Páskagleði
Það er loksinns komið páskafrí, en maður gleymir því á hverju ári hvað maður fær gott frí um páskana. Við Nissi skelltum okkur norður á þriðjudagskvöldið og förum ekki suður aftur fyrr en á næsta þriðjudagskvöld. Það fer ekki illa um okkur hérna í sveitinni, systir mín lánaði mér heila íbúð til að vera í, ekki leiðinlegt það. En hún og kallinn hennar skelltu sér til Prag um helgina bara. Ég er búinn að fá mér páskaegg líka, hrísegg #9. Mér leiðist nefnilega hreint súkkulaði, held að þetta sé betra. Það er svo strax búið að taka eitt djamm á þetta, en það var skellt sér í partý og bæinn í gær. Verð nú samt að segja það að mér líst ekkert á þessa staði hérna, þeir eru eitthvað svo litlir og troðnir fyrir borgarbarnið mig ;) Planið er svo fyrir utan það að slappa af að taka nissa í gegn, skipta um annað framljósið og stefnuljós, stoppa í gatið í gólfinu og athuga bara hvort maður fái ekki skoðun á kvikyndið, en hann er bara skoðaður 2006 .. einhver sagði mér að það væri 2008 núna :o Svo þegar ég kem suður aftur þá byrjar ballið við að flytja, er nú samt ekki með mikið dót og verð sennilega bara eina kvöldstund að því, en að þrífa svo kompuna er önnur lengri og leiðinlegri saga. Úff ég fæ útbrot bara að hugsa um það. Já svo er komin kreppa líka, gaman að því. Mikið finnst mér freystandi að kaupa mér bara nýjann bíl á erlendu láni núna áður en bílarnir hækka og krónan líka, myndi sennilega gera það bara ef ég væri ekki að verða atvinnulaus ... nema bæturnar dekki það ?? hehe. Jæja, þynnkan kallar, hún vill snakk og verkjalyf.
Vatnsberi: Ástin eykur orkuna, bjartsýnina og framleiðnina. Finndu því einhvern eða eitthvað til að vera ástfanginn af. Ef það verður allt leikur einn.
- Haha, einhvern eða eitthvað.