
Pant´ekki!! hafa verið í þessari vél frá Egilsstöðum sem þurfti að slökkva á öðrum hreyflinum í miðju lofti vegna falls á olíuþrýstingi og missti svo líka jafnþrýstinginn í farþegarýminu. Og ekki að það sé nógu slæmt að vera þarna uppi í roki og ókyrrð á einum hreyfli þá þurfti að neyðarlækka flugið. Og á meðan er flugfreyjan í hátalarakerfinu að segja aftur og aftur að fólkið eigi að búa sig undir neyðarlendingu á landi :O .... ég er alveg 100% á því að ég hefði ekki lifað þetta af, þó svo að vélin gerði það og allir farþegarnir. Hefði ég nefnilega ekki fengið hjartaáfall á staðnum, hefði ég örugglega rifið upp hurðina og stokkið út, í 15 þúsund feta hæð! Mér finnst vera orðið svo mikið af svona "smá"óhöppum í lofti hérna, enda þessir fokker50 garmar orðnir hundgamlir, viss um að talan 50 stendur fyrir árgerðina 1950, frekar en að vísa í að hún beri 50 manns, eða hvað sem það er. Svo ofaná allt ef KEF óöruggasti flugvöllur í heimi fyrir neyðarlendingu ef kviknar í, gaman að því. Það verður nóg að hugsa um í þessum 3 flugum sem ég er að fara í eftir viku ... ef ég næ vélunum hehe.
Svo er stjörnuspáin bara alvarleg í dag, og passar ótrúlega vel:
Vatnsberi: Fylgdu reglum og vertu var um þig. Huga verður að minnstu atriðum þegar kemur að viðskiptum og eyðslu. Smáa letrið leynir á sér.
Comments (5)
litli pési minn ;)
flughræddi dúd
til allra lukku varstu ekki í flugvélinni, yrði fúlt að missa almó drusluna mína
:)
PARTÝ Í KVÖLD!!
Posted by Thelma | 10. nóvember 2007 kl 15:56
Hei gaur!! á ekki að fara að henda nýjum myndum eða ætlarðu að eiga afmæli við þetta??
Posted by Helga | 10. nóvember 2007 kl 17:33
já fínt
Posted by thelma | 11. nóvember 2007 kl 15:43
Jæja, nýju myndirnar eru komnar inn.
Posted by almar | 12. nóvember 2007 kl 23:33
díses almó..
þetta eru svakalegar myndir
á hvaða stigi ölvunar var maður eiginlega á?
Posted by thelma | 13. nóvember 2007 kl 00:32