« Versló Smersló | Main | Tengdur »

Epsoninn kominn í frí

canon-ixus85is.gifEpsoninn er sestur í helgann stein núna, vegna þess að ég var fyrir stuttu að eignast canonuna mína nýju ;) ... en uppáhalds fyrrverandi vinnufélagarnir mínir gáfu mér hana í kveðjugjöf. Massa græja með 10 milljón pixlum, face detection og motion stabilazer svo eitthvað sé nefnt. Hlutir sem ekki var að finna í eppaling ;) Og það besta er að hún er ótrúlega lítil og nett, og fer vel í vasa. Spurnnig hvort maður fari ekki að setja inn fleiri myndir fyrir vikið, en það hefur verið hálfgerð gúrkutíð á hrollinum undanfarið. Það náttúrulega gengur ekki!!

Maður er staddur á Akureyrinni einsog er, mætti hingað til að fara í afmælispartý hjá Möggu, það var ekki leiðinlegt, byrjaði að sulla í ölinu um 7 leitið og kom ekki heim fyrr en 6 um morguninn, það var ágætis tími. Svo er prógram alveg frammí miðjan september, en það er önnur útskrift og svo afmæli 6. og 12. sept. en það er bæði í reykjavík, þannig maður skellir sér suður núna næstu helgi. Canonan verður pottþétt með í för ;)

Vinna, það er eitthvað minna... ég er bara enn í "sumarfríi" alltaf að sækja um vinnur, en það er ekki mikið að gerast á markaðnum, maður heyrir ekki einusinni frá fyrirtækjunum, veit ekki hvað maður gerir ef þetta verður svona til lengdar, þá gæti maður þurft að flýja norður bara, allavega verður erfiðara að borga leiguna fyrir sunnan. En mér leiðist samt ekki, enda horfi ég óhóflega mikið á sjónvarpið, og endalaust mikið af þáttum að byrja núna, sé varla fram á það að komast yfir allt efnið þótt atvinnulaus sé hehe. Held samt að ég hljóti nú að hreppa eitthvað gott.

Nissi er enn sprækur og biður að heilsa, hann er bara í Reykjavík, hefur ekki haft mikið að gera í sumar, held ég hafi ekki tekið bensín síðan í júlí, enda er það svo dýrt og ekki fyrir hvern sem er að kaupa :) ... veit ekki hvað það kostar núna, vill ekki einusinni vita það.

Vatnsberi: Einhver þér nákominn kemur þér skemmtilega á óvart. Þú ættir að skreppa út úr bænum, koma forgangsröðinni á hreint og koma til baka endurnærður á sál og líkama.

Comments (8)

Jóka:

Blétsaður:)
þakka þér fyrir seinast góði drykkjufélagi ;D

awesome times :)

þónokkuð af ótritskoðuð myndum þarna hjá þér samt sem áður.. hehe.. eins og ég sé alein uppá stól.. og enginn þarna í kring.. hvurn andskotann var ég samt að gera uppá stól ..? athyglissýki í glasi.. eða átti þetta svona vel við á þessari stundu? spurningu sem seint verður svarað haha djók
hlakka til að fá mér sjúss með þér attur :) en þangað til habbðu það nú gott :D

what.. ég sendi þetta ekki inn 3svar... er þetta eitthvað stillingar atriði hjá þér svo að það komi alltaf fleiri komment við hverja færslu.. hahah

Almar:

Haha snilld! Já ég er með svona kerfi svo það virðist sem fleiri comment komi, því það kommentar enginn :( .. nei nei, þú hefur bara verið að missa þig á Post hnappinum ;) .. við þurfum svo endilega að taka annað skrall saman, ekki væri verra að það væri í köben ef maggan byði okkur þangað :)

Gunz:

yes flottur nýji canon. Las þetta samt ekki of langt en skoðaði myndina.

Magga Stína:

Já elskurnar þið eruð sko hjartanlega velkomin í hasarferð til Köben!:D

Thelma:

aaaalmó hvað er planið fyrir næstu helgi :)

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on september 1, 2008 4:27 EH.

The previous post in this blog was Versló Smersló.

The next post in this blog is Tengdur.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34