« apríl 2007 | Main | júní 2007 »

maí 2007 Archives

maí 7, 2007

Happy Monday

pravda.jpg

Já, það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að það er mánudagur. Ég vaknaði sæll og glaður í morgun og labbaði í vinnuna, já labbaði. Einungis vegna þess að nissi var enn í partýi helgarinnar, ég fór nefnilega á djammið ;) ... loksins. Skrítið að þegar maður sleppir úr svona 2 helgum þá er maður mikið fljótari að ná þynnkuni úr sér, venjulega var maður hálf slappur á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum hehe, en núna var ég orðin sprækur á sunnudagskvöldinu bara. Ég er það sprækur núna að ég skipti um á rúmminu mínu, setti í vél, sópaði gólfið ooog þreif klósettið ... geri aðrir betur á mánudegi!
Svo er euró/kosninga djamm næstu helgi, en þá verður gaman, verst þykir mér hvað það er orðið bjart þegar maður er að fara heim, en þá er maður ekki alltaf uppá sitt besta, einsog núna um helgina þegar ég stóð einn með hlöllann minn að bíða eftir leigubíl í sólinni þá leið mér hálfasnalega, ég neita því ekki, spurning um að djamma bara á veturna :)
Ég skellti hér með smá mynd af pravda og link fyrir þá sem vilja skrifa undir, en þetta er beiðni um að það komi pottþétt skemmtistaður í svipaðri mynd þarna á sama stað, eða að pravda verði bara gert upp hehe, ég skrifaði nú ekki sjálfur enn, þetta er svona meira til gamans.

Bjargið Pravda, sýnið samhug ... nei djók :)

viðbætt: ég fékk sent þetta fína myndband að mér að dansa, kannski er þetta tekið á pravda, hver veit .... enjoy! :þ

maí 12, 2007

Stóra rúðuþurkumálið

wh_blade.gif Já, sá vægast sagt ógnvekjandi atburður átti sér stað í vikunni að rúðuþurku var stolið af nissaling, þar sem hann sat í sínu æðruleysi á annaðhvort planinu heima eða í vinnunni. Mjög leiðinlegt að þurfa að kaupa sér nýtt rúðuþurkulbað vegna einhverra stæla í einhverju liði, sem hefur þótt þetta fyndið í 25 sec og ég verð svo 30 mín að vinna fyrir nýju blaði ;( ... en maður hefur svosem gert eitthvað af sér sjálfur sem unglingur ... Karma kannski :) En nóttina áður dreymdi mig að nissi hefi verið rændur, eða brotist inní hann og öllu stolið, það var ekkert eftir nema boddýið, sætin og meiraðsegja bremsuklossarnir voru farnir, 30 mín eftir að ég vakna sé ég að blaðið vantaði. Ég viðurkenni það þó að það hafi getað vantað daginn áður, ég hafi séð það en ekki fattað og þessvegna dreymt þetta, en vill frekar telja að um berdreymi sé að ræða, enda mikið svalara þannig. Tímalínan er s.s. þannig að ég notaði rúðuþurkurnar á þriðjudag, veit ekki með miðvikudag og fimmtudag sá ég að aðra vantaði. Ég ætla í Europris, ég er viss um að þeir selja ofurgóðar þurkur á ofurgóðu verði hehe

En svo er það stóra Júróvisíón málið, mikið af stórum málum þessa dagana. Ég fylltist ekki neinu þjóðarstollti yfir þessu atriði okkar, fannst þeir afspyrnu hallhærislegir, þessir 4 gítarar og bassar hreyfði sig ekkert í takt og voru bara asnalegir. Enda hló ég mikið og dátt þegar ég heyrði þulinn á BBC lýsa laginu okkar, þeir eru með 2 svona þuli einsog Sigmar er hjá okkur, nema þessi eru svoltið kaldhæðin. Gellan sagði eftir lagið "rock and roll from Iceland ... and Eirikur the 80´s just called and they want ther leather jacket and hair back" euro.gif Ég horfði á þetta á RÚV en tók þetta spes upp til að heyra lýsinguna frá þeim, hún var líka fyndin í fyrra þegar þau voru að lýsa Silviu. Talandi um bretana, en í undanúrslitunum þeirra þegar þau voru að lesa upp sigurvegarann þá voru 2 kynnar að segja þetta svona samtímis og þeir sögðu stitthvort nafnið, það hefur eflaust þeytt upp smá eurovision fjaðrafoki. En já aftur að Eiríki, mér fanst hann líka svoltið svona "soar looser" í 10 fréttunum í gær, þegar hann var að segja þessi austantjaldslönd væru bara mafía og við ættum ekki að gefa þeim neitt atkvæði á laugardag, ekki eitt einasta! Það gerir okkur ekki mikið skárri. En ég legg til að við fáum Simon Cowell til að gera bara nýtt Euro handa okkur og ekki bjóða þeim með hehe ...

