« apríl 2008 | Main | júní 2008 »

maí 2008 Archives

maí 13, 2008

Sunnan Hvíta

edit_EPSN5035.JPGÞessi Hvítasunnuhelgi var alveg með eindæmum góð ... erfið á köflum, en í heildina mjög skemmtileg. Hún byrjaði með því að strax eftir vinnu var haldið heim til að pakka niður, sturta sig og gera sig klárann fyrir helgarferð á Selfossi. En þar var einmitt vinnan með árshátíð á laugardeginum, Hótel Selfoss nánar tiltekið. Þeir hörðustu taka alltaf aukanótt á hótelinu og fara á föstudeginum, ég lét mig ekki vanta í það, og var haldið fínasta herbergispartí og svo skelltum við okkur á Hvíta húsið, þar var hljómsveitin Dúndurfréttir að spila. Það hljómaði nú ekki freistandi í mínum eyrum, en það var bara ekkert um annað að velja. Ekki skánaði það þegar ég sá að þetta voru tónleikar, þar sem allir sitja bara og hlusta spakir og góðir. Við skárum okkur strax úr þarna á staðnum, pakkfullum af fólki. En við malarhyskið fórum bara á barinn og þeir allra heimskustu ákváðu af fara í smá dans-off þar fyrir framan .. .það var alveg ótrúlega fyndið. Ég veit ekki alveg hvað klukkan var þegar heim var komið, held hún hafi verið um 4, sem var svosem ekkert mál. Erfiðin byrjuðu daginn eftir, þegar við þurftum að rýma hótelið fyrir 12 :O ... það var hræðilegt. En vegna fjölda mans og fárra herberja voru leigðir líka nokkrir sumarbústaðir í þyrpingu. Og auðvitað var sniðugast í stöðunni að senda óþekkasta liðið þangað, enda gátum við aldeilis djammað þar að vild. Einn lísti þessu svo vel að við værum ljóta frænkan í Árdegisfamilíunni, það yrði að bjóða okkur með en enginn vildi fá okkur hehe, þessvegna værum við sett í þessa vinnuskúra :) ... mér fannst þetta fínt, mikið skemmtilegra en á hótelinu myndi ég halda. En ég náði nær dauða en lífi að koma mér uppí bústaðina og eftir einn KFC skamt og tvær alkazeltser varð ég strax nokkuð góður ... og tilbúinn að takast á við átök kvöldsins. Eftir skemmtidagskrá dagsinns var skellt sér á ný í "vinnuskúrana" og nokkrir bjórar opnaðir og skellt sér í nýju Amsterdömsku jakkafötin mín, sem sumir spurðu hvort ég myndi borða, þegar ég væri búinn að nota þau, því þau voru einsog lakkrís að sjá :p .. og skellt upp nýju greiðslunni, sem hefur fengið nafið "Óli Geir, syntiru hingað eða ... " En þá er verið að vísa í að þetta svipar víst eitthvað til greiðslunnar hjá Óla Geir ... þarna ungfrú herra ísland, og syntiru er verið að gera grín af gelnotkuninni :p ... fyndið lið sem ég vinn með hehe. Árshátíðin sjálf var náttúrulega snilld, maturinn góður og Skímó að spila, með Magna aukalegann. bed.jpg Þetta var allt einsog á að vera .. opinn bar, skemmtilegt fólk og hress 90´s hljómsveit, enda var þetta bara mjög gaman. Daginn eftir byrjaði svo vítið á ný, en þá þurfti ljóta frænkan að rýma "vinnuskúrana" (sem ég held að séu ónýtir í dag) og skella sér heim. Mér finnst það reyndar alveg útí hött að hafa þetta svona snemma, það er ekki einusinni runnið af fólki þegar það er að keyra heim. Það voru nú reyndar rútur, en ég var á nissa og lagði í hann um hálf-2, fannst ég orðinn skikkanlegur þá. Þó þetta hafi verið einsog full vinna, og allavega 2 mikilvæg líffæri í meltingarveginum séu hætt að starfa, þá væri ég alveg til í að endurtaka þetta alltsaman næstu helgi hehe. En mikið var ljúft að fá mánudaginn í frí, til að jafna sig aðeins, ég hefði bara ekki meikað að mæta í vinnuna þá, nógu erfitt var það í dag.

Mér finnst orðið svo langt síðan ég hef sett Bo myndbönd á bloggið mitt að ég ákvað að skella einu með hérna, til að bæta fyrir leiðinlega færslu :) ... en þetta er úr nýjustu syrpunni hans sem heitir "Keith Lemon's Very Brilliant World Tour". Og nú er Keith Lemon Business Man Of The Year 93' aðalhetjan, og engin brúðuandlit með þykkum gleraugum, eða Craiiiig Daaavid, sakna þeirra pínu. Hann heimsækir 6 lönd um allan heim, þar á meðal Ísland, en 6. og síðasti þátturinn er tekinn hér. Samt er þessi klippa úr þætti 2, Ástralíu, það er langfyndnasti þátturinn. Ég þarf eiginlega að skella þeim á vikingbay, á þá alla tilbúna í það. En það finnst sennilega engum þetta fyndið nema mér :) Sjá Videó...

Svo eru það fastir liðir einsog venjulega:

Vatnsberi: Það er rétt, að maður þarf sjálfsaga til þess að láta hlutina gerast, en hann er samt gróflega ofmetinn. Þú þarft að búa til áætlun sem passar við frjálslegt viðhorf þitt.

...aint that the truff !?

About maí 2008

This page contains all entries posted to hrollur.net in maí 2008. They are listed from oldest to newest.

apríl 2008 is the previous archive.

júní 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34