Einsog það var nú gott að vera í jólafríi þá rétt náði það að vega upp á móti jólastressinu, spurning með að byrja á pakkadæminu aðeins fyrr á næsta ári ;) En þetta er loksins að verða búið, ef mínir útreikningar eru réttir þá verður jólunum hringt út á sunnudaginn. Þá verð ég reyndar timbraður ... ha? timbraður?? segja sumir hehe, en jájá, það er 13. fögnuður í vinnuni, það er árlegt djamm sem er haldið í skíðaskálanum í hveradölum. Það stendur alltaf fyrir sínu. Vísu hef ég nú aldrei verði ofuránægður með matinn þar, svoltið mötuneytislegur og finnst mér að það ætti að sleppa honum og kaupa áfengi fyrir allan peninginn bara. Hvissast hefur út að Páll Óskar verði að skemmta þar, en það á eftir að koma í ljós. Veit reyndar ekki hvernig fílingurinn verði að hafa Pál Óskar í svona fínu timburhúsi, með engum diskóljósum og fyrir miðnætti. Tala nú ekki um ef hann mætir í rasslausu leðurbuxunum sínum ;) ![]()
Nissi er enn á lífi, og ferjaði mig suður sem aldrei fyrr, reyndar er komið ískur í vélina, sem kemur oft í nokkra daga eftir langkeyrslur, held að hann sé bara að kvarta. En ég er svo mikill vélvirki að ég held að þetta sé tímakeðjan, hún sé að ískra í sleðanum sem heldur henni, enda breytist gangurinn þegar þetta kemur ... og held ég líka að við þann núning gæti hún örugglega slitnað á endanum, og þá er nissi dáinn!
Eftir vinnu í gær fanst mér góð hugmynd að fara bara í kringluna, kaupa í matinn og svona, víst að jólaörtröðin er búin ætti það ekki að vera neitt mál .... EN JÁJÁ, góðan daginn, það var örtröð í kringlunni! Sem maður fattaði ekki fyrr en maður komst 5 metra inní bílastæðahúsið, þar sat maður svo fastur í 15 mín, því það voru engin stæði laus, og allir biðu bara eftir stæði. Ég samt á þrjóskunni gaf mig ekkert fyrr en ég fann stæði, víst ég var nú kominn þangað á annað borð, og var það stæði svo langt frá að ég var kominn hálfa leið heim (bý í 10 mín göngufjarlægð). Og inni var þetta geðveiki! Bara einsog það væri Þorláksmessa. Ég líka sleppti því í snarhasti að skoða þessar útsölur og fór bara í bónus ... þar sem vinnur enginn íslendingur. Og verslaði fyrir 6 þúsund fyrir mig einann :) ... ég tæmdi alveg ískápinn fyrir jól, en hann er smekkfullur núna. ![]()
Var mjög fyndið þegar ég var kominn á kassann, þá var búið að loka, en það kom einn gaur inn um útganginn því hann var með disk sem hann vildi skila og var á síðasta skiladegi. Hann kom og spurði hvort hann mætti ekki bara skila einum diski þó það væri búið að loka? Og konan á einum kassanum var bara: tjsní brúkkó nímó lokað! lokað! Þannig að hann fór á næsta því hann skyldi ekki neitt, en þar var strákur sem sagði: brúttó, níkó njet .. da is closed! Og strákgreyði var bara: hvar er ég? Talar enginn íslensku hér? Þá kom 3já manneskjan: yes, a little bit, og náði að sýna honum frammá að á skilamiðanum stóð "skilið fyrir 6. jan" en það var bara 3. En ótrúlegt að það skuli ekki vera neinn íslendingur þarna! Allavega ekki á þessu tíma sem ég var. En það böggaði mig svosem ekkert svakalega.
Vatnsberi: Ástaryfirlýsingar og önnur loforð koma til sögunnar. Þú ert vantrúa, en tekur sönsum ef þú færð smá sönnun. Ráð: Það mun reynast betur að trúa.
... úúúú saucy!
Comments (4)
þú ert svo spes!
Posted by thelma | 5. janúar 2008 kl 12:28
á ekkert að blogga um síðasta ár? já eða hversu yndisleg jólin voru?? þá er ég nú sérstaklega að tala um ákveðið matarboð.... hehe p.s. ertu hættur að fara í krónuna og gera góð kaup??
Posted by anny | 6. janúar 2008 kl 08:51
almó.. í alvöru, jólin eru löngu búin og hvar eru myndirnar?!
Verður eppi frændi með oss áms??!!
Posted by thelma | 15. janúar 2008 kl 11:21
Blogga um síðasta ár? .. ég er löngu búinn að gleyma því ;) ... en ég man nú samt eftir matarboðinu góða, enda klikkaði það ekkert. Já, ég afneitaði krónunni vegna þess að það eru ekki svona handkörfur þar, bara kerrur ... ekki séns að ég versli inn með svona vagni, þannig ég geri bara kaupin annarstaðar ;)
Posted by almar | 17. janúar 2008 kl 17:14