« september 2008 | Main | nóvember 2008 »

október 2008 Archives

október 9, 2008

Tengdur

IE.gifJæja, þá er hrollalingurinn kominn aftur í loftið eftir að hafa verið sambandslaus við umheiminn í meira en viku.
Ég er ekki stór aðdáandi netveitunnar minnar einsog er, spurning um að skipta bara, þetta allavega gengur ekki. Hringdi í þá 5 daga í röð að bíða eftir viðgerð, alltaf var maður númer 17 í bið og tók símtalið um 30 mínútur. Ég á samt eftir að kvarta meira, því hraðinn hjá mér er bara
1 Mb/s, á að vera 4! ... það náttúrulega gengur ekki, en skárra en ekkert samt.

október 10, 2008

Nissi svívirtur ...

Mynd205.jpg ... og skilinn eftir í öngum sínum á plani BT-Skeifunnar um helgina!... er fyrirsögnin sem ég hefði viljað sjá á forsíðu fréttablaðsins á mánudag, en í stað þess var bara rætt um einhverja kreppu og endalaust volæði. En það var síðustu helgi sem ég ákvað í sakleysi mínu að skella mér norður í nokkra daga, og fékk til þess bílaleigubíl í skeifunni. Mér fannst það nú ekki tiltökumál að geyma litla gullmolann minn þar rétt á meðan, enda vanur að leggja honum þarna og hef geymt hann þar nokkrusinnum yfir nótt áður. En ekki var aðkoman falleg þegar ég kom aftur í borgina á miðvikudagsmorgun og ætlaði að sækja litla kaggann minn, en þá höfðu óprúttnir aumingjar brotist inní bílinn og hreinsað úr honum allt sem mögulegt væri að koma í verð, og skilið bílinn eftir ó-ökuhæfann. Lásar bílsins höfðu verið þvingaðir upp með stóru skrúfjárni og þannig opnaður. "Öflugt" viper þjófavarnarkerfið hefur ekki þótt stór hindrun fyrir bansetta glæpamennina þar sem þeir opnuðu bara húddið og rifu lúðurinn úr sambandi. Eftiráséð hefði maður helst átt að tengja bara sprengju við það, þá hefði maður allavega náð þessum aumingjum. En þeir tóku geislaspilarann, tvær bassakeilur, magnarann, alla afturhilluna með hátölurum, radarvarann og já, það hefur ekki dugað þeim því þeir tóku rafgeymi bílsins líka. Upphaflega höfðu þeir reynt að taka bílinn, því svissinn er skemmdur eftir að hafa verið þvingaður með skrúfjárni. Það er ekki auðvelt að eiga svona flottan bíl, get ég sagt ykkur :) Hátt í 30 skrifaðir geisladiskar voru teknir líka, það kallar maður reyndar að skjóta sig í fótinn, því þeir sem þekkja mig og minn tónlistarsmekk kannski vita að það er engin gullaldartónlist þar á ferð hehe. En óhugnalegast þykir mér samt að þeir tæmdu hanskahólfið mitt, þar sem ég hef safnað saman allskyns kvittunum, reikningum og fleira í tæp 10 ár. Reyndar veit ég bara ekki hvað það hafði nákvæmlega að geyma.

Mynd204.jpg Björtu hliðarnar eru hinsvegar þær að á meðan þeir tæmdu bílinn, þar á meðal hólf sem geisldiskarnir voru í, tóku þeir ekki eftir varalykli bílsins sem þar var, ásamt fjarstýringu til að slökkva á þjófavarnarkerfinu og DÆLULYKLI! Ég hefði síður viljað borga bensínið undir þá líka, og í öskubakka bílsins var alveg 500 kall í klinki og fjarstýringin sem þarf til að ræsa geislaspilarann... FEIS !! Það er nefnilega engin leið að kveikja á honum án þess að skjóta fyrst með henni, ef straumur hefur verið tekinn af bílnum eða tækið aftengt, þannig hann kemur engum að gagni nema ég fái hann aftur, þetta flöskuðu þeir á aumingjarnir. Ég kom samt kagganum heim í gær, eftir að hafa fengið nýjann rafgeymi í bílinn og náð að liðka upp svissinn aftur. Og það er svosem ekkert að bílnum annað en að það vantar græjurnar til að yfirgnæfa öll hljóðin sem nissi býr til við almennan akstur :) Bílinn var náttúrulega ekkert í kaskó, og ekki með neina sérstaka græjutryggingu, en ég hef lagt inn kröfu hjá mínu tryggingafélagi um að fjölskyldutrygging mín bæti þetta að einhverju leiti, veit svosem ekkert hvernig það fer ... yfirleitt finna þeir alltaf eitthvað til að borga ekki ... einsog: nú var þetta rauður bíll? Þeir falla ekki undir skilmálana (þó þeir séu bleikir að aftan). Ég lifi samt í voninni um að þetta finnist í einhverju fíkniefnabælinu, og hef ég sent lögreglunni myndir af öllum hlutunum sem í bílnum var. Þeir reyndar hringdu í mig strax í morgun, þá höfðu þeir fundið eitthvað Club Nokia kort skráð á mig sem hafði líklega verið í hanskahólfi bílsins, en það var í einhverju veski sem þeir höfðu undir höndum, en vildu ekki gefa meira upp, en sögðu mér samt að vera ekkert að gera mér miklar vonir, þó það hefði fundist.

Mynd206.jpg Þannig að ef einhver veit um góðar græjur til sölu fyrir lítinn pening, tala nú ekki um að það séu mínar gömlu, þá myndi ég vilja vita af því. En ég get allavega vottað það að það er ekki gaman að lenda í svona, og leiðinlegast ef þessir aumingjar komast upp með þetta. En Nissi verður ekkert þjóðnýttur þó þetta hafi vissulega verið áfall fyrir hann, nú hefst bara uppbyggingin ... ég held ég skilji núna hvernig þarna Róbert Wesmann líði eftir að hann keypti í Glitni einum degi fyrir kreppu, þetta er örugglega mjög svipað ;)

Vatnsberi: Þú elskar fólk sem kemur frá ólíkum heimum, og samskipti þeirra eru bara tilkomin vegna þín. Haltu boð fyrir nokkra uppáhalds vini þína.

About október 2008

This page contains all entries posted to hrollur.net in október 2008. They are listed from oldest to newest.

september 2008 is the previous archive.

nóvember 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34