« akureyri.is | Main | Jæja.. »

TEKINN !!

police16.gif


Já, maður lenti nú aldeilis í því á leiðinni suður á sunnudaginn síðastliðinn. En þegar Nissi þaust um einsog elding í gegnum Borgarnes þá hefur löggan gerst eitthvað öfundsjúk, því hún var bara á einhverjum Volvó og ákveðið að stoppa mig ... og sekta!! ... :(
Mér finnst það ekki peningum vel varið, ef ég þarf að borga yfir 20 þúsund í ríkiskassann vegna smá tæknilegra mistaka, en mistökin voru aðallega þau að radaravarinn var á *mute* en svo á maður náttúrulega ekkert að vera keyra svona hratt. Mér fannst bara aðstæður góðar, lítil umferð og var orðinn leiður á þessari keyrslu þegar ég missti Nissa rétt yfir 120. Löggan mældi mig á 121 samt, en þar einmitt hækkar sektin alveg slatta, ég mun nú reyna að ná því niður um einn kílómeter, það hljóta nú að vera einhver skekkjumörk í þessu dóti hjá þeim. Annars þá held ég að hann hafi ekki verið með hraðann "læstann" inni, án þess að þekkja vel til lögreglunnar. En á mælinum voru 3 tölur og þær blikkuðu allar, ein sem sýndi hraðann á bílunum sem voru að koma, ein á 121 og hin á 89, en ég held að hann hafi verið að læsa þetta inni þegar ég bremsaði. Svo var hann bara einn á ferð, en var þó með videóupptöku í bílnum. "Mér er skylt að tilkynna þér að hér er myndbandsupptaka í gangi, og þér er þó ekki frjálst að hnegna úrskúrði sektar varðandi hraða" sagði eitthvað svona álíka við mig, á gullaldar Íslensku, ég vissi ekki hvort ég ætti að laga á mér hárið fyrir videóið eða fletta í orðabók því sem hann var að segja mér.... en sagði ósjólfrátt "Haaa" og hann þuldi þetta aftur, og ég bara "ég skil ekki það sem þú ert að segja" og hann varð bara eitthvað pirraður og ákvað að það skipti engu máli hvort ég skyldi þetta eður ei :)

L:  þú varst að keyra svoltið hratt!
Ég: Uhh, neee, er það ??
L:  Já, ég mældi þig á 121 þar sem 90 er hámarkshraðinn,
     kannastu ekkert við það?
Ég: Uhh, neee, ég keyri nú alltaf svo varlega, ég bara trúi því ekki :)
Held að það hafi ekki virkað sem skyldi og á ég von á sekt í vikunni, sem ég fæ þó aflsátt á ef ég greiði innan 5 virkra daga .. alltaf gaman að fá tilboð.
Já talandi um tilboð, þá fékk ég ekkert tilboð í nissa á leiðinni suður, hehe ,en var reyndar spurður útí hann á djamminu á föstudag, hvort hann væri ekki falur. Ég sagði að það væri nú fyrir rétt verð :þ
Annars var Akureyri bara næs, hafði það mjög gott, hefði alveg getað hugsð mér að taka 2-3 svona vikur í aflsöppun, ekkert gaman að vera kominn í vinnuhelvítið aftur.

Comments (11)


Magga Stína:

Ég skil svo hjartanlega hvernig þér líður, lenti í sama dæminu á leiðinni norður í páskafrí nema þá var það lögga frá Sauðarkrók, og ég sem var farin að kunna svo vel við Sauðkræklingana en nei... Var reyndar líka í símanum og ekki með ökuskýrteni en fékk bara sekt fyrir hraðann;) Var reyndar bara á 112 og fékk rúmlega 11 þús í sekt en sökum fátæktar þá var ég bara að borga þessa blessuðu sekt í gær og þá var hún allt í einu orðin 15 þús!!!:(
Ekkert tillit tekið til fátækra námsmanna í þessu landi!!!!


karen lind:

já Almar skekkjumörkin eru held ég 4 þannig að þú ert ekki í eins slæmun málum......við ættum að vita þetta því kristján var tekinn um daginn og blogga ég um það bráðlega ;)


