TEKINN !!

Já, maður lenti nú aldeilis í því á leiðinni suður á sunnudaginn síðastliðinn. En þegar Nissi þaust um einsog elding í gegnum Borgarnes þá hefur löggan gerst eitthvað öfundsjúk, því hún var bara á einhverjum Volvó og ákveðið að stoppa mig ... og sekta!! ... :(
Mér finnst það ekki peningum vel varið, ef ég þarf að borga yfir 20 þúsund í ríkiskassann vegna smá tæknilegra mistaka, en mistökin voru aðallega þau að radaravarinn var á *mute* en svo á maður náttúrulega ekkert að vera keyra svona hratt. Mér fannst bara aðstæður góðar, lítil umferð og var orðinn leiður á þessari keyrslu þegar ég missti Nissa rétt yfir 120. Löggan mældi mig á 121 samt, en þar einmitt hækkar sektin alveg slatta, ég mun nú reyna að ná því niður um einn kílómeter, það hljóta nú að vera einhver skekkjumörk í þessu dóti hjá þeim. Annars þá held ég að hann hafi ekki verið með hraðann "læstann" inni, án þess að þekkja vel til lögreglunnar. En á mælinum voru 3 tölur og þær blikkuðu allar, ein sem sýndi hraðann á bílunum sem voru að koma, ein á 121 og hin á 89, en ég held að hann hafi verið að læsa þetta inni þegar ég bremsaði. Svo var hann bara einn á ferð, en var þó með videóupptöku í bílnum. "Mér er skylt að tilkynna þér að hér er myndbandsupptaka í gangi, og þér er þó ekki frjálst að hnegna úrskúrði sektar varðandi hraða" sagði eitthvað svona álíka við mig, á gullaldar Íslensku, ég vissi ekki hvort ég ætti að laga á mér hárið fyrir videóið eða fletta í orðabók því sem hann var að segja mér.... en sagði ósjólfrátt "Haaa" og hann þuldi þetta aftur, og ég bara "ég skil ekki það sem þú ert að segja" og hann varð bara eitthvað pirraður og ákvað að það skipti engu máli hvort ég skyldi þetta eður ei :) Held að það hafi ekki virkað sem skyldi og á ég von á sekt í vikunni, sem ég fæ þó aflsátt á ef ég greiði innan 5 virkra daga .. alltaf gaman að fá tilboð.
Já talandi um tilboð, þá fékk ég ekkert tilboð í nissa á leiðinni suður, hehe ,en var reyndar spurður útí hann á djamminu á föstudag, hvort hann væri ekki falur. Ég sagði að það væri nú fyrir rétt verð :þ
Annars var Akureyri bara næs, hafði það mjög gott, hefði alveg getað hugsð mér að taka 2-3 svona vikur í aflsöppun, ekkert gaman að vera kominn í vinnuhelvítið aftur.
