Já, hérna kemur ein erfið:
Hvað er bleikt að aftan, rautt í miðjunni og klesst að framan???
.....svar: (sjá)
Já, greyjið Nissi lenti í smá óhappi á leiðinni norður, en ég var að keyra Öxnadalsheiðina og var rétt ókominn að Gunnhildarstöðum (ég kann samt ekkert í landafræði, þetta stendur í tjónaskýrslunni) þegar 2 bílar taka frammúr mér og öðrum bíl ... því ég var BARA Á 90! og troða sér fyrir framan, en þá beygir 5. bíllinn sem var fremstur að Gunnhildarstöðum og allir bremsa, nema Nissi, hann var eitthvað svo seinn að fatta því hann var að skoða ljósin ofaná einhverjum jeppa sem hann var að mæta, svo þegar ég fattaði að það stefndi í óefni þá var bremsunni skutlað í gólfið og öflugt 14 ára gamalt ABS bremsukerfið :) byrjaði að mala á fullu, en allt kom fyrir ekki neitt, ég sá að það yrði ekki stöðvað í tæka tíð og tek þá ákvörðun að beygja til vinstri, fyrir aðkomandi umferð :o .. eða Nissi gerði það, ég man ekki eftir að hana tekið neinar ákvarðanir í þessu ... en allavega þá nær bíllinn að sveigja hjá (útaf öfluga ab-essinu :) en reyndar aðeins of seint og stangar hægra horninu aftaná vinstra afturhorn bílsinns fyrir framan. Svo enda ég útaf hinumegin við götuna ... og var það heppinn að það var ekki umferð á móti, því það hefði nú ekki verið spes. Fólkið sem ég keyrði á var alveg þvílíkt næs, þau áttu ekki einusinni bílinn sem þau voru á, voru með hann í láni .. gaman að því. En ég fór með þeim á stöðina á Akureyri og við fylltum út tjónaskýrslu. Þau hjálpuðu mér líka að koma Nissa uppá götuna, ég fór á honum. Fyrst hélt ég að hann væri ónýtur, því það komu alveg þvílíku lætin þegar ég var hálfnaður í bæinn, svo var það alveg í 2 daga á eftir, en svo heyrði ég þegar það hætti líka skyndilega og eitthvað skaust frá bílnum, en þetta hefur örugglega verið möl einhversstaðar í bremsunum, því ég heflaði alveg kantinn þegar ég fór útaf. En núna virðist bara ekkert vera að nissa lítla, meiraðsegja stefnuljósið virkar þó brotið sé, það er meiraðsegja enn gult! Ég þarf bara að festa stuðarann upp, hann stendur svona út því ég tjaslaði honum bara í næsta gat sem ég fann. En þetta var alveg fínt svona "wakeup call" maður þarf að passa sig víst í þessari umferð. En greyjið nissi, það er ekki langt síðan að hann glitraði einsog engill í sólinni: (sjá) en núna er hann bara klesstur. Og ég sem var á leið á VÍS þegar ég ætti næst kvöldvakt og heimta lækkun á iðgjöldum, því ég lendi aldrei í neinu :( Hefði betur farið síðast þegar ég nennti ekki.
Svo lærir maður aldrei neitt af reynslunni, ég var búinn að halda mér á 90 alla leiðina frá Reykjavík, mætti örugglega 10 lögubílum, lenti í vegatálma á Blönduósi og var kominn framhjá Varmahlíð þegar ég var orðinn ansi leiður á þessari hægferð og ákvað nú að taka frammúr einum bíl sem mér þótti fara fullhægt. Nissi var kominn í svona 115 og var að fílaða :) ... og enginn bíll á þvílíkt beinum vegi þannig að ég var ekkert að hægja á mér... en er þá ekki ómerktur bíll, alveg lengst í burtu hjá einhverjum sveitabæ að skjóta á mig með laser mæli, ég náttúrulega negli niður um leið og ég heyri í radarvaranum og skyldi ekkert hvað þetta væri því það var enginn bill á veginum, en svo svona 200 metrum seinna kem ég að sveitabæ þar sem einhver lögga stendur útí rokinu og gerir svona handahreyfingar að ég eigi að keyra hægar... ekki ósvipað þegar Ross í Friends vildi láta lækka eitthvað... nema hann hafi verið að biðja mig að stoppa, ég veit það ekki, ég vinkaði bara og hélt mína leið .. á 80! En ef þeir hafa verið að sekta þarna í felum með einhverja myndatöku þá skila ég inn ökuskýrteininu mínu og fer með nissa í endurvinnsluna, því þá er sko nóg komið! Þetta var alveg ekta hraðaksturskafli samt, í fyrra hefði ég verið á svona 150 þarna, þannig að mér finnst 115 bara nokkuð gott. En örlögin eru grimm, af því að þeir hægðu á mér, þá lenti ég í þessari bílalest, bílar fóru frammúr mér og nissi er klesstur. Hver veit, kannski hefði það verið enn verr hefði ég haldið mínum hraða.
Haha, svo gerðist eitt fyndið á leiðinni suður, þá var ég að nálgast göngin og kemur svona skilti "munið hraðamyndavélarnar" svo eru aldrei neinar hraðamyndavélar ... þannig að ég sagði alveg upphátt og einn í bílnum "munið að kaupa þessar hraðamyndavélar og setjið svooo niður þessi skilti" neinei... er þá ekki bara þessi fína hraðamyndavél þarna í kantinum svona 100 metrum seinna, og ég á svona 105 .. en hún blikkaði ekki og radarvarinn lét ekki vita, þannig að ég held að kassinn hafi verið tómur. En ég get svo svarið það að það hefði verið alveg inní myndinni að bakka óvart á þennan staur hefði þetta eitthvað blikkað á mig ... ég er orðinn mjög bitur útí þetta hraðaeftirlit. Þó svo það virðist nú vera að gera sitt gagn kannski, þetta er bara svo erfittttt!!!!
En síðast þegar ég fékk sekt, þá var ég svo eyðilagður að ég ákvað að gefa mér gjöf til að hressa mig við hehe, og fékk mér þarna sky-hd móttakarann, núna þegar ég kom heim þá dugði ekkert minna en flug til köben til að hressa mig við. Fyrir algera tilviljun þá álpaðist ég inná Icelandexpress síðuna í hádeginu í dag, hafði ekki hugmynd um að það væri verið að bjóða fullt af sætum á 2900, setti inn til gamans þá dagsetningu sem ég myndi vilja ferðast á og þá var laust báðar leiðir á þessu verði, ég gat bara ekki annað en keypt helvítis miðana ... þannig að ég er að fara til köben 22. til 29. ágúst, í viku! Ætla reyndar að tékka á verðum frá köben til Dublin, langar að kíkja á Gunnuna, það var nú líka komment frá henni á síðunnu hennar Freyju sem fékk mig til að kíkja á flugið á annað borð.
En vá, þetta er orðinn full langur sjálfsvorkunnarpistill hjá mér, er greinilega með heitt á könnunni í munninum einsog systir mín kallar það - haha
En fyrir þá sem nenntu ekki að lesa allt, þá var þetta ekkert merkilegt, bara eitthvað nissi klesstur... sektir... hraðamyndavélar .... köben ... dublin ... og eitthvað...
Stjörnuspáin mín af mbl í dag: (ekki má gleyma henni)
Vatnsberi: Þegar lífið fer út af sporinu, skaltu ekki álíta að þú eigir það skilið og taka því þegjandi. Fyndu út hvað er virkilega að. Hefurðu heyrt um karma?
Er ekki karma það sama og að eiga það skilið ??? ... nei ég bara spyr.