
Já, það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að það er mánudagur. Ég vaknaði sæll og glaður í morgun og labbaði í vinnuna, já labbaði. Einungis vegna þess að nissi var enn í partýi helgarinnar, ég fór nefnilega á djammið ;) ... loksins. Skrítið að þegar maður sleppir úr svona 2 helgum þá er maður mikið fljótari að ná þynnkuni úr sér, venjulega var maður hálf slappur á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum hehe, en núna var ég orðin sprækur á sunnudagskvöldinu bara. Ég er það sprækur núna að ég skipti um á rúmminu mínu, setti í vél, sópaði gólfið ooog þreif klósettið ... geri aðrir betur á mánudegi!
Svo er euró/kosninga djamm næstu helgi, en þá verður gaman, verst þykir mér hvað það er orðið bjart þegar maður er að fara heim, en þá er maður ekki alltaf uppá sitt besta, einsog núna um helgina þegar ég stóð einn með hlöllann minn að bíða eftir leigubíl í sólinni þá leið mér hálfasnalega, ég neita því ekki, spurning um að djamma bara á veturna :)
Ég skellti hér með smá mynd af pravda og link fyrir þá sem vilja skrifa undir, en þetta er beiðni um að það komi pottþétt skemmtistaður í svipaðri mynd þarna á sama stað, eða að pravda verði bara gert upp hehe, ég skrifaði nú ekki sjálfur enn, þetta er svona meira til gamans.
Bjargið Pravda, sýnið samhug ... nei djók :)
viðbætt: ég fékk sent þetta fína myndband að mér að dansa, kannski er þetta tekið á pravda, hver veit .... enjoy! :þ
Comments (4)
djamma bara á veturna heheh koddu með annan betri elskan:) en gott að heyra með þynkuna... alltaf jafn gaman að lesa bloggi þitt:) love and kisses anný hehe p.s, æðislegt myndband af þér:) ég held að þetta sé tekið á pravda
Posted by anný | 8. maí 2007 kl 15:17
þetta dansmyndband er orðið svo vinsælt að það kemur bara The site could be temporarily unavailable or too busy. Try again in a few
moments.
þú ert heldurbetur að slá í gegn :)
Posted by birkir | 8. maí 2007 kl 18:39
já almar ég er sammála þér með morgunsólina ég er ekki að fíla það sko...spurning samt bara að fara þá fyrr heim kannski hehhe......en flottur dans en ég er samt ekki að fíla greiðsluna neitt svakalega....hvenær á svo að koma norður að djamma? við Freyja getum sko kennt þér heitasta dansinn í bænum sko ;)
Posted by karen lind | 8. maí 2007 kl 22:17
Það að vakna svona snemma á morgnanna... já það er ellin ;) þetta gerist með aldrinum, bráðum ferðu að vakna klukkan átta og getur ekki sofnað aftur..hehehe. En með júróið... Eiki var nú greinilega "það hallærislegur" að hann var grátlega nálægt því að komast áfram - 14 stig vantaði... skamm-skamm til íslendinga í evrópu að kjósa ekki aðeins oftar :):)
Posted by E-pillan | 13. maí 2007 kl 17:37