Já, maður hefur eitthvað voða lítið að segja þessa dagana, ekki mikið að gerast. En það eru ekki endilega slæmar fréttir, því mér leiðist allavega ekki. Það er samt nóg framundan, ég þarf eiginlega að fá mér nýja vinnu, nýja íbúð og nýjan bíl svo eitthvað sé nefnt hehe ... Ég er aftur kominn í DK pakkann, eða skoða hvort ég geti ekki fengið að skella mér út til köben, það er verið að athuga það fyrir mig innan fyrirtækisins. Ég held að það gæti nefnilega orðið gaman og alveg tímabært þar sem bíllinn er orðinn "gamall" og ég kominn með leið á "húsnæðinu" mínu. Ég er líka nánast ákveðinn í að "salta" skólann þangað til næsta haust, má ekki geyma hann mikið lengur. Kannski verður maður bara í köben þá og tek skólann þar. Get tekið kúrs þar um "gæsalappir" hvenar þær séu viðeigandi og hvenar ekki :)
Ég fékk mér nýtt tæki í vikunni, ahhh loksins, ég held að það sé orðið ansi langt síðan ég fékk mér eitthvað nýtt dót. En ég pantaði mér af e-bay SKY-HD móttakara ... það er alveg klassatæki. Var áður með venjulegann sky móttakara, en á þeim nýja sér maður stöðvar í háskerpu, það mun ekki nýtast mér að fullu fyrr en ég fæ mér flatsjónvarp, því gamli grundigginn er ekki háskerpusjónvarp, þó svo hann standi alveg fyrir sínu blessaður. Móttakarinn er líka með 320GB innbyggðum hörðum diski fyrir svona "live pause" og til þess að taka upp. Alveg geggjað að geta t.d. tekið upp á einni stöð og horft á aðra, eða jafnvel tekið upp á 2 stöðvum og horft á upptöku á meðan, þetta er svo fjölhæf græja. Áður þurfti maður alltaf að velja og hafna, en nú sér "skæjarinn" bara um þetta. Meiraðsegja sem extra service á er komið á laggirnar þjónusta sem heitir "sky anytime" og þeir senda þætti og myndir á harðadiskinn hjá mér, sem er ekki búið að sýna, ef ske kynni að ég vildi sjá það ... núna erum við að tala saman sko. Besta er að maður missir ekki af neinu, og þarf ekki að vara fyrir framan TV-ið á neinum vissum tímum, bara þegar manni hentar. Ahhh, ókey, reyna hætta tala um nýja barnið mitt...
Það er að sjálfsögðu djamm um helgina ... gæti endað úti bæði kvöldin :o ... langar svo á BURN partý á NASA, verður eitthvað svona show og DJ-Páll Óskar þeytir skífum, hann er nefnilega nokkuð góður í því, hann má eiga það kallinn. Ég auglýsi hér með eftir stuðliði sem vill koma á nasa hehe :) ... ég er nú samt ekki vongóður, þar sem það var mikið stuð hjá okkur síðustu helgi, en ég mun ekki gefast upp.
Ég náði að henda inn nokkrum nýjum myndum úr epsoninum, sem klikkar aldrei! Þær eru á sínum vanalega stað, svo er vert að minna á að þeir sem fara í [REGISTER] á myndasíðunni geta gert svona "login" og þar með commentað á myndirnar, það gæti orðið fyndið. Var með það opið til að byrja með en hafði ekki undan að fjarlægja spammið, og nennti því ekki lengur.
Svo er það bara spurning með sumarið, hvað skal gera um versló, og hvort ég eigi að fara til Tyrklands í ágúst eða til Köben, maðurinn sem er að verða atvinnulaus virðist halda að hann eigi nóga peninga:) En ég fékk svo gott boð frá Ömmu og Afa, sem eru að fara til Tyrklands ásamt fleirum fjöslkyldumeðlimum, en þau verða ein í 3 herbergja íbúð og buðu mér uppá fría gistingu ef ég vildi skella mér, sem er bara nokkuð góður díll. Gengur samt hálf erfiðlega að fá uppúr Úrvali útsýn hvort ég geti fengið flug, því þau segjast ekki vilja selja "bara flug" þangað. Og það er enginn annar svo ég viti til að fljúga beint þangað. Svo er Magga partýkelling í Köben, það væri ekki leiðinlegt að taka eastegade á þetta með henni hehe, eða hvað sem djammgöturnar heita þarna.
Jæja, ég fer að verða of seinn í vinnuna bara, en að lokum þá skil ég eftir stjörnuspánna mína af MBL fyrir daginn í dag, ég er farinn að bíða spenntur alltaf eftir henni, því það er alveg ótrúlegt hvað þetta hittir oft á höfuðið hjá þeim ... ég veit að þetta á að passa við alla, en þegar ég les hinmerkin þá passa þau bara ekkert við mig :)
Vatnsberi: Þú trúir á sjálfan þig og það gera aðrir líka. Heimurinn tekur fegins hendi heiðarleika þinn og hreina framgöngu.
