Já, 10:30 í fyrramálið verður tekið á loft í roki og rigningu frá keflavíkurflugvelli á leið til Dublin á Írlandi. Ég sem er ekki mikill aðdáendi flugs virðist bara vera fara ansi oft í rellurnar þessa dagana. Enda búið að vera mikið flakk á kallinum, enda svona flökkukall :þ Þetta er ekkert löng ferð svosem, næ 5 dögum og 4 nóttum, sem er alveg passlegt. Verður gaman að hitta Gunnu aftur, en það er svona tilgangur ferðarinnar, plús það að sjá borgina og landið. Hún ætlar víst með mig á grímuball, og ég á að vera snoop dog :o
Svo eftir Dublin fer ég að vinna í BT-Reykjanesbæ, nýja búðin sem opnar um helgina, en það verður bara tímabundið. Nú hefur lógoið verið slegið í gull, svo fínt er þetta orðið hjá þeim, ætti að koma í bæklingnum í dag. En spurning um að fara pakka fyrir ferðina, finna vegabréfið og svona ... reyndar er allt í töskunni minni enn síðan egilsstaðir-akureyri-reykjavík ferðarinnar, þannig að ég þarf bara að taka uppúr tösku það sem ég þarf ekki, stundum borgar það sig að vera svona helvíti latur.
Ahhh, ég sem ætlaði að vanda að birta stjörnuspánna mína af mbl núna, en rakst á þessa frétt efst á síðunni þess í stað, magasárið minkaði pínu við að sjá þetta. Nefnilega í síðustu 2 flugum þá hef ég haft fréttablaðið með og í bæði skiptin var flugslys á bls2, einmitt meðan maður er í flugtaki vill maður ekki lesa um það og sjá myndir. Spurning með að fá sér g&t í fyrramálið bara :)
En að lokum stjörnuspáin góða af MBL:
Vatnsberi: Að verða skotinn, heillaður eða ástfanginn gerir það að verkum að þú sérð mjög skýrt hvaða manneskja þú vilt verða. Það er gjöf til þín þótt ekkert annað gerist. - kannski verð ég ástfanginn í Dublin, hver veit :)