« Danmörk | Main | Nissi mættur austur :) »

Velkominn til Egilsstaða

utgardur6.JPG
Dagur 1 - punktur *varúð, löng færsla og harla spennandi! :)

Já, maður lenti í morgun á fokker 50 einkaþotunni sinni á Egilsstaðaflugvelli og ekki frá því að menningarsjokkið hafi strax sagt til sín :) Þetta minnir pínu á Dalvík, ansi lítið og rólegt. Veit að ég kem frá Hauganesi og ætti því ekki að kalla allt ömmu mína, en þetta er spes, held að það verði samt alveg fínt. Ótrúlega róleg búðin, allavega miðað við þá gömlu, svipað og að fara úr eldinum yfir í öskuna. Skilst að það eigi eftir að aukast fjörið þegar líður á vikuna, útsala á fimmtudaginn og svo á sunnudag fyllist allt af útlendingum þegar kárahnjúkagengið kemur í bæinn í sinni sunnudagsrútuferð. Skilst að þeir séu afgreiddir á táknmáli, því þeir hvortki tala ensku né íslensku, hvað þá dönsku sem ég er b.t.w fluent í ;)
Íbúðin sem ég er í er algjör höll miðað við kitruna mína í Reykjavík, svolítill munur á einsherbegja 30fm kompunni minni og þessari 3 herbergja 90fm íbúð með stórri geymslu og öllu. Manni líður samt pínu einsog Palla sem var einn í heiminum í þessu, einsgott að það komi einhver í heimsókn hingað í gestaherbergið :) - Það átti að skaffa mér interneti, því það er ekki lengur munaður heldur nauðsyn, en ég held ég biðji þá um að afpanta það, því það er þetta fína net sem næst hérna um alla íbúð frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, spurning hvort það dugi ekki bara, en skólinn er hérna í næsta húsi.
En ég sakna NISSA! hann er bara aleinn á Reykjavíkurflugvelli og hefur ekki hugmynd um að ég komi ekki heim fyrr en eftir 5 vikur, ég held ég hafi bara aldrei verið jafnlegni frá honum eða bíllaus, ja síðan kannski að ég var 16 - 17 og átti engann bíl, en það eru nokkur ár síðan. Ætli verði ekki búið að klippa af honum þegar ég kem til baka, hann verður pottþétt allavega straumlaus ... en það er ekkert sem vinir mínir í FÍB redda ekki. Ef einhver á leið á flugvöllinn, endilega þá heilsa uppá hann fyrir mig og klappa honum. Ég er samt að fara labba í vinnuna í 1. skiptið í fyrramálið, það er einhver göngustígur sem á að vera stuttur og góður, en samt miðað við spottann að keyra hingað þá er ég viss um að ég verði alveg 10 mín að töllta þetta, maður verður örugglega bara massaður þegar maður kemur til baka.
Svo pakkaði ég niður öðrum nauðsynjamunum áður en ég fór og setti á bíl, þannig að sá pakki ætti að koma á miðvikudag, en í honum er diskur, móttakari og xbox sem er fullt af bíó og þáttum. Spurning hvernig ég kem þessu heim bíllaus, en jæja. Ég gat bara ekki hugsað mér 5 vikur án þessara hluta hérna í sveitinni, er t.d. að horfa á endursýningu á spaugstofunni á RÚV núna ...good times. En það er samt ljótt ef maður getur ekki farið neitt án þess að hafa net og sky, hvernig endar það eiginlega? ...bad times.
Verra líka að ég hef einusinni lent í vandræðum í orlofsíbúð í eigu sömu aðila fyrir að vera með disk í leifisleysi, já þetta er nefnilega ekki í fyrsta skiptið sem ég geri þetta :) En þá var ég á 10. hæð, hér á jarðhæð ætti þetta ekki að vera neitt ves ... vonum það allavegana.
Og hvað er svo málið með flugvöllinn hér, er örugglega búinn að heyra í 3 þotum og 2 flugvélum taka á loft síðan klukkan 10, þetta er bara einsog LAX á góðum degi.
Myndin hér að ofan er svo af blokkinni minni hérna, sem þið ætlið að heimsækja mig í, já já, það held ég nú :)
jamie_oliver.JPG

Ég gleymdi að taka það fram í Danmerkurfærslunni hér að undan að ég hitti Jamie Oliver á Kastrup, hann spurði mig "are you going to Iceland" og ég sagði "yes" , enda stóð ég í tékkin röðinni fyrir ICELAND, en var að vesenast með eitthvað hjól þarna og gæti hafa verið fyrir London röðinni líka. Ég og celebbin sko, verst að epsoninn var kominn ofaní tösku. Svo voru Einar Bárðar og Jakop Frímann í fríhöfninni í Leifsstöð - Tilgangslaus saga, ég veit :)

En svo er maður enn að jafna sig eftir viðburðarríka helgi, en ég afkastaði það að fara í 4 partý og geri aðrir betur! Eitt kveðjuparty, eitt afmæli, eitt vinnupartý og svo brúðkaupið hjá bróður mínum sem var haldið á Hilton Nordica. Það var alveg keppnis, með dýrindis veitingum og hljómsveit og allar græjur. Steppi Hilmars tróð upp og Lisa sem var í Idolinu. Svo var maður einsog hálfviti í jakkafötunum í bænum, alveg til lokunar. Var búinn að gleyma hvað það er kaaaaalt í leigubílaröðinni þegar vetur nálgast, en ég hélt að ég yrði úti þar. Ég braut samt enga lögreglusamþykkt, þó svo að það gæti hugsast að ég hafi laumað einu glasi út :)

Stjörnuspáin mín í dag á Mbl:
Vatnsberi: Þú horfir inn á við og mætir mörgun lífsgátunum. Já, það er skrýtið að vera fullorðinn og enn að pæla í hvað maður vill verða þegar maður verður stór.

