« I have the power | Main | Góð helgi »

Páskarnir

greekhe.jpg

Jæja, þá fara blessaðir páskarnir að detta inn með allri sinni gleði :) Ég er svoltið hrifinn af páskunum því það eru margir góðir frídagar þarna einsog skírdagur, föstudagurinn mjööög langi og annar í páskum, allt góðir dagar með engri vinnuskyldu. Einsog alltaf er maður alveg ósjálfbjarga við að koma sér norður. Var búinn að ákveða að fara á Nissa, til að geta líka haft bíl fyrir norðan alveg þegar ég vildi. Lét meiraðsegja skipta um olíu en það hef ég ekki gert síðan 2004. En þá er eitthvað páskahret á leiðinni og ég bara get ekki hugsað mér að láta umfelga og setja vetrardekkin undir svona 5 mín í sumar, bara til að skipta aftur þegar ég kem suður. Þannig að nissi fær bara frí líka um páskana.

Maður er búinn að senda á bílaleigurnar fyrirspurnir um að ferja bíla á milli, og svo er maður búinn að heyra af nokkrum sem mögulega fara, þarf að heyra betur í því liði, þannig að þetta hlýtur að hafast, ef ekki þá verður eflaust stuð í kompunni við stóragerði.

Svo er ball með silvíu nótt á nasa ásamt trabant annaðkvöld (miðvd. 4. apr) ég held að það gæti verið athyglisvert?? En maður kannski sleppir því samt, enda get ég ekki ímyndað mér neinn sem væri til í að koma þangað haha, afhverju á maður ekki tvíburabróðir? :)

Comments (6)


karen lind:

ertu kominn norður gæskurinn


Almar:

Jájájá, mar er löngu mættur í sveitina. Sennilega Paparnir annaðkvöld, á ekki að skella sér?


karen lind:

á papana hvar eru þeir......en jú örugglega fer ég eitthvað sko ég er búin að djamma ´3 kvöld núna á einni viku.......og ég verð ekki einusinni þunn heheh .......þvílíka orkan og úthaldið.........


Magga:

Ákvað bara að kvitta fyrir innlitið, þar sem þú segðir mér að "endilega" gera það:) Gaman að sjá þig í gær. Hafðu það gott!


karen lind:

já gamana að sjá þig í gær þó að það hafi nú ekki verið mikið hehe það vsr alveg stappað á kaffi Ak maður hitti bara alla ;)


Jóka:

Hææ og þakka þér fyrir seinast.. búin að dást mikið af manninum sem nennti að sitja einn með okkur og hlusta á bullið í okkur.."Klöppum fyrir manninum"...hehe.. svo vil ég líka koma á framfæri miklu þakklæti fyrir þessa mynd þar sem ég er að gera ..jaaa ég veit ei hvað.. láttu sjá þig oftar á norðulandinu ;) bæbæ
kv´: Jóka

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on apríl 3, 2007 10:32 EH.

The previous post in this blog was I have the power.

The next post in this blog is Góð helgi.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34