Jæja bloggtími. Ég fór í frekar misheppnaða ferð til Akureyrar síðustu helgi þar sem ég ætlaði nú aldeilis að taka á því, en úr varð ekki neitt. Reyndar skemmti ég mér mjög vel í heimsóknum hjá Petru og hjá Birki, Anný og Lilju Mist, þó svo að það hafi ekki verið neitt djamm. Það var samt fínasta partý hjá mömmu, þar var grillað og amma og afi mættu á svæðið, svo og Elva systir mömmu og fjölskylda, sem búa í Noregi og hafa ekki komið hingað í 5 ár. Það var alveg bongó-blíða fyrir norðan og flugið þangað gekk stórslysalaust fyrir sig, en ég hef ekki alveg sömu sögu að segja með flugið suður!! Maður tekur sér flug og borgar fyrir það jafnvirði millilandaflugs, aðallega vegna þægindana, en það er svo fínt að vera bara 40 mín á milli í stað 4 klst. En flugið sem ég átti á sunnudagskvöld klukkan 23:00 varð aflýst vegna þoku :o ... það byrjaði á því að ég fékk sms um seinkun, svo annað um meiri seinkun, svo kom 3ja og sagði fluginu vera aflýst, svo kom 4. og sagði að flug væri í athugun frá sauðárkrók og maður ætti að hringja í númer sem var gefið upp... það númer var svo bara símsvari sem sagði að það væri lokað hjá flugfélaginu!!! Svo loks kom 5. SMS-ið klukkan 23:20 sem sagði "flug 273 frá Akureyri hefur verið flutt til Sauðárkróks, mæting á akureyrarflugvöll klukkan 23:10 og brottför með rútu kl 23:25 ... gott að fá það svona tímanlega. En maður dröslaði sér þarna niðureftir,. var mættur um 23:30, rútan fór b.t.w ekki fyrr en 23:55. Ekki nóg með það, þá stóð ég í 5 mín fyrir framan afgreiðsluna að bíða eftir einhverjum, og sá þá alltaf þarna bakvið glerið, svo hringdu þeir í mig "við erum að hringja frá flugfélaginu, spurning hvort þú ætlir með suður" ég: "já, ég er að horfa á þig, búinn að bíða hér í nokkrar mínútur". En svo var skellt sér með rútunni til Sauðárkróks, sú ferð var ágæt þar sem ég var með tölvuna og gat horft á Epic Movie á leiðinni, sem b.t.w. er ógeðslega léleg hehe. Ekki fórum við samt strax í loftið, það þurfti að bíða í örugglea 30 mín á króknum eftir engu virtist vera. En svo var farið í loftið og varð flugferðin suður 35 mín, og engin ókyrrð eða neitt. Kom mér skemmtilega á óvart að klukkutíma rútuferð myndi bara stytta flugið um 5 mín :( .. en þetta hafðist allt og klúkkan 2:30 var ég kominn uppí rúm. Dagurinn eftir var samt erfiður sökum þreytu.
En af því að maður er svo geðveikur með vott af sadómasó, þá er ég að hugsa um að skella mér norður aftur núna um helgina!! How crazy is that?? Ég fékk þessi fínu för uppí hendurnar, fékk að skipta um vakt í vinnuni, þannig að ég þarf lítið frí, erfitt að neita svona ...og nú verður þá líka djammað!! Annars skal ég hundur heita. Tek pottþétt epsoninn með og svona. Damma og Gummi eru að koma suður á fimmtudag og heim seinnipart föstudags, svo fara Petra og Þráinn suður á mánudeginum, þannig að maður er bara nokkuð góður, fer svo beint í vinnuna á mánudagskvöldið.
Að lokum stjörnuspáin mín af mbl:
Vatnsberi: Þú fylgir innsæi þínu sem fer með þig langt, langt af leið. Þú þvælist um í skógi ímyndunaraflsins, og það er einmitt þar sem ævintýrið byrjar.
Comments (3)
Ha Almar ert þú að fara að spá í djammið? Hvað með Shiloh? Hvað á ég að segja henni um pabba hennar....að hann sé bytta ?
Kv áhyggjufull móðir
Posted by Anna Vala | 5. júlí 2007 kl 11:09
Ég lofa djammi á laugardaginn....... alveg allir 10 fingur upp til Guðs......
Posted by freyja | 6. júlí 2007 kl 15:54
haahah langt sidan eg hef komid a siduna tina og eg hef tokkalega saknad ad lesa um crazy ruglid i ter :D hhahaha
en ja djamm Almar minn AU-PAIR-inn minn tu veist eg er ad koma heim i manud or so svo a teim tima verdur aupairn ad vera EDRU .. ok hahahah
knus and kisses from NY
Linda P og Brandon Bangsi (sem hlakkar svo til ad hitta au-pair fraenda sinn) :)
Posted by Berglind | 10. júlí 2007 kl 14:20