« Jaaaahérnahér ... | Main | Páskagleði »

My Birthday Bonanza

komið smá fjör í kallinn strax Kjellinn átti afmæli á sunnudaginn var, en þá var hinn hátíðlegi 17. Febrúar.... 17. Júni er bara crap, Febs er málið. En þá var enn eitt afmælið mitt. Þau eru nú orðin nokkur að baki, en ætli séu ekki nokkur eftir líka, vona það :) Á laugardegskvöldinu bauð Sirrý mér í þessa dýrindis steik, en hún vippaði upp einsog ekkert sé lambafille með svissuðu grænmeti, hrásallati, piparsósu og pepsí með klökum ... mmm, að mínu mati er ekkert betra með góðum mat en pepsí eða kók, og enn betra með klökum :) Ég vissi ekkert hvað var á seiði nema það að ég ætti að vera klár í eitthvað klukkan 10, en nokkrir fyrrverandi og núverandi vinnu og djammfélagar höfðu ákveðið að gera góðan dag fyrir kjellinn og komu mér svo sannarlega á óvart með að sækja mig á limmósínu :o ... ég trúði varla mínum eigin augum þegar ég kom út frá Sirrý og sá ferlíkið fyrir utan og allt þetta frábæra fólk. Um leið var mér afhent opalflaska, svona til að hressa mig við, og virkaði það svo sannarlega. Ég brosi alveg við að skrifa þetta og hugsa til baka hehe. En eftir dágóðan rúnt og tvær skotflöskur (epla og ópal) þá lá leiðin uppí öskjuhlíð, þar sem var rifið í keilukúlurnar. Ég er nú frekar lélegur í keilu allsgáður, en svoltið í því varð ég alveg afleitur, hélt í alvörunni að ég yrði betri, en svo var ekki hehe ... en rosalega gaman var það samt. Þess má geta að ég endaði næstsíðastur með 39 stig eða eitthvað svipað :)

1.jpg 2.jpg 3.jpg

Svo lá leiðin í bæinn góða, sem aldrei sefur .. það er alltaf jafnmikið ves að fá leigubíla á álagstímum hjá þessari leigubílamafíu sem er hér í borg, þannig að við löbbuðumetta bara, enda ekkert svo svakalega langt frá öskjuhlíðinni og við höfðum nú gert þetta áður líka, mín 3. gönguferð þaðan. Og eftir brosótta leið, þar sem sumir duttu og tjónuðust í framan (ekki ég:) þá vorum við komin á gaukinn, en reyndar bara 2 eftir, þó svo fleiri hafi komið seinna. En þá var komið aðeins of mikið af gleðivökva í kallinn og var hann orðinn hálfþreyttur og sljór. Og eftir nokkra scandala, þar á meðal sullað fanta yfir pizzu og margt verra var haldið heim á leið, glaður með suprise-ið og afmælið sitt, og hlakkaði til að takast á við þynnkuna á afmælisdaginn sjálfann, en hún var bara fín, enda var ég vel undirbúinn með nammi, pizzu, þætti og bíómyndir ... það er það eina sem læknar mann,, það er alveg víst :)

4.jpg 5.jpg 6.jpg
En ef að snillingarnir sem voru í limmóferðinni góðu lesa þetta þá fá þau mínar bestu þakkir fyrir ógleymanlegt kvöld, alveg geggjað!

Og þeir sem gleymdu að senda afmæliskveðjur og eru enn í "ekki vinir" excel skjalinu sem ég bjó til, þá er enn tími til að bjarga því .... hehe

9.jpg 7.jpg 8.jpg

Það verður svo engin lognmolla þessa helgina heldur, því á föstudagskvöldið er Matrix 2008, en það er svona aukaárshátíð BT, það verður örugglega gaman. Og á laugardagskvöldinu er europartý með Páli Óskari á nasa, og maður verður að skella sér þangað líka :)

Mbl spáin góða,
Vatnsberi: Í efnahyggju felst að að lokum mun allt eiga þig. Íhugaðu þetta áður en þú gerir næstu kaup. Og ef þú ferð í verslunarleiðangur, skaltu henda einhverju í staðinn.
...furðulega orðað hjá þeim, en ég hendi aldrei neinu, þannig að ég er ekki í góðum málum.

Comments (5)


thelma:

gott að þú sért ánægður með þetta ;) átt þetta skilið hjartaknúsarinn minn

fór yfir síðuna þína og myndirnar mörghundruð sinnum til þess að finna rétta fólkið með hjálp helgu!

Við bjóðum síðan helgu upp á strætóferð þegar hún á afmæli ;)
Matrix annað kvöld, ég fæ illt í magann við tilhugsunina..


Siggeir:

Til hamingju með daginn um daginn!


thelma:

einn sem er að reyna að koma sér í excel skjalið :)


birkir:

þú verður að þrauka í þrjá sólarhringa í viðbót. þá hefurðu ekkert bloggað í mánuð :)


almar:

Já, ég veit ekki hvað er að gerast, ég er bara alveg blogglaus :) ... spurning samt með að reyna kreista eitt út á morgun til þess að ná ekki mánaðarmarkinu.

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on febrúar 21, 2008 10:38 EH.

The previous post in this blog was Jaaaahérnahér ....

The next post in this blog is Páskagleði.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34