« Perluriða | Main | 3 dagar til jóla »

jolin koma ..

bell5V.gif .. og allt er gaman þá, er það ekki einhvernveginn svona? :) En það er farið að styttast óðfluga í jólin, 10 dagar heldég að það sé núna. Ég er aldeilis búinn að vera dekra við Nissa, svo hann fari ekki í jólaköttinn. Fékk handa honum nýjann rafgeymi, nýtt stefnuljós, lét laga pústið og er að fara skipta yfir á naglana í fyrramálið, svo hann ætti að vera fær í norðurferð fyrir jól. En ég stefni á að bruna á laugardeginum 22. des til Akureyrar, hvort sem ég verð að vinna til 16:00 eða í fríi þann dag. Planið var svo að reyna ná djamminu um kvöldið, það er ekkert ósennilegt, veltur allt á nissa, guð og veðrinu. Sjalladagskráin fyrir norðan er ansi góð, ég var búinn að hugsa mér að nú færi maður ekkert í sjallann lengur, en hún er bara svo góð, að ég verð þarna í góðum gír með öllum maurunum bara :) ... annars hefur mér alltaf fundist vera allur aldur á þessu svona um jól og páska, ég tel mér trú um það. Það verður gaman að fá loks þarna smá tíma fyrir jól til að klára sitt, hef alltaf verið að vinna einsog mother#%"# alla daga til jóla, sérstaklega 23.des, og veit ekki hvernig lífið er utan við BT á þessum tíma. Það er enn verið að leita af manni til að leysa mig af milli jóla og nýárs, en það hlýtur að hafast, annars er illt í efni, ég neni ekki að vera í Reykjavík um áramótin. Svo er að detta inn helgi, búinn að bíða lengi eftir því, fór nefnilega ekkert á djammið síðustu helgi, þannig að vikan hefur verið lengi að líða. Stefni á nýdanskar ball á Nasa á lau, fór síðast fyrir um mánuði síðan, mætti svo seint að ég náði bara 15 mín .. hmm .. good times.
Hey já, í síðustu færslu talaði ég um sjálfsafgreiðslukassana í Tesco (every little helps) hvað þeir væru svalir .. en viti menn, er þetta ekki komið hingað uppá sker. Ég fór í krónuna á bíldshöfða í gær og þar voru komnir 2 svona kassar, alveg einsog í tesco, nema bara al-íslenskaðir. Ég nátturulega varð að fara í þá. Mér gekk nú erfiðlega að skanna inn muffinsið mitt og þurfti að fá smá hjálp, en tók eftir því að kassinn talar svoltið hátt. Væri ekki gott ef einhvar vildi kaupa sér eitthvað neyðarlegt einsog smokka eða eitthvað og ætla sér með þetta þangað því kassinn væri bara "LESTU INN STRIKAMERKI VÖRUNNAR" ... "SMOOOOKKKARR, EXTRA GÓÐIR MEÐ KÍTLI - 459 KRÓNUR" hehe, það væri smellið. Þarna var reyndar öðruvísi en í tesco, því að afgreiðslu lokinni þarf maður að láta starfsmann búðar fá slippa sem kassinn prentar út, held að það sé betra fyrir íslendinga sem munu pottþét reyna svindla á þessu .. "óóó las það ekki merkið á dýrustu vörunni" bell4R.gif

Eníhú, best að hafa þetta bara stutt að þessu sinni, hef fengið sent kvartanir á löng blogg :)
En hvað er blogg án stjörnuspáarinnar minnar, ég hef nú ekki lesið hana enn, fer blint í sjóinn með þetta.

mbl.is
Vatnsberi: Þú sérð betur í gegnum lygar en lygamælir - þú spyrð réttu spurninganna og kannt að hlusta. Þú getur komist hjá vonbrigðum með því að bregðast við eins og þér er eðlilegt.

- össs, mar er bara einsog James Bond


Nýtt á hrollinum!! Ragga!
Fyrir þá sem nenna enganveginn að lesa sjálfir :)

Comments (12)


birkir:

mér fynnst þú æðislegur!
er þetta lygi eða ekki bond?


almar:

haha, þetta getur bara ekki verið neitt annað en heilagur sannleikur ;)


Siggeir:

Shit hvað þessi upplestur er óþolandi! Spurning samt hvort maður setji þetta ekki inn líka svo Gunni geti lesið bloggið hjá manni :)


Helga:

díses hvað það er ekki gaman að hlusta á þessa upplestrunar rödd...ekki að gera sig skooo


almar:

Já, þetta er ekki skemmtilegt til lengdar, var bara smá tilraun. Gerði þetta aðallega svo Gunni gæti lesið bloggið, ekki bara skoðað myndirnar, hehe
Spurning með að slökkva á "autostart" :)


Rúnki:

shit þetta var ógeðslega fyndið :)

Hvað næst almar.. podcast?:)


anný:

almar minn þú ert ekki alveg í lagi.. hehe segi nú samt eins og rúnki shit hvað þetta er fyndið hehe


ernir:

Líst vel á hana Röggu. Held hún sé það besta sem hefur komið fyrir þig.


baddy:

hahah ég og mamma vorum að hæja yfir þessu meðan við vorum að pakka inn jólagjöfum, bara snilld!...sérstaklega hentugt fyrir þá sem þurfa að gera margt í einu!


thelma:

kerling að lesa fyrir þig?
gastu ekki lesið þetta með smá innlifun?

;)


Kristjana:

hahahahahahahahahahaha shit ég er að míga á mig hérna hahahahahaha þessi rödd er æði haahahahaha og les líka stafsetningarvillurnar ahahahhahahaha ÆÐI
þú ert snillingur:-)


Gunni:

hey almar hann siggeir setti röggu inn á síðuna sína til að lesa upp bloggið hans en hún gafst upp af því það var svo langt.

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on desember 14, 2007 1:02 EH.

The previous post in this blog was Perluriða.

The next post in this blog is 3 dagar til jóla.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34