... stardate -317862.14 a.k.a. KFC-day. Já, mánudagar eru KFC dagar á þessu heimili. Erfið helgi að baki, Nokia kynning á föstudag og afmæli á laugardag, bæði kvöldin með opnum bar. Verst að maginn minn var ekkert á því að vera djamma neitt mikið, hann verður að herða sig fyrir næstu helgi, en þá er jólahlaðborðið í vinnunni, en það er ekkert minna en öll perlan handa okkur... dugir ekkert minna, enda eigum við örugglega eftir að eyðileggja hana hehe - gubba í gosbrunninn og svona :)
Ég hafði það af að fara út, náði öllum flugum og svona ;) - fór til london á miðvikudeginum 14. nóv, var með Ingu, sigga, öggu og óla, allt sólrúnargengið bara í flugvél, fyndið því við vorum öll hlaupandi útí vél, gerðum ekki ráð fyrir því hvað var rosalega langt í hliðið, samt var það bara númer 9, en langt var það. Ég ákvað að það væri alveg frábær hugmynd að stoppa 1 dag í london áður en ég héldi til Dublin, en um leið og ég kom uppúr subwayinu þá fékk ég bara menningarsjokk, það var svo pakkað af fólki þarna hja Kings Cross stöðinni að mig langaði bara að flýja heim aftur hehe, en það varði bara í svona 30 mín. Náði aðeins að eyða í london, fór í risa applebúð og fékk mér iPod Touch, hann er illa geðveikur, með snertiskjá, tölvupósti, neti, msn, video og bara allar græjur. Auðvitað búinn að modda hann líka. Á Íslandi er þessi vara með 38% vörugjöldum, 5% flutningsgjöldum og virðisauka 25%, þannig að hann var helmingi ódýrari þar, þessvegna lét ég það eftir mér. Maður mátti líka prófa hann í búðinni, féll alveg þegar ég opnaði síðuna mína í honum hehe, svo var líka svona salur með kynningu á græjunni. Tók taxfree nótu, en náði ekki að skila henni í dublin, það var lokað :o - Fimmtudagurinn var svo bara tekinn snemma, skoðað london og skellt sér svo í flug til Dublin. En það er staður sem er fínt að vera á, þarf endilega að fara aftur. Gunna fór með mig á pöbbaröllt á föstudagskvöld, allt svona gamlir ekta írskir pöbbar, og hún þekkir fullt af liði þarna sem við vorum með. Laugardagurinn var verslunardagur, þá var það Dundrum verslunarmiðstöðin, sú stærsta í Evrópu að mér er sagt, nokkuð stór var hún. Náði alveg að fylla 2 stóra haldapoka af drasli þar, í þessari Penny´s búð sem íslendingar elska ... ekki skrítið því verðin þar eru bara grín. Keypti 3 jakka, 3 peysur, 4 boli og nennti bara ekki að kaupa meira, og það kostaði 12 þúsund. Mjög þægilegt að hafa svona personal shopper með sér, því ég get aldrei ákveðið sjálfur what´s hot and what´s not ;) Kom mér gífurlega á óvart þegar ég fór í Tesco í þeirri verlsunarmiðstöð, fyrir þá sem ekki vita er það bara huge hagkaup, en það skrítna þar er að maður gat farið á sjálfsafgreiðslukassa. 
Maður semsagt afgreiddi sig bara sjálfur, skannaði inn vörurunar, viktaði grænmetið, setti í poka og borgaði svo bara vélinni, með korti eða pening. Og vélin gaf til baka með seðlum og klinki, eða kvittun fyrir kortið. Ótrúlega skrítið að svoleiðis geti virkað. Seinna um kvöldið var skellt sér í nýjan jakka og bol og kíkkað á klúbbana í dublin ... eða fórum bara á einn og vorum þar allt kvöldið, leist veil á þann stað. Skrítið samt að það var svona klósettmaður sem lét mann hafa handklæði og svona, maður þurftir alltaf að borga honum í klinki, en ég var alltaf að kaupa vodka redbull, hann gaf svo lítið klink til baka þannigað maður átti aldrei neitt ;) ... en það var alveg rakspírar og allar græjur hjá honum, svo sagði hann "god bless you sir" þegar maður setti eitthvað í dallinn hans. Svo tók ég engar myndir alla ferðina, var nú samt með epsoninn með í för, tók þessar 3 myndir á gsm símann í london bara + þessi eina af Gunnu fyrir utan klúbbinn góða, var að reyna senda hana heim til Freyju í mms, en það virtist ekki virka sem skyldi.. Sunnudagurinn fór bara í afslöppun, aðeins kíkkað út að skoða miðbæinn og svona. Svo var flugið 3 um nóttina heim, eða mánudagsmorgun. Aftur lenti ég í öryggistékki, núna útaf því að ég gleymdi að taka af mér úrið ... get svo svarið það að ég passa mig næst, því ég lenti líka í tékki á standsted á leiðinni til Dublin. Maður er misnotaður kynferðislega í þessu, get svo svarið það ;) ... ég var alveg grátandi í fósturstellingunni með þumarlinn uppí munninum að bíða eftir vélinni hehe, því það er leitað full vel! Mæli með þessu ;)
En rúsínan í pulsuendanum ( já, ég er orðinn sunnlendingur ) var þegar flugvélin frá DUB á leið til KEF sem var bara venjuleg Iceland Express vél, var að taxa eftir planinu á leið útá braut, en hún er svona steypt, þannig að það eru hossur og holur í henni og það hrundi plata úr loftinu á flugvélinni og lenti í gólfinu og maður sá bara einangrun og víra þarna, þetta var líka rétt hjá mér ... enda hugsaði ég með mér "góð flugvél maður" ... einmitt eitthvað sem flughræðslupúkinn vill sjá 1 mín fyrir takeoff. Flugþjónninn kom trítlandi mjög vandræðarlegur eftir ganginum og tók þessa plötu og fór með hana inn í enda og tróð henni inní einhvern skáp, hún komst nú ekki alveg, en hann lét það bara gerast hehe, úff þetta var svona you had to be there dæmi. Svo dottaði ég á leiðinni heim, og flugið var svo stutt að ég þekkti ekki KEF þegar alltíeinu vélin var að lenda .. ég hugsaði að sjálfsögðu " shitt, hún hefur bilað og við erum að nauðlenda í glasgow !!, eða henni hefur verið rænt !! " en neinei, þetta var bara keflavík. Ég neita því ekki að ég var ósköp feginn að komast svo bara heim og uppí rúm, þá var klukkan orðin 7 um morguninn. Ég var eitthvað búinn að gæla við þá hugmynd um að fara bara í vinnuna klukkan 11, en lét ekki verða af því :)

Talandi um vinnu, en þá er ég búinn að vera viku í BT-Akranesi, það er bara fínt, gaman að flakka svona, veit að nissi er ekki sammála því, en ég er alvega að fíla það. Mánuð á Egilsstöðum, 10 dagar í Keflavík, og núna Akranes. Bíð svo bara eftir því að nýja vinnan mín byrji, en það verður í fyrirtækjaþjónustu BT í skeifunni 17. Það verður spennandi að prófa það.
Jæja, best að fara athuga hvað sé í sjónvarpinu, en hvernig get ég kvatt án þess að skella stjörnuspánni inn sem passar næstum því alltaf við mig :) (djöfull er nýji mbl slow eitthvað)
Vatnsberi: Vanalega æsir þú þig ekki út af smámunum, en núna fara vissar upplýsingar í taugarnar á þér, svo þú veltir þér upp úr þeim þar til þú kemst að niðurstöðu.