« Ekkert að gerast | Main | Gáta dagsins ... »

Galgopar

EPSN4093.JPG

Ég og Epsoninn fönguðum það um helgina þegar Eiður var "laminn". Get ekki sagt að þetta hafi verið mikið, sérstaklega ekki forsíða DV mikið. Þetta var einhver strákur sem var eitthvað að reyna rugla í honum, en Eiður tók ekkert í það, þá brjálaðist gaurinn bara og fór að segja að hann liti svo stórt á sig og væri svo góður með sig, hann náði eitthvað að tuska hann til, en það var allavega svo lítið að Eiður var ekki einusinni reiður, og svo lítið að Sveppi og Suddi (haha meinti Auddi) létu ekki niður vöffluna sína til að hjálpa honum. Það sést reyndar ekkert í þetta á myndunum mínum, en ég náði einhverri vídeóklippu að þessu líka. Maður var alveg steiktur í hausnum þetta kvöld. Gaf öllum FIMMUNA í leigubílaröðinni og spurrði Palla Rós hvort hann væri með eiðni, því hann var með Eiði og þeim þarna á djamminu, það fannst engum það fyndið nema mér heldég :)
En svo líður að verslunarmannahelginni, ég get svo svarið það að ég nenni ekki norður, en er samt að hugsa um að fara. Það er eitthvað lítill kraftur í djammliðinu þar þessa dagana, segja allir "ég ætla bara eitt kvöld" ... en versló er 3 kvöld, þetta er einsog að halda uppá páskana en ekki jólin! En það vill svo skemmtilega til að það ætla allir á sitthvoru kvöldinu, þannig að það er hægt að gera gott úr þessi. Ætli maður fari nokkuð fyrr en á laugardag, nenni varla á föstudagskvöldinu, enda gott í sjónvarpinu og svona ;)
Nissi hlýtur að hafa þetta af, bara eina ferð í viðbót segji ég alltaf. Hann slær þá 200.000 Km múrinn um helgina, búinn að vera duglegur strákur, en hann er núna keyrðir 199.756 Km. Ég verð eiginlega að stoppa í staðarskála eða eitthvað og gefa honum góða smurolíu í tilefni dagsinns hehe, og setja kerti á hana og leifa honum að blása á það með pústurörinu .... spurning hverni það kæmi fyrir sjónir. En nissi er í fínu standi, fór með hann í skoðun og allt það helsta virðist virka enn, ég fékk reyndar endurskoðun því það er smá gat í gólfinu eftir allt reykvíska saltið, þarf að láta sjóða í það og nissi fær skoðun. Vona bara að ég pompi ekki í götuna á leiðinni.

Comments (5)


birkir:

199.756km slétta?
það vantar komma hvað.


Anna Vala:

Nissi fer nú ekki að deyja og hvað þá meðan að ég er í Afríku. Þú sérð um Nissa og ég um Shiloh.

Koss Anna panna


almar:

Já, þeir voru sirka sléttir... en nissi er kominn langt yfir 200þ núna ... greyið.

Já, Anna, smelltu einum á Shiloh frá mér, og seigðenni að ég sé að koma sækja hana ;)


Damma sys:

er nissalingur með strengi eftir áfallið sitt um helgina?


Almar:

Nissi hefur aldrei verið betri, er að fara blogga um það í máli og myndum ;)
Og aðrar gleðilegar fréttir.

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on ágúst 2, 2007 12:03 EH.

The previous post in this blog was Ekkert að gerast.

The next post in this blog is Gáta dagsins ....

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34