
Jæja, maður er kominn heim eftir erfiða Danmerkurferð :) - Hún var kannski ekki mjög erfið, en það var svoltið djammað allavega. Eitthvað var ég latur með epsoninn, tók ekki nema 5 myndir ... veit ekki hvaða sparnaður það var. Strax og ég lenti þá var skellt sér á barinn, töskurnar bara geymdar á lestarstöðinni, það var fín byrjun á fríinu, það var reyndar steypiregn, og vatnið óx og óx :) Regnhlífar og læti, meiraðsegja kom elding eða tvær. Staðurinn sem ég gisti á var ekki alveg innan kaupmannahafnar, heldur Herlev. Ég kallaði það mosó, því það var svona úthverfi köben. Það fóru nú nokkrir túskildingarnir í leigubíla þarna, þó svo lestirnar hafi verið góðar, þetta gekk eitthvað minna á næturna. En maður ferðaðist allt með þessu dóti á daginn. Byrjaði á á að labba í 15 mín í strætó sem kom alveg á 10 mín fresti, farið með honum á lestarstöð sem fór jafnvel alveg niður í miðbæ, svo var farið með neðanjarðarlest einsog t.d. til kristaníu, sem er mjög spes staður.
Get ekki sagt að ég myndi vilja búa þar, en gaman að sjá þetta.
Það var bara einu kvöldi sleppt úr á pöbbunum, en það var sunnudagskvöldið. Stefnan var nefnulega að taka mánudaginn snemma og fara til malmö í svíðþjóð með lest yfir eyrarsundið.
Mér fanst spennandi að fara þarna yfir, gegnum göngin og yfir brúnna, en svíðjóð var ekkert til að hrópa húrra yfir :) - bara alveg einsog danmörk nema dýrara og kaldara og með minna fjöri, en það var vel þess virði samt að borga einhvern þúsundkall í lestarmiða þangað. Löbbuðum um bæinn, kíkkuðum í búðirnar. Ég fékk mér svo elgsborgara og cider meððí á veitingastað sem heitir moosehead ... bragðaðist bara alveg einsog nautakjöt fannst mér. Mjög gott samt. Maður slapp alveg stórslysalaust frá þessu ferðalagi, bæði fjárhagslega og andlega :) ... flugið finnst mér ekki vera spennandi en það slapp alveg. Þetta var ósköp rólegt og gott flug, leiðinlegt bara að vera lenda í svona mikilli þoku, því þá veit maður ekki hvort maður sé að hrapa eða ekki hehe. En maður verður að skella sér aftur til köben, það er ekki spurning. Held að ég gæti vel bjargað mér í lestarkerfinu þarna og gæti fundið aðalstaðina eftir gott námskeið hjá henni Möggu, þó svo ég hafi ekki alltaf verið að fylgjast með :) -
Eitt sem ég væri sko til í að hafa á íslandi er 7-eleven búðirnar, elskaði að hafa þær, búðirnar eru útúm allt, alltaf opnar og selja áfengi. Maður gat labbað inn og keypt sér kaldann bjór og snickers... svoleiðis á það að vera. En varðandi dönskuna, þá komst ég að því að ég kann helling í henni, þó svo að ég skilji danina ekkert rosalega vel, en drukkinn var maður einsog infæddur sko hehe, eða svo fannst manni. - TAK skal du ha'
Comments (6)
ohhh ég þoli ekki þegar ég er að reyna að kommenta hjá þér og ég næ að klúðra einhverju þannig að allt sem ég skrifa eyðist út.. jáá þetta er flóknara heldur en það lítur út fyrir að vera..
Stikla þá á stóru um það sem ég reyndi að kommenta áðan
Velkominn heim danmerkur fari..
Við eyddum einmitt mestum peningum í Taxa þegar við vorum þarna.. ótrúlega langt frá Herlev til Striksins.. næst á eftir því eyddum við mest í bjór.. en maður sér ekki eftir þeim peningum :D
Svo verður að fara í hópferð til Dk.. elska þetta land (eða þetta brot sem ég sá af því ) og þá kemur þú sko með.. þá er ég búin að ákveða það fyrir þig almar minn.. þú hefur því miður engan kosningarétt á þessu máli ..sorry :D
Jæja man ekki meir hvað ég var að bulla áðan.. enda orðin ágætis ræða hjá mér:)
Vennlig hilsen
Jóka :D
Posted by Jóka | 4. september 2007 kl 12:24
Já Almar þú varst orðinn eins og innfæddur hvað varðar lestar- og dönskuhæfileika!!:D Já og mér líst vel á þessa fyrirhuguðu hópferð, þið komið bara í hana á næsta ári þegar ég verð alflutt hingað út og þá verð ég með mína eigin íbúð sem við þurfum ekki að deila með neinum Bifrestingum;) og ég lofa að búa miklu nær bænum og spara öllum stórfé í leigubílakostnað!!!
Bið að heilsa ykkur báðum, hlakka til að sjá ykkur um jólin:D
Venlig hilsen
Magga Stína
Posted by Magga Stína | 4. september 2007 kl 20:57
Ja, jeg var sem infödelse i danske språget og lesterne hehe.
Og það væri eitursvalt að fara í hópferð þangað, ekki smurning, ég mæti :) Það var samt alltílagi að borga smá í leigubíla, því gistingin var á svo góðu verði ...
Commentakerfið hjá mér er voða seinvirkt eitthvað, ef þú ýtir á [post] þá þarf bara að bíða í smá stund, þó allt virðist frosið :)
Posted by almar | 5. september 2007 kl 12:16
Þú ert svo ruglaður! Þú heldur bara að þú gast talað eikkað í dönsku, en gast það ekkert.. algjör skúnkur! varst svo drukkinn að þú varst farinn að jóðla á sænsku! trust me, hef séð þig í glasi.. oftar en einu sinni!!!
Og 7eleven.. já þær eru meira útbreiddari í dk en lúpínur á klakanum!
jeb.. 5 myndir, varstu ekkert ölvaður?
bara.. í hassinu?
iss
Posted by Thelma | 5. september 2007 kl 23:56
:o
Hvernig komst Thelma í gegnum ruslpóstssíuna hjá mér :)
Posted by almar | 6. september 2007 kl 01:30
uhhh..
kemur ur hordustu!
Posted by Thelma | 6. september 2007 kl 15:08