« My Birthday Bonanza | Main | Úffffff ... »

Páskagleði

EASTERBUNNY.jpg Það er loksinns komið páskafrí, en maður gleymir því á hverju ári hvað maður fær gott frí um páskana. Við Nissi skelltum okkur norður á þriðjudagskvöldið og förum ekki suður aftur fyrr en á næsta þriðjudagskvöld. Það fer ekki illa um okkur hérna í sveitinni, systir mín lánaði mér heila íbúð til að vera í, ekki leiðinlegt það. En hún og kallinn hennar skelltu sér til Prag um helgina bara. Ég er búinn að fá mér páskaegg líka, hrísegg #9. Mér leiðist nefnilega hreint súkkulaði, held að þetta sé betra. Það er svo strax búið að taka eitt djamm á þetta, en það var skellt sér í partý og bæinn í gær. Verð nú samt að segja það að mér líst ekkert á þessa staði hérna, þeir eru eitthvað svo litlir og troðnir fyrir borgarbarnið mig ;) Planið er svo fyrir utan það að slappa af að taka nissa í gegn, skipta um annað framljósið og stefnuljós, stoppa í gatið í gólfinu og athuga bara hvort maður fái ekki skoðun á kvikyndið, en hann er bara skoðaður 2006 .. einhver sagði mér að það væri 2008 núna :o Svo þegar ég kem suður aftur þá byrjar ballið við að flytja, er nú samt ekki með mikið dót og verð sennilega bara eina kvöldstund að því, en að þrífa svo kompuna er önnur lengri og leiðinlegri saga. Úff ég fæ útbrot bara að hugsa um það. Já svo er komin kreppa líka, gaman að því. Mikið finnst mér freystandi að kaupa mér bara nýjann bíl á erlendu láni núna áður en bílarnir hækka og krónan líka, myndi sennilega gera það bara ef ég væri ekki að verða atvinnulaus ... nema bæturnar dekki það ?? hehe. Jæja, þynnkan kallar, hún vill snakk og verkjalyf.

Vatnsberi: Ástin eykur orkuna, bjartsýnina og framleiðnina. Finndu því einhvern eða eitthvað til að vera ástfanginn af. Ef það verður allt leikur einn.

- Haha, einhvern eða eitthvað.

Comments (8)


birkir:

afhverju beiðstu ekki í einn dag í viðbót með bloggið eins og ég var búinn að biðja um? annars erum við páskaeggja kviðmágar, eða eitthvað álíka, ég á samskonar páskaegg...geðveikt :)


almar:

hahaha páskaeggja kviðmágar ... hljómar ekki vel. Mig langar samt að byrja á mínu, þarf maður nokkuð að bíða til páskadags? Ég varð að henda inn færslu, annars hefði ég fengið mánaðarsekt, það má nú ekki ;) ... en annars varst þú Birkir með 200asta commentið á síðunni minni, það ættu að vera einhver verðlaun við það er það ekki ??


birkir:

og comment 202. og jú það eiga að sjálfsögðu að vera verðlaun fyrir að vera nr.200. og verðlaunin ættu ekki að vera neitt minna en ferð fyrir einn til selárbakka, eða eitthvað álíka frábært. ég bíð spenntur að vita hvað ég vann :)


Damma sys:

hvernig er kisubarnid mitt ad haga ser? og er ibudin min ennta fokheld? hehe ooo.. eg sakna kiiiisu ščřžáššě gledilega paska :-)


birkir:

kisubarnið????
er það Almar?


almar:

Mjáá, það er ég ;) ...
hehe, nei það er raunerulegt kisubarn sem ég var að "passa". Held samt að ég hafi skemmt hana frekar, gaf henni ís og sukkfæði bara, koma henni á bragðið :)


birkir:

afhverju er maður að fara á þessa plebba síðu? ég er sá eini sem kommenta hérna og það hefur ekki verið bloggað síðan 20. mars !!!! hingað kem ég ekki aftur.... ALDREI!!!


almar:

hehe... jújú Freysi, þú kemur alltaf aftur ;)

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on mars 20, 2008 2:50 EH.

The previous post in this blog was My Birthday Bonanza.

The next post in this blog is Úffffff ....

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34