Já, spurning um að taka blogg á þetta, enda margt gerst á síðustu dögum. Birkir og Anný eignuðust litla snúllu, hún heitir Stúlka Birkisdóttir, svoltið skrítið nafn en venst ótrúlega vel :) .. pravda brann til kaldra kola, mig hefur aldrei langað eins mikið á pravda og einmitt núna, þegar það er ekki hægt. Horfðum á þetta gerast í vinnuni á stórum skjám, bæði með rúv og stöð2 í gangi í einu, þannig að maður hafði 2 sjónarhorn.. mun betra en að vera á staðnum, ég veit það því ég fór og skoðaði herlegheitin á meðan það logaði enn. Varð mjög hissa að sjá svo þarna inn í fréttunum, en það var tekið viðtal við eigandann daginn eftir inná staðnum, og aðalbarinn var bara stráheill, það virtist ekki einusinni vera sót þar, glösin og flöskurnar hreinar, kertin hvít og óbrunnin, meiraðsegja í stiganum þar sem er opið upp, þar var bara rusl, en ekkert sót og einmitt kerti óbrunnin og hrein þar. Ég held að það hafi bara logað í þakinu, en það slapp nú ekki einsvel þarna hinn barinn vinstra megin (inná pravda). Mér var svosem sama um þessi hús, en er á algjörum bömmar að það sé búið að fækka um einn skemmtistað í borginni :) ... sem einmitt minnir á það að ég sleppti úr helgi!!! JEI, þessi á sko skilið Thule... næstu helgi :) En það var löngu ákveðið eftir erfiða páska, og erfiða helgi þar á eftir að það væri kominn tími á pásu, sem ég lét verða af. Mér leiddist nú samt ekki eina mínútu, því ég dundaði mér við að skipta um harða diskinn sem hrollurinn er vistaður á, setti einn mikið stærri og hraðvirkari í staðinn, og á eigin IDE stýringu svo hann virki alveg á fullum hraða. Það tók einhverja 15 klukutíma að fá þetta til að virka einsog það á að gera, tölvan sem hýsir hrollinn er frekar gömul og var ekki sátt við þennan stóra disk, þannig að ég setti í hana diskastýringu sem hún var nú ekki par hrifin af heldur, en þetta hafðist allt. Smá vesen líka að flytja stýrikerfið yfir af litla disknum á þann stóra, því ég hafði ekki gert slíkt áður, en lítið mál í dag. Síðan ætti því að vera mun sprækari núna en hún var, eða svona á meðan ég er ekki að downloada neinu á meðan sem étur upp bandvíddina :/ En í dag tók ég nú samt þynnkudag, þó svo ég hafi ekki verið þunnur þá eyddi ég honum samt yfir sjónvarpinu með Rizzo pizzu, sem eru b.t.w. mjööög góðar.. 100% eldbökun 100% metnaður haha.
En já, stúlka fæddist, pravda brann, ég sleppti úr helgi og hrollurin er kominn á nýtt drif. Viðburðarík vika, þótt ekki sé minna sagt.
Comments (4)
Hvenær í fjjjjjandanum ætlarðu að koma i heimsókn til mín!?!?!?!!? :)
Posted by Gunna | 25. apríl 2007 kl 22:36
Já, góð spurning... vonandi sem fyrst :)
Posted by almar | 1. maí 2007 kl 23:15
Almar, það er geggjað í Dublin, förum í sumar OK?
Hurru, hvað heitir nú litla snótin þeirra Annýjar og Birkis..... Mamma sagði mér að það ætti að skíra barnabarn hennar um helgina... ég hélt að kella væri orðin galin!!! ;)
Posted by freyja | 3. maí 2007 kl 22:08
hæ hæ :) stúlka birkisdóttir hehe við kannski látum hana heita því nafni... en hún verður skírð 13maí:) almar minn farðu nú að blogg það er svo gaman að lesa ruglið í þér kveðja anný
Posted by anný | 6. maí 2007 kl 12:12