« júní 2008 | Main | september 2008 »

júlí 2008 Archives

júlí 23, 2008

Versló Smersló

spider.GIF Það eru köngulær að herja á mína litlu íbúð, ég get ekki sagt að ég sé hrifinn af þeim. Síðast í gær þá lá ég inní stofu og sá eina koma út úr svefnherberginu, greinilega nývöknuð, teigði svona úr sér með fjórum löppum og klóraði sér í rassinum með einni hehe - nei ekki alveg, hún allavega lét einsog hún ætti heima hérna. Ég samt vill helst ekki drepa þessi grey, þannig ég tók hana upp og henti út, hún situr örugglega enn fyrir utan geðveikt móðguð og skilur ekkert í þessu. Á meðan sú sem fór með mér í sturtu í dag er látin, en hún var einstæð og barnlaus, blóm og kransar vel þegnir. Ég veit ekki hvort hún hafi druknað eða soðnað, ég fer allavega í mjög heitar og langar sturtur. Ég reyndi nú ekki hjartahnoð á henni, heldur hjálpaði hræinu með vatninu í niðurfallið ... greyið. Svo sá ég eina í eldhúsglugganum um daginn, hún var glær! það var ógeðslegt, með hvítar lappir, annað hvort hefur hún verið á djamminu daginn áður, eða ekki mikið fyrir að tanna sig. Og svo sá ég nokkra roðamaura um daginn, ... ginger bastards, það er enginn smá sprettur á þeim. Ég fékk ekki einusinni flugu inn til mín á gamla staðnum í stóragerðinu, hélt alltaf að það væri útaf mörgum rafmagnstækjum í gangi á fáum fermetrum. En ég er ekkert á kafi í skordýrum samt, hef bara lent í þessum 3 köngulóm á þessum 3 mánuðum sem ég hef búið hér, ég er líka í kjallara með lóðina alveg í glugganum, lifi þetta örugglega af... vonandi.

Svo er það versló, hvað á maður að gera af sér þá ?? Maður hefur nú varla efni á því í atvinnuleysinu að keyra einn norður og suður aftur í kreppu og bensínokri, plús það að djamma líka. Spurning um að leita sér að fari bara. Annars er ég ansi hræddur um að það verði lítið fjör, það er ágætis dagskrá, en mér líst bara ekkert á djammarana fyrir norðan, það eru engir eftir!! Það vonandi rætist eitthvað úr því samt. Það er ´80 þema í öllum bænum, allir með axlapúða og eitthvað, það gæti orðið fyndið. Ný dönsk, sálin, eurobandið, páll óskar og fleiri að spila. 18 ára inná tjaldsvæðin, þannig að það má búst við mauraflóði í bænum, hefði ekkert á móti því að það væri 30 ára inná þau hehe ... nehhh

Annars er maður kominn með nett legusár, ligg gjörsamlega allan sólarhringinn fyrir framan sjónvarpið og borða snakk og nammi, veit ekki hvernig ég enda. Ég er kominn með diskinn upp og sky pakkann loksins í gang, þannig mér leiðist nú ekki. Reyni nú samt að fara út á hverjum degi í göngutúr, svona ef það er gott veður ... tók nú um 12 kílómetra í gær!! og geri aðrir betur. Nissi nýskoðaði var nefnilega útá seltjarnarnesi eftir smá partý síðustu helgi (hann er alltaf á djamminu), þannig að mér datt í hug að tékka hvort ég kæmist ekki alla leið labbandi. Ég tók með mér bæði pening í taxa og klink í strætó ef ég skyldi gefast upp, en ég fór létt með þetta. Með útvarpið í eyrunum og vatnsflösku í hendinni arkaði ég þetta niðureftir á 3 og hálfum tíma, án þess að taka mér hlé, hefði getað labbað til baka líka hefði ég ekki verið kominn með blöðrur á tærnar :) Svo fer svoltið fyrir stirðleika í löppunum núna, þannig ég fór ekkert út í dag.... en hafði það af að blogga þess í stað, og senda inn nokkrar atvinnuumsóknir... veitir ekki af.

Vatnsberi: Veraldleg auðæfi og andleg fágun tengjast. Oft þegar leitað er að öðru hvoru slæst hitt með í för. Þú þarft ekki að henda peningum þínum til að finna sálina.

hmm, hvaða peningum hehe...

About júlí 2008

This page contains all entries posted to hrollur.net in júlí 2008. They are listed from oldest to newest.

júní 2008 is the previous archive.

september 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34