« júní 2007 | Main | ágúst 2007 »

júlí 2007 Archives

júlí 4, 2007

Misheppni

stxbusf5-humor.jpg Jæja bloggtími. Ég fór í frekar misheppnaða ferð til Akureyrar síðustu helgi þar sem ég ætlaði nú aldeilis að taka á því, en úr varð ekki neitt. Reyndar skemmti ég mér mjög vel í heimsóknum hjá Petru og hjá Birki, Anný og Lilju Mist, þó svo að það hafi ekki verið neitt djamm. Það var samt fínasta partý hjá mömmu, þar var grillað og amma og afi mættu á svæðið, svo og Elva systir mömmu og fjölskylda, sem búa í Noregi og hafa ekki komið hingað í 5 ár. Það var alveg bongó-blíða fyrir norðan og flugið þangað gekk stórslysalaust fyrir sig, en ég hef ekki alveg sömu sögu að segja með flugið suður!! Maður tekur sér flug og borgar fyrir það jafnvirði millilandaflugs, aðallega vegna þægindana, en það er svo fínt að vera bara 40 mín á milli í stað 4 klst. En flugið sem ég átti á sunnudagskvöld klukkan 23:00 varð aflýst vegna þoku :o ... það byrjaði á því að ég fékk sms um seinkun, svo annað um meiri seinkun, svo kom 3ja og sagði fluginu vera aflýst, svo kom 4. og sagði að flug væri í athugun frá sauðárkrók og maður ætti að hringja í númer sem var gefið upp... það númer var svo bara símsvari sem sagði að það væri lokað hjá flugfélaginu!!! Svo loks kom 5. SMS-ið klukkan 23:20 sem sagði "flug 273 frá Akureyri hefur verið flutt til Sauðárkróks, mæting á akureyrarflugvöll klukkan 23:10 og brottför með rútu kl 23:25 ... gott að fá það svona tímanlega. En maður dröslaði sér þarna niðureftir,. var mættur um 23:30, rútan fór b.t.w ekki fyrr en 23:55. Ekki nóg með það, þá stóð ég í 5 mín fyrir framan afgreiðsluna að bíða eftir einhverjum, og sá þá alltaf þarna bakvið glerið, svo hringdu þeir í mig "við erum að hringja frá flugfélaginu, spurning hvort þú ætlir með suður" ég: "já, ég er að horfa á þig, búinn að bíða hér í nokkrar mínútur". En svo var skellt sér með rútunni til Sauðárkróks, sú ferð var ágæt þar sem ég var með tölvuna og gat horft á Epic Movie á leiðinni, sem b.t.w. er ógeðslega léleg hehe. Ekki fórum við samt strax í loftið, það þurfti að bíða í örugglea 30 mín á króknum eftir engu virtist vera. En svo var farið í loftið og varð flugferðin suður 35 mín, og engin ókyrrð eða neitt. Kom mér skemmtilega á óvart að klukkutíma rútuferð myndi bara stytta flugið um 5 mín :( .. en þetta hafðist allt og klúkkan 2:30 var ég kominn uppí rúm. Dagurinn eftir var samt erfiður sökum þreytu.
En af því að maður er svo geðveikur með vott af sadómasó, þá er ég að hugsa um að skella mér norður aftur núna um helgina!! How crazy is that?? Ég fékk þessi fínu för uppí hendurnar, fékk að skipta um vakt í vinnuni, þannig að ég þarf lítið frí, erfitt að neita svona ...og nú verður þá líka djammað!! Annars skal ég hundur heita. Tek pottþétt epsoninn með og svona. Damma og Gummi eru að koma suður á fimmtudag og heim seinnipart föstudags, svo fara Petra og Þráinn suður á mánudeginum, þannig að maður er bara nokkuð góður, fer svo beint í vinnuna á mánudagskvöldið.

Að lokum stjörnuspáin mín af mbl:
Vatnsberi: Þú fylgir innsæi þínu sem fer með þig langt, langt af leið. Þú þvælist um í skógi ímyndunaraflsins, og það er einmitt þar sem ævintýrið byrjar.

