangað til verður þetta rauða þema bara í gangi :)
Í öðrum fréttum þá fór ég síðustu helgi á árshátíð Árdegis, það er móðurfyrirtæki BT, Skífunnar, Next, Noa Noa og sony center, þar fylltum við alveg heilt hótel í hveragerði. Við hörðustu fórum á föstudeginum og vorum 2 nætur. Fyrra kvöldið vorum við bara í herbergispartýi og tókum svo leigara í pakkhúsið á selfossi, vissum ekki um neitt annað sem var opið. Þetta var mjög spes, minnti óneitanlega á Dalvík einhvernveginn. En þar var einhver "local" hljómsveit að spila og rúsínan í pylsuendanum var þegar úngfrú suðurnes sem var kosin um svipað leiti kom uppá svið og tók lagið með hljómsveitinni, ég man ekki alveg hvaða lag/lög hún tók, en hún átti allavega fölskustu tóna sem ég hef heyrt í langann tíma :) , en lokkaði samt vel, má eiga það greyið. Svo á laugardeginum var svaka dagskrá, leikir og svona, var helvíti gamanl. Um kvöldið var svo matur og skemmtiatriði, sem lauk svo með balli. En aftur þá voru harðnaglarnir djammandi, og hótelstarfsfólkið náði einhvernveginn að smala okkur í lobbíið þar sem við fengum að djamma án þess að "trufla" neina. Svo daginn eftir tók við heimferðin, sem gegg bara frekar vel þrátt fyrir að hellisheiðinni hafi verið lokað vegna veðurs ... annars kalla ég þetta bara skotfæri, ekkert sem maður hefur ekki 100x lent í fyrir norðan. En þynnkan á sunnudeginum var alveg svakaleg, og ekkert mikið skárri á mánudeginum haha, held að ég hafi ekki verið orðinn góður fyrr en á fimmtudeginum. Það var svosem ekkert svakalegt drukið, maður var bara útkeyrður, gamli maðurinn.
En núna er komin ný helgi, og henni verður ekkert sleppt, enda búinn að sleppa helgi marsmánaðar, en það gerði ég strax í byrjun til að ljúka því af bara :) - áramótaheitið mitt var nefnilega að sleppa úr allavega einni helgí í hverjum mánuði, sem hefur gengi ágætlega bara. En í kvöld er ég að fara í útgáfupartý playstation3 hjá Senu sem er umboðið fyrir hana. Það verður haldið á Nasa í kvöld og býst ég við hörkustuði, það fylgir með miði á ballið með GusGus um kvöldið sem verður spennandi að sjá. Mér tókst að smala í fyrirpartý sem við ætlum að hafa bara á kaffistofunni góðu í BTSK, en verður að haga okkur, því búðin er opin á þeim tíma :)
Jæja, þá líkur fyrsta blogginu á hrolli.net @ M35 servernum góða, verður spennandi að sjá hvenar hann hrynur :)
Comments (5)
til hamingju með nýju síðuna. mér líkar bara vel við þetta rauða þema.
Posted by JOI G | 24. mars 2007 kl 17:44
Heyrðu góði... hvaða skot er þetta á Dalvík.. hvað meinarðu eiginlega með þessu....
Skamm - skamm... :P
Posted by Kolla "pilla" | 25. mars 2007 kl 14:59
Vá...hrollur.net...Þú þarft eiginlega að auglýsa þessa breytingu á hrollssíðunni. Ég þurfti alveg að googla þetta til að finna síðuna.
Posted by Ernir | 26. mars 2007 kl 15:55
Til lukku með síðuna (loksins!) En var þetta ekki ungfrú suðurland en ekki nes?
Posted by Siggeir | 26. mars 2007 kl 23:25
Jamm, ég er að bíða eftir DNS breytingu á "hrollur.com" til að hann vísi hingað.
Jú suðurland var það sennilega, land eða nes, er það ekki það sama? :)
Haha, ætlaði ekki að saurga nafn Dalvíkur hérna, þetta var samt svona sami fílingurinn.
Já, jói, rauða þemað er cool :)
Posted by Almar | 27. mars 2007 kl 02:23