« Nissi mættur austur :) | Main | Dublin »

Allt tekur enda ...

Mynd2013sm.JPG

... á endanum :þ
En núna er maður búinn að vera hér í austurlandssælunni í mánuð og kominn tími á heimferð. Síðasti dagurinn minn er á föstudag og er stefnan að reyna laga eitthvað til á föstudagskvöldið og bregða svo undir sig betri fætinum og renna til Akureyrar á laugardaginn. Þar er nú vonandi að maður fái eitthvað djamm þar, hef núna sleppt úr heilum mánuði! Fyrir utan já þarna smá vinnudjamm um mánaðarmótin í rvk, en allavega nánast mánuð :) Ég á eftir að sakna þess að vera í stórri og góðri íbúð, og líka að vera í vinnu, hmmm. Núna er maður bara atvinnulaus, hvað gera bændur þá?? Vona að það fari að rætast eitthvað úr því. Ef ekki þá er illt í efni.

Í öðrum fréttum þá eldaði ég í fyrradag!! Það gerist nú ekki oft, nema það sé pizza eða burger. Fór í Bónus og í stað þess að taka pizzu, burger, pítu eða tacco ákvað ég að kaupa eitthvað ítalskt grísabuff, bara uppá spaugið. Mér leist ekkert á að hafa kartöflur með þar sem ég hef örugglega bara einusinni soðið svoleiðis og veit ekkert hvað þær eru lengi, þannig ég keypti bara franskar með, og hrásallat. Svo skellti ég fröllunum í ofninn í gær, og eftir svona 8 mín byrjaði ég að steikja gúmmelaðið. Svo alltíeinu ákvað ég að buffið væri til og franskarnar líka. Og þetta var bara svona ljómandi fínt, passlega steikt og franskarnar 100% líka. Ég held að ég sé siggi hall 2. Svo í kvöld gerði ég hakk og spaghettí, all dente hehe, hvítlauskbrauð on the side. Nenni samt ekki að ganga frá, eldhúsið er á hvolfi!!
 Mynd2001.jpg Mynd2011sm.JPG Mynd2010sm.JPG
Læt fylgja að vanda nokkrar myndir, ein er af blokkinni minni, svona er útsýnið á leiðinni heim, þetta minnir mig alltaf á lítið breiðholt, blokkir á hól :) Hægt að stækka myndir með því að smella á þær.

Stjörnuspáin er bara leiðinleg í dag, og illskiljanleg:
Vatnsberi: Þú vilt endilega vera nálægur einhverjum af yfirborðslegum ástæðum - að því er virðist vera. Dýpri ástæðan kemur seinna í ljós.

Comments (3)


Siggeir:

Oh þú ert svo duglegur Almar!


anný:

hæ hæ:) elda ég er nú varla að kaupa það hehe "minnir mig alltaf á breiðholtið??? ertu ekki örugglega á egs?? hehe kíktu í kaffi þegar þú kemur á ak... svo varstu nú búinn að lofa að passa..


thelm:

almó druslan mín

ég er svo innilega ekki sátt með þig þessa dagana..fniff!

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on október 17, 2007 10:11 EH.

The previous post in this blog was Nissi mættur austur :).

The next post in this blog is Dublin.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34