« Tilboð #4 | Main | TEKINN !! »

akureyri.is

ak.bmp

Já, það er kominn tími á bregða undir sig betri fætinum og skella sér í nokkradaga reisu til Akureyrar. Ég hef ekki farið síðan um páskana og verður fínt að komast núna. Er líka kominn í viku sumarfrí, þannig að maður getur verið eitthvað út vikuna, jafnvel alveg yfir næstu helgi ef því er að skipta.
Það er nú ekkert komið á planið enþá, en ég vona að það verði nú eitthvað djammað. Ég er búinn að fara í ríkið og pússa ballskóna, bara að gömlu djammfélagarnir klikki ekkert :)
Ég ætla gerast kaldur og fara á Nizzaling, hann er búinn að vera svo góður undanfarið að ég held að hann fari létt með þetta ... ef ekki þá fer ég í samfloti með Dömmu systir þannig að ég get fengið far restina af leiðinni hehe, en það gerist ekki neitt. Ég meiraðsegja lét laga pústurörið á nissa í dag, því það er nógu skammarlegt að vera á bleikum 15 ára bíl að ekki sé bætt við þvílíka drusluhljóðinu og hávaða, en það er farið núna ... kaggahljóð er þetta stundum kallað, en gatið á pústinu var þannig staðsett að það var allavega ekki nissa til framdráttar.
Annað er ég með planað á Akureyri, en það er að skella sér í skoðun hjá Tannlækninum mínum :o .... vona að það verði sársaukalaust, fjárhagslega, andlega og líkamlega. En ég á eflaust eftir að sakna Reykjavík þennan stutta tíma og finnast ég vera missa þvílíkt af einhverju djammi. Annars er nú spáð einhverri slyddu á morgun laugardag, þegar ég hafði hugsað mér að fara .. hvað er málið með það???

Comments (4)


karen lind:

málið með slydduna er bara svo að nissi geti sannað sig sko.......en já á þá ekki að djamma líka í kvöld ég held nefninlega að það verði svaka stuð í bænum ;) eins og alltaf


E-pillan:

Það er aldrei sársaukalaust andlega að fara til tannlæknis. Maður þarf vanalega áfallahjálp eftir það ;)


E-pillan:

Hi hi þetta átti að vera fjárhagslega en ekki andlega :P Þetta er yfirleitt lítið mál andlega ;) ;)


almar:

Já, það styttist í tannsa :( ... en nissi stóð sig vel á leiðinni, var ekki nema rétt þrjá og hálfann tíma á ... reyndar ekki á 90 en ...

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on maí 25, 2007 9:02 EH.

The previous post in this blog was Tilboð #4.

The next post in this blog is TEKINN !!.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34