« Nissi núllníu | Main | Epsoninn kominn í frí »

Versló Smersló

spider.GIF Það eru köngulær að herja á mína litlu íbúð, ég get ekki sagt að ég sé hrifinn af þeim. Síðast í gær þá lá ég inní stofu og sá eina koma út úr svefnherberginu, greinilega nývöknuð, teigði svona úr sér með fjórum löppum og klóraði sér í rassinum með einni hehe - nei ekki alveg, hún allavega lét einsog hún ætti heima hérna. Ég samt vill helst ekki drepa þessi grey, þannig ég tók hana upp og henti út, hún situr örugglega enn fyrir utan geðveikt móðguð og skilur ekkert í þessu. Á meðan sú sem fór með mér í sturtu í dag er látin, en hún var einstæð og barnlaus, blóm og kransar vel þegnir. Ég veit ekki hvort hún hafi druknað eða soðnað, ég fer allavega í mjög heitar og langar sturtur. Ég reyndi nú ekki hjartahnoð á henni, heldur hjálpaði hræinu með vatninu í niðurfallið ... greyið. Svo sá ég eina í eldhúsglugganum um daginn, hún var glær! það var ógeðslegt, með hvítar lappir, annað hvort hefur hún verið á djamminu daginn áður, eða ekki mikið fyrir að tanna sig. Og svo sá ég nokkra roðamaura um daginn, ... ginger bastards, það er enginn smá sprettur á þeim. Ég fékk ekki einusinni flugu inn til mín á gamla staðnum í stóragerðinu, hélt alltaf að það væri útaf mörgum rafmagnstækjum í gangi á fáum fermetrum. En ég er ekkert á kafi í skordýrum samt, hef bara lent í þessum 3 köngulóm á þessum 3 mánuðum sem ég hef búið hér, ég er líka í kjallara með lóðina alveg í glugganum, lifi þetta örugglega af... vonandi.

Svo er það versló, hvað á maður að gera af sér þá ?? Maður hefur nú varla efni á því í atvinnuleysinu að keyra einn norður og suður aftur í kreppu og bensínokri, plús það að djamma líka. Spurning um að leita sér að fari bara. Annars er ég ansi hræddur um að það verði lítið fjör, það er ágætis dagskrá, en mér líst bara ekkert á djammarana fyrir norðan, það eru engir eftir!! Það vonandi rætist eitthvað úr því samt. Það er ´80 þema í öllum bænum, allir með axlapúða og eitthvað, það gæti orðið fyndið. Ný dönsk, sálin, eurobandið, páll óskar og fleiri að spila. 18 ára inná tjaldsvæðin, þannig að það má búst við mauraflóði í bænum, hefði ekkert á móti því að það væri 30 ára inná þau hehe ... nehhh

Annars er maður kominn með nett legusár, ligg gjörsamlega allan sólarhringinn fyrir framan sjónvarpið og borða snakk og nammi, veit ekki hvernig ég enda. Ég er kominn með diskinn upp og sky pakkann loksins í gang, þannig mér leiðist nú ekki. Reyni nú samt að fara út á hverjum degi í göngutúr, svona ef það er gott veður ... tók nú um 12 kílómetra í gær!! og geri aðrir betur. Nissi nýskoðaði var nefnilega útá seltjarnarnesi eftir smá partý síðustu helgi (hann er alltaf á djamminu), þannig að mér datt í hug að tékka hvort ég kæmist ekki alla leið labbandi. Ég tók með mér bæði pening í taxa og klink í strætó ef ég skyldi gefast upp, en ég fór létt með þetta. Með útvarpið í eyrunum og vatnsflösku í hendinni arkaði ég þetta niðureftir á 3 og hálfum tíma, án þess að taka mér hlé, hefði getað labbað til baka líka hefði ég ekki verið kominn með blöðrur á tærnar :) Svo fer svoltið fyrir stirðleika í löppunum núna, þannig ég fór ekkert út í dag.... en hafði það af að blogga þess í stað, og senda inn nokkrar atvinnuumsóknir... veitir ekki af.

Vatnsberi: Veraldleg auðæfi og andleg fágun tengjast. Oft þegar leitað er að öðru hvoru slæst hitt með í för. Þú þarft ekki að henda peningum þínum til að finna sálina.

hmm, hvaða peningum hehe...

Comments (9)


Siggeir:

Mældiru leiðina útá nes? Meðal maður gengur nefnilega á sirka 6 km hraða per klst. svo að ef að þetta tók þig 3,5 tíma hefur nú bara verið að chilla og drolla alla leiðina! :)


Almar:

hehe já, ég mældi hana bara á leiðinni til baka á nissa, sem var reyndar alltönnur leið, en kannski svipuð að lengd. En þetta er skrítið, því ég labbaði allan tímann, fyrir utan að stoppa á ljósum, en fór nú ekki hratt síðustu metrana ;) ... kom mér reyndar á óvart að það væru 12 km frá nesinu, því það stendur alltaf ca. 12km líka á leigubílanótunum sem maður fær þegar maður fer úr miðbænum og heim.


Bryndís Bj.:

Takk fyrir innlitið. Þér er nú alveg óhætt að kíkja þó svo að þú fáir ekki boð, þú veist. Annars hittumst við bara á einni með öllu og allt undir á Agureyris. Ég verð sveitta mamman á kantinum.....
Gangi þér vel í pöddustríðinu, hehehehee


anny:

almar elskan 3.5 tíma á leiðnni.. það er ekki hægt nema með góðum viðkomum á burger king eða hvað þetta heitir nú allt... hehe koddu bara norður ég skal redda þér vinnu og þú mátt búa hjá okkur.. sefur bara á milli nóg pláss


Almar:

hehe, þetta hljóta að hafa verið 25km, ég fór allavega ekki á burgerking :) - En þegar ég var kominn á nesið var ég ekki beint í heimsóknarástandi, annars hefði maður kíkkað sko ... þarf nú að fara kíkja á nýjasta afprengið þitt :)
Anný, ég flyt þá inn í næstu viku, kem með tannburstann og náttföt ;)


Birkir:

þú verður að vera nakinn ef þú ætlar að sofa á milli :)


Jóka:

WHAT??
Engir djammarar eftir,,,??
ég byrjaði lesturinn með gleði í hjarta og mikinn hlátur af skordýra sögum.. en fer héðan með brotið hjarta og tár í kvarmi (Eða hvarmi..er ekki viss)

hehe neii kannski ekki alveg
en Akureyrin hefur uppá margan góðan djammarann að bjóða og krefst þess að djammkóngurinn mæti á svæðið..
bíð eftir nánari ákvörðunum..
Man nú ekki betur en við höfum átt gott djamm í fyrra um Versló.. eða mig minnir það.. illa gömul orðin.,
:)
Koddu


almar:

awww, já það er satt, minnið er greinilega að gefa sig líka sökum aldurs víst ég mundi ekki eftir aðal djammboltanum ;) ... en gott þá að eiga myndir til að rifja það upp.
- ég mæti ... og skil náttfötin eftir heima birkir hehe.


Thelma:

Kongulóarinnrásir!!! :)
svona er að búa í kjallara í gettóinu..

trui ekki að u hafir labbað þetta, neita eiginlega að trúa því :)

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on júlí 23, 2008 5:06 EH.

The previous post in this blog was Nissi núllníu.

The next post in this blog is Epsoninn kominn í frí.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34