Úffffff ...
Jæja, maður er alveg að missa sig í blogg-gleðinni hérna á þessum bæ. Það eru alveg komnar leðurblökur og köngulóarvefur hérna á hrollinn. Svo ég afsaki mig aðeins, þá hefur bara verið svo mikið að gera og maður frekar latur líka. Eftir páskana tók strax við langur og strangur flutningur á búslóðinni minni miklu frá Stóragerði uppí Dalsel 22, þar sem híbýli mín eru nú. Þó ég hafi nú ekki búið stórt þarna í Stóragerðinu, þá var ég með ótrúlega mikið drasl eitthvað, sem tók margar ferðir að flytja, sérstaklega þegar maður er einn að vesenast í þessu. Og erfiðasti parturinn var sennilega að þrífa eftir mig, össs. Var með slípirokkinn alveg á baðherbergisvaskanum, því hann var allur í kalksteini (held það heiti það) og sturtan líka. Gólfið undir rúmminu var með allavega kíló að ryki, sem hafði breyst í rykpasta eftir flóðið sem ég fékk í febrúar. En á heilli viku tókst mér að koma mér hingað og skila kompunni gömlu. Mikið er ég feginn að það er búið. Það er enn samt smá vesen með hver skal greiða fyrir parketið sem eyðilagðist í flóðinu mikla, sem kom þegar ég var úti í Amsterdam. En ég hef falið kærunefnd húsaleigumála að dæma um það. Mér stóð til boða áður að greiða helminginn (45 þúsund), vona að ég komi ekki verr útúr því að garfa svona í þessu .. vill helst ekki borga neitt :)
Einsog flestir ættu að þekkja þá er Dalselið í Breiðholtinu (109), þar er ekkert slæmt að vera .. ghettóið einsog þið fáfróðu kallið það hehe, þið ættuð nú að koma sjá flottu einbýlishúsin hérna ;) en nissi þarf nú aldreilis að standa sig, fara með mig alla leið í vinnuna, og ég held að hann hafi bara skánað við það, því ég var alltaf bara 3 mín í vinnu og heim á móti 13 mín núna. Nissi þarf hreyfingu! Hann þarf reyndar skoðun líka, og það helst áður en þetta sektarkerfi byrjar, langar ekki að taka þátt í því. Er staðráðinn í að fara með hann á föstudag eða mánudag. Það er enn eitthvað af drasli í bílnum, tek alltaf með mér fullt fang þegar ég kem heim, en nenni bara ómögulega að labba aðra ferð útí bíl hehe .. lítur ekki vel út. Það fer allavega svakalega vel um mig hérna, passlega stórt fyrir mig einann, stórt baðherbergi og allt frekar nýtt og flott. Eina sem vatnar enþá er sófi og sófaborð, stofan er bara tóm! Þannig að ef einhver er að selja flottann sófa þá vill ég fá hann á sportprís. Annars fer ég að kaupa mér í rúmfó einn ágætan á 70 þúsund ... mastercard splæsir...
Maður hefur samt ekkert vanrægt djammið í öllum flutningunum. Fór t.d. á Sálina á Nasa um helgina, það var mikið fjör, og ég var alveg Lalli Johnes einsog svo oft áður .. þarf að fara drekka minna, eða eitthvað annað ;) Og leigubíllinn heim kostar 2500, þá sakna ég pínu að borga 1200 í Stóragerðið og getað jafnvel labbað ef þannig lá við... vá ég hljóma einsog einhver sparibaukur :O .. best að þeigja bara hehe .. en svona er þetta þegar útgjöldin eru hærri en launin, þá verður maður að tuða yfir því, það er það eina sem virkar.
Ég var loksins að fá hrollur.com lénið í hendurnar, hef núna fulla stjórn á því þökk sé einhverjum Indverja sem ég fékk til þess að selja mér það, en hann náði að kaupa það á meðan það ver ekki endurnýjað. Ég þurfti ekki mikið að blæða, en kannski andvirði svona eins djamms. Það var alltaf stefnan að opna þar nýjann og flottan vef, svona ef ég nenni og get. Hrollur.net er orðinn þreyttur, enda ársgamall blessaður. En þá færi hann bara í pásu. Flókin þessi hrollamál.
Svo á maður meiraðsegja myndir síðan um páskana sem eru ekki enn komnar inn, þetta er algjör leti bara.. og ekki má gleyma að ég ætla setja inn myndir frá árunum 2004-2007 aftur inná myndasíðuna, sem duttu út þegar ég missti hýsinguna sem ég var með þá. Læt það heldur ekki gerast aftur, þar sem ég hýsi sjálfur núna. En nóg af bulli, hvað segir eiginlega stjörnuspáin mín?
Vatnsberi: Gerðu upp hug þinn. Og svo aftur. Margar skjótar og góðar ákvarðanir borga sig skjótar og betur en þú vonaðir. Einhleypir eru heppnir þegar kemur að vog.
Heyriði það allar vogir þarna úti !! ...eða á ég kannski að fara bara á Vog? ;)
Ps. Birkir, ekkert rugl! Ég veit þú kemur aftur á Hrollinn og kommentar eitthvað fallegt að vanda! :) ... einsog þér einum er lagið.