« Páskarnir | Main | Sunnudagshugvekjan »

Góð helgi

tv.bmp Já, maður ætlaði nú aldeilis að sleppa úr helgi, en annað kom nú á daginn :) - Það var svona árshátíð hjá okkur í BTSK sem ég gat bara ekki hugsað mér að sleppa. Byrjuðum á Red chilli í pósthússtræti og fórum svo í risa rútu í skeifuna þar sem áfengið flæddi alveg eftir veggjunum. Var alveg helvíti gaman. Ég náði að halda mér ágætlega frá skotunum og snerti ekki á tekílainu, þannig að sunnudagurinn var alveg bærilegur. Ég náði svo miklum gæðatíma með sjónvarpinu mínu í gær samt [þynnkusunnudagur]. Ég horfði á 2 Lost þætti, 2 Jericho, 2 Boston Legal, 1 Soutpark 1 Grey´s og 1 Ugly Betty. Seinni helminginn á Back to the future III sem var í sjónvarpinu þegar ég vaknaði. Borðaði 1/3 af páskaegginu mínu, hlölla gærdagsinns. Og hafði það semsagt bara næs, fyrir utan hausverk daginn eftir.
Það var lítið fjör í bænum, en eitt merkilegt man ég eftir, ég var í leigubílaröðinni á sama tíma og Jógvan í xfactor haha, ég öfunda hann ekki á að vera svona þekktur á djamminu, hálf vorkenndi honum, því inní leigubílaskýlinu voru allir að bögga hann eitthvað, hann var líka ekkert sérlega kátur. Færeyski folinn, sýndist hann vera með kellingu uppá arminn, strax farinn að hösla úta xfactorinn :)
Í öðrum fréttum, þá á aðfaranótt mánudags opnaðist hurðin mín alltíeinu fram á stigagang :o .. ég var ekki farinn að sofa, var enn í tv world, en það bara svo skrítið þar sem það eru 2 læsingar á hurðinni, maður þarf að ýta húninumm alveg niður og snúa lykli til að opna hana, ég fæ hana engan veginn til að gera þetta aftur allavega. Það var pínu hvasst úti þannig að það blés smá í gegn hjá mér, eins skýringin sem mér dettur í hug er að ég hafi ekki lokað þegar ég var að koma heim af djamminu, heldur bara hallað hurðinni og hún hafi tollað þannig útaf gegnumblæstrinum?? Eða the booogie man :) En þetta var mjög spúkí, og þar sem ég bý bara í stúdíóíbúð þá er ég allavega feginn að það var ekki alveg galopið fram á stigagang allan sunnudaginn eða eitthvað á meðan ég var sofandi haha.
En ég segi það og skrifa hér, næsta helgi er ekki djammhelgi, og ekki sumardagurinn fyrsti heldur ... þá er bara spurning um að standa við það!

Comments (4)


karen lind:

hehe það eru líka fáir sem djamma á sumardaginn fyrsta.....frekar daginn fyrir ....sem sagt á morgun ..
svo þú ert ekki að svíkja neinn ef þú fer þá ;)

en ég held að Jógvan þurfi engann X factor til að hösla sko ;)


Magga:

Hehe nákvæmlega Karen, hann þarf sko engan x factor... hehe:)

Hehe, já djamm segirru, já maður getur stundum misst sig.. láttu mig þekkja það!:)


birkir:

á þá ekki að koma sunnudags blog um hvort þú hafir staðið við þetta?


almar:

Jú, ekki smurning :)

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on apríl 16, 2007 8:24 EH.

The previous post in this blog was Páskarnir.

The next post in this blog is Sunnudagshugvekjan.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34