israel.gif Svo stóra Ísraelsmálið, það var annað við Euro sem mér þótti smellið, að Ísrael sem augljóslega er ekki í evrópu en fær að vera með, þar sem það er hluti af EBU (European Broadcasting Union) kom með afspyrnu ógeðslegaleiðinlegt lag. Og þjóðir einsog Egyptaland, Jórdanía, Maracco, Líbanon og fleiri góðir meiga vera með en vilja það ekki, því þeir vilja ekki sýna Ísrlaelska framlagið í sjónvarpi hjá sér, eitt árið þá klippti Líbanon á útsendinguna þegar Ísrael var og sýndi blóm í staðinn, svo í úrslitunum unnu Ísraelsmenn og þegar þeir sáu í hvað stefndi hættur þeir útsendingu og keppninni og sögðu svo í blöðunum að sá sem lenti í 2. sæti hafi unnið. En núna er skylda að sýna alla keppnina í hverju landi sem tekur þátt og í einhverjum löndum er þetta í stjórnarskránni að eigi skuli neitt Ísraelskt sjást í þeirra sjónvarpi - hehe, klikkað lið... Crazy Bastards.

Svo að lokum, stóra [hvað það er orðið bjart] málið, en ekki nóg með að það sé hryllingur að koma útaf skemmtistöðunum og bíða eftir leigubíl í sólinni, þá er ég farinn að vakna á vitlausum tímum líka á morgnanna, sun.gif ég veit að þetta er ekki fyrsta vorið mitt en ég man ekki eftir að hafa lent í þessu áður. Ég er farinn að vakna áður en klukkan hringir á morgnanna, og í morgun (laugardag) þá vaknaði ég klukkan 10 :o .. ég var alveg viss um að klukkan væri svona 4 og fór frammúr... fékk taugaáfall þegar ég sá að hún var 10 og ég bara útsofinn og góður, þetta er kannski aldurinn að bellast yfir mig :) .. ætli maður neyðist ekki til að vaska upp og svona víst það er nægur tími .. en svo fer maður á eftir að kjósa, eða fella ríkistjórnina einsog ég kalla það.

maí 14, 2007

Tilboð #4

Mynd026_4.gif

Nei hann er ekki bilaður, hruninn eða klesstur einsog festum hefur dottið í hug við að sjá Fagrableik hérna á blogginu mínu :) - heldur var það að gerast í 4. skiptið að ókunnugur maður kemur af götunni inní BT og spyr "hver á þennan rauða Nissan sem er hérna útá plani?". Já, sá var með Nissan Patrol og vildi skipta slétt á honum og Nissa-ling. Sá hefður örugglega verið 96 módel eða eitthvað, svoltið riðgaður, óskoðaður og á slitnum dekkjum. Ég bara þori einhvernveginn ekki úti eitthvað svoleiðis dæmi, veit ekki hvort það sé praktískt? .. en það fer að verða spurning að setja kaggann bara í fréttablaðið og "tilboð óskast". Væri alveg til í að selja gullið og fá mér nýjann, en ekki taka einhvern skrjóð uppí sem ég þyrfti að sitja uppi með. Ég er alltaf að segja það, nissi er að verða kúl aftur eftir langann tíma, ég á eftir að fá "millions" fyrir hann ... ef ég dríf í þessu áður en hann deyr :þ

maí 25, 2007

akureyri.is

ak.bmp

Já, það er kominn tími á bregða undir sig betri fætinum og skella sér í nokkradaga reisu til Akureyrar. Ég hef ekki farið síðan um páskana og verður fínt að komast núna. Er líka kominn í viku sumarfrí, þannig að maður getur verið eitthvað út vikuna, jafnvel alveg yfir næstu helgi ef því er að skipta.
Það er nú ekkert komið á planið enþá, en ég vona að það verði nú eitthvað djammað. Ég er búinn að fara í ríkið og pússa ballskóna, bara að gömlu djammfélagarnir klikki ekkert :)
Ég ætla gerast kaldur og fara á Nizzaling, hann er búinn að vera svo góður undanfarið að ég held að hann fari létt með þetta ... ef ekki þá fer ég í samfloti með Dömmu systir þannig að ég get fengið far restina af leiðinni hehe, en það gerist ekki neitt. Ég meiraðsegja lét laga pústurörið á nissa í dag, því það er nógu skammarlegt að vera á bleikum 15 ára bíl að ekki sé bætt við þvílíka drusluhljóðinu og hávaða, en það er farið núna ... kaggahljóð er þetta stundum kallað, en gatið á pústinu var þannig staðsett að það var allavega ekki nissa til framdráttar.
Annað er ég með planað á Akureyri, en það er að skella sér í skoðun hjá Tannlækninum mínum :o .... vona að það verði sársaukalaust, fjárhagslega, andlega og líkamlega. En ég á eflaust eftir að sakna Reykjavík þennan stutta tíma og finnast ég vera missa þvílíkt af einhverju djammi. Annars er nú spáð einhverri slyddu á morgun laugardag, þegar ég hafði hugsað mér að fara .. hvað er málið með það???

About maí 2007

This page contains all entries posted to hrollur.net in maí 2007. They are listed from oldest to newest.

apríl 2007 is the previous archive.

júní 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34