
Nei hann er ekki bilaður, hruninn eða klesstur einsog festum hefur dottið í hug við að sjá Fagrableik hérna á blogginu mínu :) - heldur var það að gerast í 4. skiptið að ókunnugur maður kemur af götunni inní BT og spyr "hver á þennan rauða Nissan sem er hérna útá plani?". Já, sá var með Nissan Patrol og vildi skipta slétt á honum og Nissa-ling. Sá hefður örugglega verið 96 módel eða eitthvað, svoltið riðgaður, óskoðaður og á slitnum dekkjum. Ég bara þori einhvernveginn ekki úti eitthvað svoleiðis dæmi, veit ekki hvort það sé praktískt? .. en það fer að verða spurning að setja kaggann bara í fréttablaðið og "tilboð óskast". Væri alveg til í að selja gullið og fá mér nýjann, en ekki taka einhvern skrjóð uppí sem ég þyrfti að sitja uppi með. Ég er alltaf að segja það, nissi er að verða kúl aftur eftir langann tíma, ég á eftir að fá "millions" fyrir hann ... ef ég dríf í þessu áður en hann deyr :þ
Comments (4)
ég býð þúsundkall!
Posted by birkir | 15. maí 2007 kl 18:04
Hahaha það er svo gaman að lesa bloggið þitt.. þið systkynin eruð bara æði.. sat með Dömmu núna nýlega eitt gott laugardagskvöld heima hjá Evu og hún svona sallí róleg..heyrist alltíeinu í henni..Shit ég er bara blindfull.. haha æji kannski svona have to be there thing.. en þetta var æði..:D
Bið að heilsa þér og Nissaling ;)
kv. Jóka
Posted by Jóka | 18. maí 2007 kl 09:04
Hey Birkir, þetta er engin masta, kostar meira en þúsundkall :)
Og takk jóka hehe, við systkynin erum ekki alltaf svona þæg, eigum bara svona spariham ;)
Posted by almar | 18. maí 2007 kl 12:56
ok.... sorry.. ætlaði ekki að móðga þig.
þúsundkall og tveir bjórar?
Posted by birkir | 22. maí 2007 kl 01:09