Epsoninn kominn í frí
Epsoninn er sestur í helgann stein núna, vegna þess að ég var fyrir stuttu að eignast canonuna mína nýju ;) ... en uppáhalds fyrrverandi vinnufélagarnir mínir gáfu mér hana í kveðjugjöf. Massa græja með 10 milljón pixlum, face detection og motion stabilazer svo eitthvað sé nefnt. Hlutir sem ekki var að finna í eppaling ;) Og það besta er að hún er ótrúlega lítil og nett, og fer vel í vasa. Spurnnig hvort maður fari ekki að setja inn fleiri myndir fyrir vikið, en það hefur verið hálfgerð gúrkutíð á hrollinum undanfarið. Það náttúrulega gengur ekki!!
Maður er staddur á Akureyrinni einsog er, mætti hingað til að fara í afmælispartý hjá Möggu, það var ekki leiðinlegt, byrjaði að sulla í ölinu um 7 leitið og kom ekki heim fyrr en 6 um morguninn, það var ágætis tími. Svo er prógram alveg frammí miðjan september, en það er önnur útskrift og svo afmæli 6. og 12. sept. en það er bæði í reykjavík, þannig maður skellir sér suður núna næstu helgi. Canonan verður pottþétt með í för ;)
Vinna, það er eitthvað minna... ég er bara enn í "sumarfríi" alltaf að sækja um vinnur, en það er ekki mikið að gerast á markaðnum, maður heyrir ekki einusinni frá fyrirtækjunum, veit ekki hvað maður gerir ef þetta verður svona til lengdar, þá gæti maður þurft að flýja norður bara, allavega verður erfiðara að borga leiguna fyrir sunnan. En mér leiðist samt ekki, enda horfi ég óhóflega mikið á sjónvarpið, og endalaust mikið af þáttum að byrja núna, sé varla fram á það að komast yfir allt efnið þótt atvinnulaus sé hehe. Held samt að ég hljóti nú að hreppa eitthvað gott.
Nissi er enn sprækur og biður að heilsa, hann er bara í Reykjavík, hefur ekki haft mikið að gera í sumar, held ég hafi ekki tekið bensín síðan í júlí, enda er það svo dýrt og ekki fyrir hvern sem er að kaupa :) ... veit ekki hvað það kostar núna, vill ekki einusinni vita það.
Vatnsberi: Einhver þér nákominn kemur þér skemmtilega á óvart. Þú ættir að skreppa út úr bænum, koma forgangsröðinni á hreint og koma til baka endurnærður á sál og líkama.