« janúar 2008 | Main | mars 2008 »

febrúar 2008 Archives

febrúar 10, 2008

Jaaaahérnahér ...

Þetta er víst einhver fáni fyrir amsterdam ?? Góðan daginn og gleðileg jól! ***Vara við langri færslu hér á eftir!! Mjöööög langri!!
Ég tók uppá því um helgina að skella mér til útlanda, án þess að segja hvorki kóngi né prest frá því. En mamma og Edda systir voru á leið til Amsterdam, í heimsókn til Máa bróður og fékk ég alltíeinu þá flugu í hausinn að skella mér bara líka, sem ég og gerði. Alltílagi með það, enda var mjög gaman og ljúft úti, ekkert djammerí, fullmikið verslerí og nóg af afslöppun. Og það værði ekki illa um okkur í þessu stóra fína hús þeirra þarna úti, og svo höfðum við bíl líka. Nema hvað, ég vissi ekki að það væri eitthvað veður á leiðinni, mamma var nú eitthvað búin að segja mér að það væri eitthvað leiðinleg færð á leiðinni frá Akureyri en ég gerði nú ekki mikið úr því. En svo á fimmtudagsmorgun klukkan 5, þegar við lögðum í hann, þá var bara allt komið í kaf! Ég hef bara ekki séð annan eins snjó hérna í borginni, það hefði ekki einusinni verið nissa-fært í Leifsstöð, sem betur fer vorum við á jeppa og komumst þetta. Bílnum var svo lagt í miðjum skafli á stæðinu þar, enda hugsuðum við að það verður sennilega vesen að ná honum út aftur hehe. svona keppnis vindmilla En ég hugaði með mér: iss smá snjór, það hlýtur nú að vera vel mokuð brautin og svona .. en svo eftir klukkutíma í Leifsstöð þá fór að hvessa ansi mikið, og kófið var það mikið að inná panorama barnum sá maður ekki lengur í flugvélarnar við landganginn ... þá var mér ekki alveg sama lengur og fór að pæla í hvað ég hefði komið mér í ?? En eftir 2 róandi :) þá lét ég mig nú hafa það. En úff, þegar við löbbuðum niður "ranann" í Valdísi (sem var flugvélin okkar) þá fór maður að finna hvað það væri hvasst, því hann ruggaði frekar mikið, og aftur þá hristi ég bara höfuðið og lét mig hafa það. Svo þegar í vélina var komið tók við þvílík bið, því þeim gekk svo illa að lesta vélina í veðrinu og líka var bið eftir heimild til flugtaks í þessu aftakaveðir frá einhverri evrópuflugstjórn! Já! Svo þurfti að afísa vélina og eitthvað. Ég skil ekki hvernig ég lifði af þessar 90 mín sem seinkunin var, fastur í flugvél sem ruggaði einsog bátur í brælu, og þá var hún ekki lögð af stað enn. Til mikillar lukku þá lægði nú helling á meðan beðið var og flugtakið bara mjög ljúft, án nokkurs hristings eða neitt. Vélin stakk sér bara uppfyrir þetta strax og var svo smooth sailing alla leið til Hollands, þar í logninu og blíðunni kom smá ókyrrð, ekkert slæmt svosem. Í lendingunni þar finnst mér einsog vélin hafi sprengt dekk, ég reyndi að skoða það útúm gluggan á flugsöðinni en sá það svo sem ekki :) ... mér fanst bara koma svolítið högg á vélina þegar hún hlammaðist niður, svo þegar hún var að taxa eftir brautinni þá hoppaði hún svona með jöfnu millibili, einsog um sprungið dekk væri að ræða. Þá var maður orðin alveg uppgefinn á svefnleysi og stressi, gat ekkert sofið nóttina áður og svona, en hugsaði samt með mér að núna hefði ég farið í flug í verstu skilyrðum og það var bara alltílagi, þannig að kannski væri ég ekkert flughræddur lengur.

