« Captain's Blog: | Main | jolin koma .. »

Perluriða

perlan-flyby.jpg Maður skellti sér í perluna um helgina, eða á föstudaginn. Það var jólahlaðborð hjá Árdegi, alveg heví flott, Sveppi og Jói voru veislustjórar, Simmi átti víst að vera í stað Sveppa en komst ekki. Kom sér bara vel því Sveppalingurinn var helvíti fyndinn. Það var fullt af atriðum einsog Rúnar Júl, Hara systur og fullt af dóti sem ég man ekki eftir. Hló mig alveg máttlausann þegar Sveppi var að segja einhverja sögu um eiturlyf, man ekki alveg hvenig hún var, en endaði á því að hann sagði "og talandi um eiturlyf, þá er einmitt næsta atriðið okkar Einar Ágúst, jeiii" haha, og Einar mætti á sviðið bara "ehh, takk fyrir það .. ég er samt hættur" ... var mjög fyndið. En flestir kannast við sjóriðu, og jafnvel flugriðu ?? (ef það er til) ... fjölskyldan mín stríddi mér mikið í æsku þegar ég sagðist vera með bílriðu, við værum búin að keyra svo lengi! (var 10 ára eða eitthvað) En um helgina fékk ég perluriðu hehe, en það er nýtt sem maður fær að sitja of lengi að sumbli á snúningsgólfinu. perlan-inni.jpg En mér var farið að líða illa bara á því. Svimar líka alltaf eftir lyftur og rúllustiga. Einhverjir verða að sjá um það að vera spes í þessum heimi :) ... en það var einmitt lyfta upp 5 hæðir þarna og snúningsgólf =perluriða. Mjög fyndið svo hvað allir fóru að rífast um í hvora áttina gólfið væri að fara þegar það byrjaði að snúast, það virtist enginn fatta það almennilega.. ég átti samt kollgátuna á mínu borði og stóð fastur á því að það væri að fara réttsælis, sem það svo var. Takk fyrir takk. Svo kíkkaði maður aðeins út líka á laugardaginn, bara svona af því að það var enn helgi og svona, ekkert betra að gera. En næstu helgi verður maður bara rólegur, enda vinna á laugardag og svona... og svona :)

Vatnsberi: Stofnaðu skjal með öllum uppáhalds draumunum þínum, og kíktu oft á það næstu þrjá daga. Hin loftmerkin, Tvíburar og Vog búa yfri visku handa þér.

...sénsinn :)

Comments (10)


anný:

ég hef einmitt verið þarna í perlunni og það er frekar óþægilegt að sitja lengi þarna og standa síðan upp.. þannig að ég skil þig vel gamli minn...sérstaklega kannski þegar ölið er við hendina eða annar góður vökvi


Thelma:

haha þú ert nu meiri auminginn, fyrsta skiptið sem þú dettur í það í perlunni eða? ;)

Dúllurassiiiinnn minn.. þetta var magnað helvíti


Almar:

Já, ég hef ekki verið mökkaður í perlunni áður ;) ... held samt að ég hafi borðað þar áður, minnir það. Ætli engir aðrir hafi fengið perluriðu??


thelma:

já hvað var ég að hugsa

þú ert alltaf mökkaður! ;)

Hvað ætlum við að gera næstu helgi?


almar:

Er það ekki dansleikur?? Ég hebbði nú haldið það ;)


Birkir:

hvenar kemurðu norður drullubaukur?


almar:

Stefni á að mæta á norðurlandið 22. des ... held að það takist alveg.


Helga:

partýinu á laugara er aflýst,Almar hvað gera menn þá!!!!??


almar:

Við deyjum ekki ráðalaus. Förum við ekki bara eitthvað annað ? :)


thelma:

hvað með.. einu sinni heima hjá þér

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on desember 3, 2007 11:45 EH.

The previous post in this blog was Captain's Blog:.

The next post in this blog is jolin koma ...

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34