Okey, það er kannski ekki mikið vit í þessu ... nema að heimurinn sé köben og ég uhhh ....
En svo ætla ég líka að láta fylgja með uppáhaldslagið mitt þessa dagana, það gæti verið komið nýtt á morgun, en þetta er Timbaland vinur minn með nýja smellinn sinn The Way I Are ásamt einhverri gellu sem heitir Keri Hilson. Og muna að fíla það í tætlur!! ...
Hey, já ... svo er Lúkas bara fundinn, hmm... það er nú gott að sá sem var sagður hafa sparkað hann til dauða var næstum því drepinn líka, missti vinnuna, og hefur ekki þorað útúr húsi í allt sumar ha? Hugsa sér að svona múgæsingur geti myndast útaf svona sögusögnum sem hafa greinilega ekki átt neina innistæðu. Hvað með þessi myndbönd sem áttu að vera til af þessu?
Svo býr Lúkas bara á ruslahaugunum og skemmtir sér í Hlíðarfjalli. En gott samt að hann er lifiandi, þó svo að það sé ekki búið að ná honum enn.
Comments (12)
Hey Ammi
;)
Sko, ef þú flytur til Köben í haust... þá kem ég um áramótin.....alveg pottþétt... Díll?
School is for wimps......
Posted by freyja | 18. júlí 2007 kl 18:34
Hahah, snilld!! Já, ég reyni allavega, en ef þau redda mér ekki vinnu í DK þá efast ég um að ég þori eitthvað að fara einn og sækja um sjálfur :)
Too COOL for school !! That´s what we are ;)
Posted by almar | 18. júlí 2007 kl 18:59
ég verð að koma í heimsókn í næstu viku og sjá barnið þitt, ég er orðinn geðveikt spenntur :)
Posted by birkir | 18. júlí 2007 kl 19:49
ég var að reyna skilja þetta blogg þitt en hætti að lesa þegar með 320GB innbyggðum kom ég er ekki alveg að fatta svona.....en svo náttla las ég um lagið þitt og viti menn ég er líka að fíla þetta í tætlur......
ég kem pottþétt til þín í DK og djamma feitt með þér hehe....Freyja komdu frekar með mér á skikkanlegri tíma þúst áramótin eru fyrir fjölskylduna......Ammi kemur bara hingað þá ok......
við förum einhvertímann fyrir jól og verslum feitt líka ......er haggi moled
Posted by karen lind | 19. júlí 2007 kl 00:01
Köben er snilld um jól.... eða bara alltaf, alltaf hægt að versla og alveg hægt að djamma klikkað á miðvikudagskvöldum..... ég er til hvenær sem er ;)
Posted by freyja | 20. júlí 2007 kl 20:10
Ég elska `stjörnuspærnar´ mínar á mbl.
Vatnsberi: Þú ert voða skemmtilegur, en það eru takmörk fyrir því hvað fólk nennir að hlusta á sögur af sjálfum þér endalaust. Stilltu þeim í hóf.
Þessvegna blogga ég svo sjaldan ;)
ps: Enn er tekið við skráningum fyrir þá sem vilja koma með á nasa, en sem komið er er engin búin að skrá sig :o
Posted by almar | 20. júlí 2007 kl 21:10
zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz va ég sofnaði yfir lestrinum
Posted by williamswifes | 22. júlí 2007 kl 02:48
Haldiði að það hafi ekki verið bara uppselt á Palla! :o
Samt var ég að koma heim úr bænum að ganga 9 ;) þannið kvöldið var ekki alveg ónýtt.
Posted by Almar | 23. júlí 2007 kl 14:54
æ.. leitt með nasa !
so close !!
samt fyndið þegar við vorum búin að vera á glaumbar í hálftíma varstu enn fyrir utan á Nasa, ER EKKI ALLT Í ORDEN FÉLAGI!!
að labba upp og niður laugarveginn, labba frá glaumbar að devitos, devitos að einhverjum fótboltavelli, frá fótbó að select er klárlega ekki kúl..!!!
shjitt hvað vorum við að pæla?
Posted by thelma | 23. júlí 2007 kl 18:10
Veistu hvað...ég held að við höfum ekki verið að pæla neitt hahah Feis!!! Fólk veður ekki í vitinu þegar það er drukkið hehe
Posted by Helga | 23. júlí 2007 kl 19:46
þú ert crazy helga mín !!
þetta var samt helvíti gaman...
Posted by thelma | 24. júlí 2007 kl 19:39
á svo að skella sér norður eða hvað? :)
Posted by Damma sys | 1. ágúst 2007 kl 10:25