Við náðum nú ekki mikið meiru en einum Mcdonalds á fyrsta degi, þreytan var þvílík að við fórum bara heim, aðeins horft á sjónvarpið og ég sofnaði bara um 8 í öllum fötunum með tölvuna á maganum. Mái lánaði okkur bílinn, því þegar við komum þá voru þau ekki heima, hann var á Íslandi og Helena var að fara til Kaupmannahafnar. En þílíkt kúl, því það var svona GPS tæki í honum, þar var allir staðirnir sem við þurftum að fara á í minninu, þannig að þetta var ekkert vesen, keyrðum bara þangað sem við vildum og GPS-inn sá um alla vinnuna. "keep to the left and turn left in 200 meters" .. "try to take a U turn if possible" sagði hún stundum þegar við fórum of langt :)

Húsið sem við vorum í Herbergið mitt í risinu

Ég ætlaði nú ekki að versla neitt, bara fara og kíkja á þetta, en annað kom nú á daginn. Kom heim með troðfulla tösku af fötum. Peysur, buxur, boli, jakkaföt og skó, allt í fleirtölu! .. nema jakkafötin sem betur fer. Ég missti mig alveg í versluninni þarna, enda mikið til og góð verð. Þetta var svo fyrsta ferðin mín lengi sem ég hef ekkert djammað í. Fékk mér 2 bjóra á laugardagskvöldinu og sofa fyrir 1 hehe. En það var bara góð tilbreyting myndi ég segja. Við skoðuðum Amsterdam hátt og lágt, líka Haarlem sem er svona næsti bær við hliðina en við bjuggum í 3 bænum sem ég man ekki alveg hvað heitir. En þetta var svona úthverfi Amsterdam. Einn bærinn þarna heitir Alkmaar, það er örugglega kúl bær :)

En svo á föstudagskvöldinu fór ég að heyra af því að veðrið væri að verða alveg nutts í Reykjavík, það slæmt að fólk ætti að halda sig inni bara. Dýpsta lægð vetrarins. Þá fór ég að fá nett magasár yfir disknum sem ég er með úti, því hann er ekkert rosalega öflugur og hannaður fyrir spænskar aðstæður, enda keyptur á Benidorm. Ég loggaði mig inná serverinn heima og kíkkaði á stöðuna og sá að það voru komin skilaboð: No satellite signal is being received. Og ekki skánaði magasárið við það. Diskurinn sjálfur kostaði undir 5000 krónum og var mér svosem sama um hann, það var bara spurningin hvar hann myndi lenda ef hann fyki. Og þá datt mér helst í hug glugginn minn, glugginn hjá nágrannanum eða einhver flottur bíll útá stæði. En engir af þeim valkostum þótti mér físilegir. Ég fylgdist alltaf með fréttunum á visi sem sögðu að allt væri að fara til fjandans þarna, 200 útköll, allt laust að fjúka, þar með talið gervihnattadiskar, ég logga mig aftur inn í von um að það sé eitthvað merki svo ég viti að hann sé ekki farinn ... þá næst ekkert samband við netþjóninn, og routerinn svaraði ekki einusinni "pingi". Þá hugsaði ég líka bara .. já fínt, já sæll, já fínt já fínt já fínt já sæll já FÍNT! :) hann hefur örugglega bara húrrast í gegnum gluggann minn, og allt dótið mitt bara ónýtt og svona. Meira um það síðar.

Þetta er nú reyndar dreamliner vél, næsti bær við alltaf gott að afísa blessaðar vélarnar :)

