« maí 2008 | Main | júlí 2008 »

júní 2008 Archives

júní 23, 2008

Nissi núllníu

Mynd202.jpeg Undur og stórmerkikerti gerast enn, Nissi stóðst skoðun án athugasemda! Ég bjóst reyndar aldrei við öðru. Hann var nú reyndar með endurskoðun blessaður, þurfti að laga annað gat í gólfi og leka á vatnskassa. Nei hann er samt ekki að ryðga í sundur, gólfið er úr einhverju trefjaplasti og það hefur örugglega skemst á svona bílalyftu, þegar maður skiptir um dekk og svona, en það nú samt kannski ekki alveg eins sterkt og það ætti að vera ;) Eftir miklar vangaveltur með vatnskassann, leit að notuðum og leiðum til að gera við þennan ákvað ég bara að prófa svona duft sem maður setur á kassann í von um að stýfla gatið, eitthvað sem mér var sagt í skoðuninni að væri ekki hægt því það væri það stórt gat á þessum. En viti menn, þetta svona svínvirkaði. Það angraði mig svosem ekkert að hafa smá gat á kassanum, ég bætti bara á hann reglulega, kannski verra í vetur þegar þetta þarf nú að vera frostþolið :o ... seinnitímavandamál.
En maður er enn staddur á Akureyri, kom hingað 12 júní. Það er bara búið að fara vel um mann hérna, fínasta veður. Búinn að fara í nokkur party og veislur. Asnaðist til að fara í sjallann, eða stubbasmiðjuna einsog ég kalla hann í dag, það er einsog eitthvað hafi gerst þarna, aldurstakmarkið lækkað eiða eitthvað hehe, já, það er það eina sem kemur til greina, annað getur það bara ekki verið ;) Mér finnst svona fullungt lið þarna, og bara 17 ára, það væri nú skömminnni skárra ef það væri aðeins blandað. Ég fór bæði 14. júní og 16. til að vera viss. Samt þrátt fyrir það er ég að hugsa um að skella mér næstu helgi líka, á sálina. Mér heyrist vera góð mæting á liði sem er yfir 25 ára. Nema ég verði farinn suður aftur, það er allt í skoðun. Langar pínu að sjá Björk og Sigurrós, hef aldrei verið aðdáandi en maður verður samt einhverntímann að sjá þessar skærustu stjörnur okkar live.
En svo er maður bara enn atvinnulaus, og leiðist það svosem ekkert. Gæti alveg gert ekki neitt í marga marga mánuði. Núna eru 1360 atvinnulausir í rvk, og virðist fjölga með hverjum deginum sem líður. Það verður sennilega strembið að finna vinnu sem manni langar í á þessum síðustu og verstu tímum. Ég er samt ekki búinn að gefa skólann alveg uppá bátiinn, það er möguleiki líka, ef maður kemst enn inn, eða inn yfir höfuð.
Þrátt fyrir atvinnuleysið þá hefur maður samt engann tíma fyrir bloggið, féll á mánuði að þessu sinni, það gerist ekki aftur. Svo á ég nokkrar helgar í epsoninum sem ég á eftir að setja inn, varð að fara bíta á jaxlinn og drífa í þessu!! Eða einsog spáin mín segir:

Vatnsberi: Þú er handviss um að það sem þú ætlar þér að gera sé gerlegt. En þú veist það ekki fyrr en þú hefur klárað það. Helltu þér út í verkið.

About júní 2008

This page contains all entries posted to hrollur.net in júní 2008. They are listed from oldest to newest.

maí 2008 is the previous archive.

júlí 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34