« Gáta dagsins ... | Main | Danmörk »

København

koben.JPG

Jæja, þegar þú lest þetta þá er ég annaðhvort ekki vaknaður, í Leifstöð, í loftinu ... á botninum á Atlantshafinu :O ... eða vonandi bara lentur í Køben heill á höldnu :) ... en í dag klukkan 15:30 er allavega brottför á flugi HE903 með Iceland Express til Kaupmannahafnar. Ég hef aldrei verið mikill aðdáandi flugs, eitthvað í sambandi við að vera í 30 þúsund feta hæð á 812 km hraða, með 20 tonn að þotueldsneyti í vængjunum á 70 tonna flykki sem á ekkert að vera þarna uppi. Samt alveg mikill áhugamaður um flugvélar, þotuhreyflana og allt það, bara ekki hrifinn af því að vera þarna bjargarlaus uppi og vita ekkert hvað sé að gerast. Finnst mikið betra að vara bara í nissa, á reykjanesbrautinni, það er mikið öruggara hehe. Ég er allavega farinn í viku reisu til DK, og ætla ekki að gera neitt að viti, kæmi mér á óvart ef ég færi í tívolíið sko, bara skoða eitthvað, kíkja á barina og reyna á heimildina á mastercard-inu. Ég fæ að halla hausnum hjá henni Möggu og ætlar hún að sýna mér helstu sóðabúllur sem köben hefur uppá að bjóða. En hún býr í Kagsåkollegiet 140, 2730 Herlev, Denmark, þangað til mánaðarmóta en þá fer kella til þýskalands. Ég held að þetta verði mikið stuð, ánægður að komast aðeins í burtu, komast í fríhöfn og svona. Auðvitað verður epsoninn með í för, hann klikkar ekki á því frekar en fyrri daginn....

Comments (11)


freyja:

Skemmtu þér frábærlega í borginni æðislegu..... Öfunda þig!!!!

Drekktu einn eða tvo classic fyrir mig!


Eva:

Skemmtu þér í Köben, bið kærlega að heilsa Möggu skvís:)

Kemur svo norður fljótlega að djamma með okkur Jóku og systu litlu ;)


almar:

Já, ég lifði flugið af og er alveg að fíla köben hérna í strimla :) Fyrir þig Freyja skal ég drekka 3 classic hehe

Skila því til Maggster, málum svo Akureyrarbæ bláann í haust :)


Helga:

Almar!!!vildu plízzz taka þessar vibba myndir af mér út!!! Totally not cool


karen lind:

já freyja hann rukkar þig pottþétt fyrir þessa drykki sko....einusinni ætlaði hann að drekka fyrir mig á barnum og sagði svo daginn eftir að ég skuldaði honum 1200 fyrir einn bjór og eitt skot hehehe.....en almar þú mátt líka BJÓÐA mér uppá einn hehe og drekka hann svo fyrir mig.....


Almar:

Hehe, gerði ég það?
ókey, ég skal bjóða ykkur uppá 1 öl í kvöld og drekkann svo sjálfur.

Hvaða myndir ertu að meina Helga? Þær eru allar mjög fallegar ;)


Helga:

neeee þessar frá kveðjupartýinu hennar Thelmu!! Totally not fallegar myndir


Thelma:

Ég er að fara til Miami ..!!! fokk núna akkúrat eftir sólahring..
var köben rugl? fékkstu þér hassköggul? ertu í vímu? ertu á lífi? endaðiru á hafsbotninum? eníveis..

dúllurass við höldum partý um miðjan okt þegar ég kem aftur og sýnum hvernig alvöru djammarar taka borgina í tætlur, ég ætla í bæinn og það MEÐ þér !!!!! svo endum við þrjú aftur á shell í sómasamlokum og kókómjólk um 10..

díll??


Helga:

hahaha ójá thelma ég er til :):):)
Þetta var besta djamm í heiminum geiminum...sem við 3 munum ALDREI!!! gleyma


Almar:

Helga, við getum líka bara farið til Miami og tekið djammið þar ;)

Annars bíðum við bara spent eftir Thelmunni.


Thelma:

VELCOME TO MIAMI félagar.. væri ekki leiðinlegt ef bestu og hörðustu djammarnir myndu allt í einu skjóta uppi kollinum..

ER Í BALTÓ núna.. Miami á morgun..
þið komið næstu helgi..

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on ágúst 22, 2007 12:46 FH.

The previous post in this blog was Gáta dagsins ....

The next post in this blog is Danmörk.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34