Svo líður að heimferð, og var mig nú farið að kvíða svoltið fyrir aðkomunni heima hjá mér, en ekki einsmikið fyrir fluginu, því það var heiðskýr himinn, logn og blíða, bara alveg topp veður. Það voru ekki ómerkari menn í vélinni en B*arni Ár*ann$ (stjörnur svo það googlist síður:) ..maður hefði haldið að svoleiðis menn sem velta milljörðum myndu splæsa í sagaklass með sig og sína fjölskyldu, en neinei, hann sat bara í þröngu vondu sætunum aftast í vélinni og var bara sáttur með það, og saga-class var bara tómt, maður heyrði nú samt konuna hans eitthvað tuða yfir þessum almúgasætum. En ég samt hélt að nú færi sennilega ekkert úrskeiðis í þessu flugi ... en að sjálfsögðu hefði það aldrei gengið fyrir mig. Eftir óeðlilega langa bið í vélinni án þess að fara af stað þá kom í kallkerfinu "góðir farþegar, Guðbjörg heiti ég og er flugstjórinn ykkar í þessari ferð" .. jájá kona! Svo sagði hún "það er smá bilun í olíukerfi annars hreyfilsinns, og ætlum við að kalla út tæknimann til að líta á hann áður en við leggjum í hann". Þá var mér öllum lokið (ef ég fer rétt með málækið) Ég byrjaði að sjá fyrir mér flugstjórann sem einhverja ljósku sem væri þarna frammí í talstöðinni að segja "vifturnar á þessari flugvél eru eitthvað skrítnar, þar snúast ekki" og olíu frussast útum allt, sem myndi svo að sjálfsögðu kvikna í :) ... en eftir klukkutíma seinkun þá var drifið sig af stað, skýringin var að það hefði bara verið einhver auka olía inní hreyflunum sem var svo bara þurkuð upp .. ekki mjög hughreystandi að vita til þess að olíupollur sé að safnast fyrir í hreyflinum sem gæti svo kviknað í hvenar sem er. En útaf áhyggjum af híbýlum mínum, gervihnattadiski og 2 róandi, þá hugsaði ég bara "fokkit, lets gó" Enda gekk flugið bara vel alla leiðina heim, án vandræða. Að sjálfsögðu var kallinn tekinn fyrir í tollinum. Þeir höfðu engan áhuga á því sem ég keypti í fríhöfninni, vildu bara gegnumlýsa töskurnar mínar, en þar var nú ekkert ólöglegt að finna og ég fór í gegn.

Skaflinn sem við lögðum í við Leifsstöð hafði bráðnað og var bíllinn bara laus og liðugur, og byrjaði ég strax að kvíða fyrir því að sjá hvernig um væri að lítast heima hjá mér. Varð ég strax mjög kátur þegar við keyrðum niður Stóragerðið og ég sá að diskurinn var á sínum stað, hann hafði bara bara snúist um 2 - 3 gráður og misst signal. Og glugginn heill !! Það samt skýrði ekki afhverju það var sambandslaust við netþjóninn minn, sem hýsir nú hrollinn góða sem hefur verið úti alla helgina þessvegna. En þegar inn var komið var það augljóst, það hafði flætt inn !! Argh! Eitt fjöltengið á gólfinu, með fartölvuspennubreyti og öðru dóti hafði farið í kaf og slegið út rafmagninu hjá mér á föstudeginum, drepið þar að leiðandi á servernum og meðal annars ískápnum sem var nú með einhverju góðgæti í. Allt á floti allsstaðar Parketið svo allt bólgið og ónýtt. Mér til mikillar furði skemdist ekki neitt hjá mér, nema þetta fartölvuhleðslutæki, en ég á tvö svoleiðis. Öll fötin mín sem voru á gólfinu, þar á meðal jakkafötin mín hafði ég gengið frá áður en ég fór í ferðina, sem er alveg ótrúleg tilviljun, því ég er ekki vanur að ganga frá þessu. Verst að ég hef ekki í mér að rugla eitthvað í tryggingarfélaginu, það er allt innbú í kaskó hjá mér, en það bara skemmdist ekki neitt. En þetta verða nú samt örugglega einhver óþægindi.

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengar að þessu sinni, enda þeir sem hafa enst í að lesa þetta alla leið hingað sennilega farnir að gubba úr leiðindum :O) ... ætla meiraðsegja að sleppa stjörnuspánni, sem hefur nú verið fastur liður hérna á hrollablogginu hehe. Í gær sagði hún samt eitthvað á þá leið að það væri ólán í láninu .. sem túlkast að ég var heppinn að lifa af flugið, diskurinn fauk ekki, en það flæddi samt inn. ... jæja, góða nótt, ég ætla fara láta mig dreyma um hvernig ég ætli að borga euro reikning ferðarinnar :p

ps: Gunni eða Birkir, ef þið lásuð bloggið og komust alla leið hingað niður, þá eigið þið sko skilið Thule ... ég send´ikkurann bara.

