« jolin koma .. | Main | Hva.. jólin bara búin? »

3 dagar til jóla

funny_xmas_card_20006.jpg Össs, þetta verður búið áður en maður veit af. Ég á bara eftir að klára daginn í dag, stuttan dag á morgun og ég er kominn í massajólafrí alveg til 2. janúar. Enda hlakkar mig mikið til. Í kvöld ælta ég að lesta nissa með jólapökkum, farangrinum mínum og fullum tanki að þotueldsneiti, nissi gengur ekkert á venjulegu bensíni, það er bara fyrir venjulega bíla. Ég gekk svo langt að ég er meiraðsegja kominn með miða í göngin:) - Verð búinn að vinna klukkan 16:10 á morgun laugardag og ætla verða mættur í partý á Akureyri ekki seinna en 10, sé ekki fram á annað en það takist.
Ragga er í jólafríi, þannig að þetta blogg er ekki lesið upp, hehe. En það er enginn búinn að dásama jólaskreytinguna á forsíðunni hjá mér, þar var öllu tjaldað til. Einsog Kristrún kennari sagði við mig í gamla daga, þegar hún var að kenna mér myndmennt "þú byrjar oft mjög vel, en svo einhvernveginn veistu ekki hvenar á að hætta!" hehe ... orð að sönnu. En er samt stolltur af forsðunni, þar er að finna 2 javascript, 3 gif hreyfimyndir og þetta frábæra jólalag hljómar undir.
Svo er það jólagjafir í kvöld, IKEA í 3 skiptið í röð, alveg að fíla kjötbollurnar, maður verður að reyna ljúka þessu af, annars hefur maður nú þorláksmessu á Akureyri, milli skötu og þynnku ætti að vera hægt að koma einhverju í verk.

Hvað segir stjörnuspáin eiginlega, sem ég held að sé ætið sérskrifuð bara fyrir mig:
Vatnsberi: Hvergiland bíður þig velkominn í dag. Erfiðast er að bíða - notaðu tímann og gerðu eitthvað fyrir sjálfan þig. Ferskt loft getur gert kraftaverk. Opnaðu dyrnar og farðu út.

Comments (3)


karenlind:

haahah þó að Ragga sé í fríi þá byrjar maður bara ósjálfrátt þetta eins og hún að lesa þetta hehhe.....en já almar það verður sko stuð hér í bænum...og djammkaren er að brjótast út enda tvær vikur síðan hún sást síðast


baddy:

já svei mér þá ef maður saknaði ekki bara röggu! hehe


almar:

Haha, já, spurning um að hringja í Röggu og gá hvort hún nenni ekki að lesa þetta inn ;)
Sjáumst svo í kvöld, helmökkuð :)

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on desember 21, 2007 2:09 EH.

The previous post in this blog was jolin koma ...

The next post in this blog is Hva.. jólin bara búin?.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34