Ótrúlegt hvað þeir hitta alltaf naglann á höfuðið þarna :)

Comments (22)


karen lind:

úfff ég las þetta núna var búin að fara inná síðuna þína og nennti ekki að lesa þetta en getta er nú ekkert svo langur pistill.... en herru hvað er maður lengi að keyra þangað frá ak ...... en talaðirðu ekkert við Jamie...sagðiru bara yes ....ehhh


Almar:

Hehe, pistillinn er samt í lengri kantinum. Ég hafði ekki tíma til að spjalla við Jamie, var að missa vélini og basla við að koma einhverju reiðhjóli með mér, eða reyna ná pedulunum af því, það var vandamálið :) ... annars hefði ég beðið hann að kenna mér að elda. Hefði sagt við hann "I only know how to cook hamburgers and pizza, and poppkorn"
En maður er bara rétt 3 tíma hingað frá ak, 288 km, og malbik alla leið (haha skrifaði fyrst parket alla leið)


birkir:

er þetta bara ég eða...
verða blogin þín alltaf leiðinlegri eftir því sem þau eru lengri???

kveðja... atvinnulausi kallinn :)


Almar:

Já, það er pottþétt þú sko ;)

kveðja... soon to be atvinnulausi kallinn líka.


birkir:

ég og Elli erum með svona stuðnings fundi fyrir atvinnulausa fyrir norðan.
ertu ekki til í að taka þátt í því með okkur?


Almar:

Já, mér líst vel á það. Getum við ekki verið með kökubasar og bingó og eitthvað til að fjármagna okkur? Og verður félagið ekki með svona bloggasíðu?? hehe


birkir:

það er alltof mikil vinna við kökubasar, frekar að reyna að fá ríkisstyrki og svona.
reyndar gætum við öruglega fengið mömmu Ella til að baka :)


almar:

Hehe já, það er satt, hún gerir allavegana brjálaðar muffins :)


thelma:

Þú talar ekki dösnku sauðurinn þinn !! ;)

Ertu að segja mér að ég mun ekki sjá þig í 10 vikur!!!!
HA!!

Almar.. þú kemur suður 6.okt helgina PUNKTUR!


Thelma:

Já btw fyrst þér finnst svaka merkilegt að hafa séð Jamie kallinn.. þá hitti eg Nicolas Cage..

jebb..


Rúnki:

fyrst allir eru að kasta nöfnum hérna þá hitti ég ég Geir Ólafs einusinni..


Begga Racer:

Held ég eigi vinninginn.. erum að tala um JACK BAUER !!


Helga:

hei kemuru á árdegis djammið eða ertu fastur þarna á egilsstöðum??


almar:

Auðvitað mæti ég á árdegis djammið, missi aldrei af slíku ... hebbði nú haldið það ;) - Svo klárum við bæinn á eftir að vanda.


Helga:

Geggjað :)


almar:

Jæja, ég er farinn í loftið á leið til Reykjavíkur .. :O
Wish me luck :)


Helga:

hvenar hvarfstu af djamminu í gær?? öss öss


thelma:

almar hvernig var bærinn

jafn gaman eins og þegar við tökum hann?! fótbolti og piparsleikjóar, tekíla inn á milli og sætaferðir frá select?! komið við og klifrað á styttur, jafnvel fengið 1-2 símanr hjá strákum á röltinu.. sungið boðið í partý, helgha hözzlandi svertingja, mmm.. ekki?!
stanslaust stuuuuð

ok núna langar mig heim svona sækó djömm gerast ejkki hérna án ykkar


karen lind:

BWAHAHAH ....ég heyrði í útvarpinu áðan að það væri verið einhver keppni um dans við nokkur lög og þar á meðal gimme more ......bíddu vorum við ekki búin að æfa hann eða var mér bara að dreyma hahhah


Almar:

Össs, já bærinn var alveg misheppnaður, partýið geðveikt, en maður týndi öllum í bænum og fór bara heim klukkan 3 einsog hálfviti :(

Hehe, já Karen, ég er búinn að skrá okkur í danskeppnina og panta 2 henson galla í stíl... við rústum þessu ;)


Helga:

nei ég er ekki að lesa rétt...right...hálf 3??? hvar er almar eilla??

Hvenær á að kasta myndunum inn???


karen lind:

hahahh gallar í stíl geggjað en hvernig á litinn...ég verð að hafa augnmálninguna í stíl og

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on september 18, 2007 1:30 FH.

The previous post in this blog was Danmörk.

The next post in this blog is Nissi mættur austur :).

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34