febrúar 21, 2008

My Birthday Bonanza

komið smá fjör í kallinn strax Kjellinn átti afmæli á sunnudaginn var, en þá var hinn hátíðlegi 17. Febrúar.... 17. Júni er bara crap, Febs er málið. En þá var enn eitt afmælið mitt. Þau eru nú orðin nokkur að baki, en ætli séu ekki nokkur eftir líka, vona það :) Á laugardegskvöldinu bauð Sirrý mér í þessa dýrindis steik, en hún vippaði upp einsog ekkert sé lambafille með svissuðu grænmeti, hrásallati, piparsósu og pepsí með klökum ... mmm, að mínu mati er ekkert betra með góðum mat en pepsí eða kók, og enn betra með klökum :) Ég vissi ekkert hvað var á seiði nema það að ég ætti að vera klár í eitthvað klukkan 10, en nokkrir fyrrverandi og núverandi vinnu og djammfélagar höfðu ákveðið að gera góðan dag fyrir kjellinn og komu mér svo sannarlega á óvart með að sækja mig á limmósínu :o ... ég trúði varla mínum eigin augum þegar ég kom út frá Sirrý og sá ferlíkið fyrir utan og allt þetta frábæra fólk. Um leið var mér afhent opalflaska, svona til að hressa mig við, og virkaði það svo sannarlega. Ég brosi alveg við að skrifa þetta og hugsa til baka hehe. En eftir dágóðan rúnt og tvær skotflöskur (epla og ópal) þá lá leiðin uppí öskjuhlíð, þar sem var rifið í keilukúlurnar. Ég er nú frekar lélegur í keilu allsgáður, en svoltið í því varð ég alveg afleitur, hélt í alvörunni að ég yrði betri, en svo var ekki hehe ... en rosalega gaman var það samt. Þess má geta að ég endaði næstsíðastur með 39 stig eða eitthvað svipað :)

1.jpg 2.jpg 3.jpg

Svo lá leiðin í bæinn góða, sem aldrei sefur .. það er alltaf jafnmikið ves að fá leigubíla á álagstímum hjá þessari leigubílamafíu sem er hér í borg, þannig að við löbbuðumetta bara, enda ekkert svo svakalega langt frá öskjuhlíðinni og við höfðum nú gert þetta áður líka, mín 3. gönguferð þaðan. Og eftir brosótta leið, þar sem sumir duttu og tjónuðust í framan (ekki ég:) þá vorum við komin á gaukinn, en reyndar bara 2 eftir, þó svo fleiri hafi komið seinna. En þá var komið aðeins of mikið af gleðivökva í kallinn og var hann orðinn hálfþreyttur og sljór. Og eftir nokkra scandala, þar á meðal sullað fanta yfir pizzu og margt verra var haldið heim á leið, glaður með suprise-ið og afmælið sitt, og hlakkaði til að takast á við þynnkuna á afmælisdaginn sjálfann, en hún var bara fín, enda var ég vel undirbúinn með nammi, pizzu, þætti og bíómyndir ... það er það eina sem læknar mann,, það er alveg víst :)

4.jpg 5.jpg 6.jpg
En ef að snillingarnir sem voru í limmóferðinni góðu lesa þetta þá fá þau mínar bestu þakkir fyrir ógleymanlegt kvöld, alveg geggjað!

Og þeir sem gleymdu að senda afmæliskveðjur og eru enn í "ekki vinir" excel skjalinu sem ég bjó til, þá er enn tími til að bjarga því .... hehe

9.jpg 7.jpg 8.jpg

Það verður svo engin lognmolla þessa helgina heldur, því á föstudagskvöldið er Matrix 2008, en það er svona aukaárshátíð BT, það verður örugglega gaman. Og á laugardagskvöldinu er europartý með Páli Óskari á nasa, og maður verður að skella sér þangað líka :)

Mbl spáin góða,
Vatnsberi: Í efnahyggju felst að að lokum mun allt eiga þig. Íhugaðu þetta áður en þú gerir næstu kaup. Og ef þú ferð í verslunarleiðangur, skaltu henda einhverju í staðinn.
...furðulega orðað hjá þeim, en ég hendi aldrei neinu, þannig að ég er ekki í góðum málum.

About febrúar 2008

This page contains all entries posted to hrollur.net in febrúar 2008. They are listed from oldest to newest.

janúar 2008 is the previous archive.

mars 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34