Bryndís:

Hahahahahaha, sit hér og græt úr hlátri - gott með þig! Haaaa? Trúði löggan ekki að þú værir þessi þægi piltur sem keyrðir alltaf svo varlega?
Var annars að fara í sundið með guttann og var að keyra á Nesinu þegar Subaru druslu var lagt í kantinn og þegar ég nálgast fæ ég þennan fína gula blossa í augun....helv.... var á ca 70 þar sem er 50. Ég á þá allavega þjáningabróðir núna........:)


almar:

Úff hvað er gott að vita að maður er allavega ekki sá eini :) ... ég ætla vona að ég hafi ekki verið myndaður eitthvað líka á leiðinni :o ... er maður hvergi óhultur? Þarf maður kannski að fara keyra á löglegum hraða bara?


anný:

hehheehhehe þú ert svo fyndinn gaur...:) ótrúlegt en satt þá hef ég engar sögur til að segja þér til að friða þig þar sem við hjónin höfum ekkert verið tekinn...7 9 13.. (nema birkir sé ekki að segja mér frá) maður veit aldrei..:)gaman að sjá þig um daginn og fá þig í mat.. drífðu þig nú bara norður, algjört rugl að vera að hanga í borginni... kveðja annsy pannsy..


Anna Hermína:

puffff so what að löggan tók þig á 121 engin vorkun hja mér Almar minn
ÞVI ÉG VAR TEKIN Á 99 JA EINMITT 99 TAKK FYRIR OG EG BILAÐIST ,,,,, Meira en venjulega en 3750 kr borgaði ég fyrir að vera ja ég endurtek 99 km hraða
so pufffff


almar:

Össs 99, that´s just mean :) ... mætti halda að þetta rynni í starfsmannasjóðinn hjá þeim.
Ætli ég fái ekki sektina mína í dag eða morgun, hún er allavega enn ókomin, blessunin.


Almar:

Ég er að fá magasár yfir því að bíða eftir þessari sekt!! ... kemur hún eða kemur hún ekki?? Og verð ég flokkaður fyrir eða eftir hækkun? Því núna voru þær að hækka þvílíkt :o Eða alveg 3X
Ég ætla fá að sitja þetta af mér á litla hrauni frekar en að borga 70 þúsund eða eitthvað :(


Kristjana:

Úff þetta er sko ekkert grín að vera tekin af löggunni...snillingurinn ég var tekin kasólétt einmitt komin 9 mánuði á leið 2004 á DALVÍK á 52km hraða...hugsaði einmitt þegar löggan kom á fleygiferð á móti mér með blikkandi ljós "jeminn hvað hefur nú gerst á Dalvík?" en neinei þá var ég semsagt afbrotamaðurinn og þeir létu eins og ég hefði myrt einhvern en það var 30 km hámarkshraði sem þeir gleymdu alveg að hafa á skiltum og átti ég semst bara að vita þetta. Sævar lögga fannst svo fyndið að hafa tekið mig að hann kallaði bara hátt og skýrt "nei er þetta ekki Kristjana á Hellu" hehehe og svo komu fullt af krökkum hlaupandi hvað gerði hún hvað gerði hún og löggan sem stóð fyrir utan löggubílinn tyggjandi tyggjó eins og óður maður "konan keyrði alltof hratt".

Einmitt ekki nóg með það að vera eins og hvalur í mannslíki heldur bara orðinn einn versti krimmi sem um getur:-)

en þeir geta örugglega nýtt peningana í marmaraskrifborð og leðurlyklaborð


thelma:

Greinilega ekki alinn upp á sama stað og ég ! össsöss


Almar:

Haha, góður Kristjana, Dalvíkurlöggan klikkar ekki.
Fyrir þá sem ekki vita þá er hún Thelma frá Blönduósi, stærstu hraðahindruninni á landinu :)

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on júní 5, 2007 8:57 EH.

The previous post in this blog was akureyri.is.

The next post in this blog is Jæja...

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34