júlí 18, 2007

Ekkert að gerast

mute.gif Já, maður hefur eitthvað voða lítið að segja þessa dagana, ekki mikið að gerast. En það eru ekki endilega slæmar fréttir, því mér leiðist allavega ekki. Það er samt nóg framundan, ég þarf eiginlega að fá mér nýja vinnu, nýja íbúð og nýjan bíl svo eitthvað sé nefnt hehe ... Ég er aftur kominn í DK pakkann, eða skoða hvort ég geti ekki fengið að skella mér út til köben, það er verið að athuga það fyrir mig innan fyrirtækisins. Ég held að það gæti nefnilega orðið gaman og alveg tímabært þar sem bíllinn er orðinn "gamall" og ég kominn með leið á "húsnæðinu" mínu. Ég er líka nánast ákveðinn í að "salta" skólann þangað til næsta haust, má ekki geyma hann mikið lengur. Kannski verður maður bara í köben þá og tek skólann þar. Get tekið kúrs þar um "gæsalappir" hvenar þær séu viðeigandi og hvenar ekki :)
Ég fékk mér nýtt tæki í vikunni, ahhh loksins, ég held að það sé orðið ansi langt síðan ég fékk mér eitthvað nýtt dót. En ég pantaði mér af e-bay SKY-HD móttakara ... það er alveg klassatæki. Var áður með venjulegann sky móttakara, en á þeim nýja sér maður stöðvar í háskerpu, það mun ekki nýtast mér að fullu fyrr en ég fæ mér flatsjónvarp, því gamli grundigginn er ekki háskerpusjónvarp, þó svo hann standi alveg fyrir sínu blessaður. Móttakarinn er líka með 320GB innbyggðum hörðum diski fyrir svona "live pause" og til þess að taka upp. Alveg geggjað að geta t.d. tekið upp á einni stöð og horft á aðra, eða jafnvel tekið upp á 2 stöðvum og horft á upptöku á meðan, þetta er svo fjölhæf græja. Áður þurfti maður alltaf að velja og hafna, en nú sér "skæjarinn" bara um þetta. Meiraðsegja sem extra service á er komið á laggirnar þjónusta sem heitir "sky anytime" og þeir senda þætti og myndir á harðadiskinn hjá mér, sem er ekki búið að sýna, ef ske kynni að ég vildi sjá það ... núna erum við að tala saman sko. Besta er að maður missir ekki af neinu, og þarf ekki að vara fyrir framan TV-ið á neinum vissum tímum, bara þegar manni hentar. Ahhh, ókey, reyna hætta tala um nýja barnið mitt...
Það er að sjálfsögðu djamm um helgina ... gæti endað úti bæði kvöldin :o ... langar svo á BURN partý á NASA, verður eitthvað svona show og DJ-Páll Óskar þeytir skífum, hann er nefnilega nokkuð góður í því, hann má eiga það kallinn. Ég auglýsi hér með eftir stuðliði sem vill koma á nasa hehe :) ... ég er nú samt ekki vongóður, þar sem það var mikið stuð hjá okkur síðustu helgi, en ég mun ekki gefast upp.
Ég náði að henda inn nokkrum nýjum myndum úr epsoninum, sem klikkar aldrei! Þær eru á sínum vanalega stað, svo er vert að minna á að þeir sem fara í [REGISTER] á myndasíðunni geta gert svona "login" og þar með commentað á myndirnar, það gæti orðið fyndið. Var með það opið til að byrja með en hafði ekki undan að fjarlægja spammið, og nennti því ekki lengur.
Svo er það bara spurning með sumarið, hvað skal gera um versló, og hvort ég eigi að fara til Tyrklands í ágúst eða til Köben, maðurinn sem er að verða atvinnulaus virðist halda að hann eigi nóga peninga:) En ég fékk svo gott boð frá Ömmu og Afa, sem eru að fara til Tyrklands ásamt fleirum fjöslkyldumeðlimum, en þau verða ein í 3 herbergja íbúð og buðu mér uppá fría gistingu ef ég vildi skella mér, sem er bara nokkuð góður díll. Gengur samt hálf erfiðlega að fá uppúr Úrvali útsýn hvort ég geti fengið flug, því þau segjast ekki vilja selja "bara flug" þangað. Og það er enginn annar svo ég viti til að fljúga beint þangað. Svo er Magga partýkelling í Köben, það væri ekki leiðinlegt að taka eastegade á þetta með henni hehe, eða hvað sem djammgöturnar heita þarna.
Jæja, ég fer að verða of seinn í vinnuna bara, en að lokum þá skil ég eftir stjörnuspánna mína af MBL fyrir daginn í dag, ég er farinn að bíða spenntur alltaf eftir henni, því það er alveg ótrúlegt hvað þetta hittir oft á höfuðið hjá þeim ... ég veit að þetta á að passa við alla, en þegar ég les hinmerkin þá passa þau bara ekkert við mig :)

Vatnsberi: Þú trúir á sjálfan þig og það gera aðrir líka. Heimurinn tekur fegins hendi heiðarleika þinn og hreina framgöngu.

Okey, það er kannski ekki mikið vit í þessu ... nema að heimurinn sé köben og ég uhhh ....

En svo ætla ég líka að láta fylgja með uppáhaldslagið mitt þessa dagana, það gæti verið komið nýtt á morgun, en þetta er Timbaland vinur minn með nýja smellinn sinn The Way I Are ásamt einhverri gellu sem heitir Keri Hilson. Og muna að fíla það í tætlur!! ...

Hey, já ... svo er Lúkas bara fundinn, hmm... það er nú gott að sá sem var sagður hafa sparkað hann til dauða var næstum því drepinn líka, missti vinnuna, og hefur ekki þorað útúr húsi í allt sumar ha? Hugsa sér að svona múgæsingur geti myndast útaf svona sögusögnum sem hafa greinilega ekki átt neina innistæðu. Hvað með þessi myndbönd sem áttu að vera til af þessu?
Svo býr Lúkas bara á ruslahaugunum og skemmtir sér í Hlíðarfjalli. En gott samt að hann er lifiandi, þó svo að það sé ekki búið að ná honum enn.

About júlí 2007

This page contains all entries posted to hrollur.net in júlí 2007. They are listed from oldest to newest.

júní 2007 is the previous archive.

ágúst 2007 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34