Samkvæmt bloggkerfi mínu er þetta 30. færslan sem ég set hérna inná www.hrollur.net. Hugsa sér að maður geti skrifað 30 færslur um ekki neitt, í lífi sem er alltaf eins ;) En jújú. I dag er laugardagur og í kvöld er ég að fara í gleðskap og svo dansleik á eftir, eða einsog maður segjir á 21. öldinni partý og ball ... sumir sunnlendingar kalla þetta tónleika :O ... en þeir eru líka svo vitlausir. Það er alveg vonlaust veður úti, það verður ekki gaman að bíða eftir leigubíl og svona í nótt. Og mikið svakasvkasvakalega leiðist mér að skafa nissa á morgnanna. Í morgun var svo mikið kóf ofaná bílnum sem fauk framaní mig meðan ég djöflaðist á rúðunum, og loks þegar ég hélt að þetta væri orðið fínt og settist inní bíl, þá tók við önnur umferð af sköfun, núna innaná rúðunum! Bara í Reykjavík gerist þetta að maður þurfi að skafa endalaust báðumegin. Svo keyrir maður í vinnuna og bílinn rétt nær að hitna, nóg samt til að bræða hrímið sem maður skóf innanaf framrúðunni og aðeins af rúðunni sjálfri, en bara til þess að gufan af því myndi helmingi meri ís á rúðuna en var um morguninn ;( ... jæja, hættur að velta mér uppúr því, maður má nú samt kallast heppinn ef þetta er það leiðinlegasta í lífinu að skafa bílinn sinn, þá hlýtur maður annars að hafa það gott bara. Í góðum fréttum er það helst að það getur verið að ég sé að fá leiguíbúð á viðráðanlegu verði, væri þvílíkt til í að komast í eitthvað íbúðarhæft án þess að setja öll launin mín í það. En Svanur bróðir mömmu lét mig vita af þessu að kunningi hans væri að leigja út neðrihæðina hja sér, og ætlaði ekkert að okra á því. En þetta er uppí seljahverfi í breiðholti, fínt að vera þar, en svoltið mikið lengra í vinnu og svona. Vona bara að þetta gangi eftir, svo ég geti farið að halda partý og svona ;)
Ps. var að setja inn myndir af skíðaskálagleðinni, en sit enn á jóla og áramótamyndunum, veit ekki hvort þær eru hæfar.
MBL spáin mín í dag:
Vatnsberi: Allir geta reiðst, en í dag gerirðu nokkuð ótrúlegt. Þú verður reiður við réttu manneskjuna af réttum þunga og það mun skila sér í réttum breytingum.
.... össs, hasar í kvöld ??
Comments (3)
Það er öllum hollt að reiðast og þá við réttu manneskjuna.... farðu bara ekki mannavillt, það er ekki eins hollt.
Skemmtu þér í kvöld, ég geri það sem einn kaffibletturinn....
Posted by freyja | 19. janúar 2008 kl 20:37
þú ert svakalegur
...
hlakka til að fá þig í gettóið og þú getur loks haldið teiti..
en hvað var málið með dansleikinn
hvaða beil
ha
hver beilaði?
ÞÚ OG HELGA !!!
díses
bitur
djamm á morgun
hell yeah
Posted by thelma | 26. janúar 2008 kl 01:10
eeeeeeeeyyy!!!
líst vel á neðrihæðina... láttu vita hvernig það mál fer!
Posted by gunna | 27. janúar 2008 kl 21:31