Jæja, þá fer maður í NÓTT!! ... eða bara á eftir í leifsstöð, til að skella sér út. Ég er búinn að fara 7x yfir miðan og skoða textavarpið 2x ... flugið er semsagt klukkan 07:15, leiðréttið mig ef það er rangt :) - og ég ætla að mæta 06:15, ekkert að gera þangað fyrr.
Express setur þetta þá allavega almennilega upp, merkt og svona, ekki eitthvað allt í einni runu sem maður skilur ekki ;) - Gott líka að að maður er merktur KARL! svo það fari ekkert á milli mála líka hehe.
En það verður einn dagur í London á morgun, og svo Dublin á fimmtudag .. fæ svo að fljúga beint heim með plúsferðum þaðan á mánudagsmorgninum.
Ég gerðist svo bara góður á því og fékk eitthvað sem heitir sobril, til að auðvelda mér förina, en það er eitthvað kvíðastillandi og róandi, þannig að ég mun brosa alla leiðina niður í haf, ef það gerist ... vona bara að þetta virki ekki of veil eða lengi að ég verði í standsted "no, you can drive your train to london, I´ll just walk it" hehe. En verður samt vonandi þannig að maður geti bara slappað af í vélinni og verði ekki að hugsa um hvert einasta hljóð eða hreyfingu sem hún tekur. Annars held ég að þetta sé nú að vaxa af mér.
Vatnsberi: Það er hægt að leggja hart að sér án þess að fá borgað eða ganga í augun á fólki. Hentu hugmyndum þínum um áreynslu og vertu galopinn fyrir nýjum hugmyndum.
Comments (3)
góða ferð almar ...ef þú náir fluginu hehe.....og ég tek þig á orðinu með afmælisgjofina ;)
já og svo bið ég að heilsa gunnu
Posted by karenlind | 14. nóvember 2007 kl 10:27
haha, jamm mér tókst þetta núna, er að missa mig í humungus apple-búð í London núna, held að iPod Touch verði fyrir valinu, vona að það verði eitthvað afgangs fyrir gjöfinni þinni :þ
Posted by almar | 14. nóvember 2007 kl 13:50
jæja
komstu á áfangastað eða situru í nizza étandi nizza.. ;)
vona að þú hafir farið á réttum tíma í leifstöð núna...
Posted by thelma | 15. nóvember 2007 kl 00:34