Danmörk

Jæja, maður er kominn heim eftir erfiða Danmerkurferð :) - Hún var kannski ekki mjög erfið, en það var svoltið djammað allavega. Eitthvað var ég latur með epsoninn, tók ekki nema 5 myndir ... veit ekki hvaða sparnaður það var. Strax og ég lenti þá var skellt sér á barinn, töskurnar bara geymdar á lestarstöðinni, það var fín byrjun á fríinu, það var reyndar steypiregn, og vatnið óx og óx :) Regnhlífar og læti, meiraðsegja kom elding eða tvær. Staðurinn sem ég gisti á var ekki alveg innan kaupmannahafnar, heldur Herlev. Ég kallaði það mosó, því það var svona úthverfi köben. Það fóru nú nokkrir túskildingarnir í leigubíla þarna, þó svo lestirnar hafi verið góðar, þetta gekk eitthvað minna á næturna. En maður ferðaðist allt með þessu dóti á daginn. Byrjaði á á að labba í 15 mín í strætó sem kom alveg á 10 mín fresti, farið með honum á lestarstöð sem fór jafnvel alveg niður í miðbæ, svo var farið með neðanjarðarlest einsog t.d. til kristaníu, sem er mjög spes staður.
Get ekki sagt að ég myndi vilja búa þar, en gaman að sjá þetta.
Það var bara einu kvöldi sleppt úr á pöbbunum, en það var sunnudagskvöldið. Stefnan var nefnulega að taka mánudaginn snemma og fara til malmö í svíðþjóð með lest yfir eyrarsundið.
Mér fanst spennandi að fara þarna yfir, gegnum göngin og yfir brúnna, en svíðjóð var ekkert til að hrópa húrra yfir :) - bara alveg einsog danmörk nema dýrara og kaldara og með minna fjöri, en það var vel þess virði samt að borga einhvern þúsundkall í lestarmiða þangað. Löbbuðum um bæinn, kíkkuðum í búðirnar. Ég fékk mér svo elgsborgara og cider meððí á veitingastað sem heitir moosehead ... bragðaðist bara alveg einsog nautakjöt fannst mér. Mjög gott samt. Maður slapp alveg stórslysalaust frá þessu ferðalagi, bæði fjárhagslega og andlega :) ... flugið finnst mér ekki vera spennandi en það slapp alveg. Þetta var ósköp rólegt og gott flug, leiðinlegt bara að vera lenda í svona mikilli þoku, því þá veit maður ekki hvort maður sé að hrapa eða ekki hehe. En maður verður að skella sér aftur til köben, það er ekki spurning. Held að ég gæti vel bjargað mér í lestarkerfinu þarna og gæti fundið aðalstaðina eftir gott námskeið hjá henni Möggu, þó svo ég hafi ekki alltaf verið að fylgjast með :) -
Eitt sem ég væri sko til í að hafa á íslandi er 7-eleven búðirnar, elskaði að hafa þær, búðirnar eru útúm allt, alltaf opnar og selja áfengi. Maður gat labbað inn og keypt sér kaldann bjór og snickers... svoleiðis á það að vera. En varðandi dönskuna, þá komst ég að því að ég kann helling í henni, þó svo að ég skilji danina ekkert rosalega vel, en drukkinn var maður einsog infæddur sko hehe, eða svo fannst manni. - TAK skal du ha'