... og skilinn eftir í öngum sínum á plani BT-Skeifunnar um helgina!... er fyrirsögnin sem ég hefði viljað sjá á forsíðu fréttablaðsins á mánudag, en í stað þess var bara rætt um einhverja kreppu og endalaust volæði. En það var síðustu helgi sem ég ákvað í sakleysi mínu að skella mér norður í nokkra daga, og fékk til þess bílaleigubíl í skeifunni. Mér fannst það nú ekki tiltökumál að geyma litla gullmolann minn þar rétt á meðan, enda vanur að leggja honum þarna og hef geymt hann þar nokkrusinnum yfir nótt áður. En ekki var aðkoman falleg þegar ég kom aftur í borgina á miðvikudagsmorgun og ætlaði að sækja litla kaggann minn, en þá höfðu óprúttnir aumingjar brotist inní bílinn og hreinsað úr honum allt sem mögulegt væri að koma í verð, og skilið bílinn eftir ó-ökuhæfann. Lásar bílsins höfðu verið þvingaðir upp með stóru skrúfjárni og þannig opnaður. "Öflugt" viper þjófavarnarkerfið hefur ekki þótt stór hindrun fyrir bansetta glæpamennina þar sem þeir opnuðu bara húddið og rifu lúðurinn úr sambandi. Eftiráséð hefði maður helst átt að tengja bara sprengju við það, þá hefði maður allavega náð þessum aumingjum. En þeir tóku geislaspilarann, tvær bassakeilur, magnarann, alla afturhilluna með hátölurum, radarvarann og já, það hefur ekki dugað þeim því þeir tóku rafgeymi bílsins líka. Upphaflega höfðu þeir reynt að taka bílinn, því svissinn er skemmdur eftir að hafa verið þvingaður með skrúfjárni. Það er ekki auðvelt að eiga svona flottan bíl, get ég sagt ykkur :) Hátt í 30 skrifaðir geisladiskar voru teknir líka, það kallar maður reyndar að skjóta sig í fótinn, því þeir sem þekkja mig og minn tónlistarsmekk kannski vita að það er engin gullaldartónlist þar á ferð hehe. En óhugnalegast þykir mér samt að þeir tæmdu hanskahólfið mitt, þar sem ég hef safnað saman allskyns kvittunum, reikningum og fleira í tæp 10 ár. Reyndar veit ég bara ekki hvað það hafði nákvæmlega að geyma.
Björtu hliðarnar eru hinsvegar þær að á meðan þeir tæmdu bílinn, þar á meðal hólf sem geisldiskarnir voru í, tóku þeir ekki eftir varalykli bílsins sem þar var, ásamt fjarstýringu til að slökkva á þjófavarnarkerfinu og DÆLULYKLI! Ég hefði síður viljað borga bensínið undir þá líka, og í öskubakka bílsins var alveg 500 kall í klinki og fjarstýringin sem þarf til að ræsa geislaspilarann... FEIS !! Það er nefnilega engin leið að kveikja á honum án þess að skjóta fyrst með henni, ef straumur hefur verið tekinn af bílnum eða tækið aftengt, þannig hann kemur engum að gagni nema ég fái hann aftur, þetta flöskuðu þeir á aumingjarnir. Ég kom samt kagganum heim í gær, eftir að hafa fengið nýjann rafgeymi í bílinn og náð að liðka upp svissinn aftur. Og það er svosem ekkert að bílnum annað en að það vantar græjurnar til að yfirgnæfa öll hljóðin sem nissi býr til við almennan akstur :) Bílinn var náttúrulega ekkert í kaskó, og ekki með neina sérstaka græjutryggingu, en ég hef lagt inn kröfu hjá mínu tryggingafélagi um að fjölskyldutrygging mín bæti þetta að einhverju leiti, veit svosem ekkert hvernig það fer ... yfirleitt finna þeir alltaf eitthvað til að borga ekki ... einsog: nú var þetta rauður bíll? Þeir falla ekki undir skilmálana (þó þeir séu bleikir að aftan). Ég lifi samt í voninni um að þetta finnist í einhverju fíkniefnabælinu, og hef ég sent lögreglunni myndir af öllum hlutunum sem í bílnum var. Þeir reyndar hringdu í mig strax í morgun, þá höfðu þeir fundið eitthvað Club Nokia kort skráð á mig sem hafði líklega verið í hanskahólfi bílsins, en það var í einhverju veski sem þeir höfðu undir höndum, en vildu ekki gefa meira upp, en sögðu mér samt að vera ekkert að gera mér miklar vonir, þó það hefði fundist.
Þannig að ef einhver veit um góðar græjur til sölu fyrir lítinn pening, tala nú ekki um að það séu mínar gömlu, þá myndi ég vilja vita af því. En ég get allavega vottað það að það er ekki gaman að lenda í svona, og leiðinlegast ef þessir aumingjar komast upp með þetta. En Nissi verður ekkert þjóðnýttur þó þetta hafi vissulega verið áfall fyrir hann, nú hefst bara uppbyggingin ... ég held ég skilji núna hvernig þarna Róbert Wesmann líði eftir að hann keypti í Glitni einum degi fyrir kreppu, þetta er örugglega mjög svipað ;)
Vatnsberi: Þú elskar fólk sem kemur frá ólíkum heimum, og samskipti þeirra eru bara tilkomin vegna þín. Haltu boð fyrir nokkra uppáhalds vini þína.
Comments (12)
það er hver hremmingin sem rekur aðra í þessu þjóðfélagi.
En ég vorkenni samt þjófunum fyrir að hafa stolið diskunum þínum.. greyið þeir.
en það er vonandi að nissi komi sterkari út úr þessu en nokkru sinni fyrr :)
Posted by Birkir | 12. október 2008 kl 14:30
Ég myndi athuga hvort þjófarnir væru nokkuð komnir inná geðdeild.. meikar sense ef þeir hafa hlustað eitthvað á diskana frá þér :)
En djöfull er að heyra þetta! Ekkert heilagt.. skildu þeir varadekkið eftir?
Posted by Rúnar Ágúst | 13. október 2008 kl 18:25
guð ég er bara í sjokki yfir þessu.. greyið nissi það sem einn bíll þarf að þola:) en já þetta er ótrúlega svipað og með hann róbert. heheehe almar það er bara verið að segja þér að þú og nissi eru ekki save í borginni... koma norður..:)
Posted by anny | 13. október 2008 kl 21:56
crazy in da brain...
Posted by thelma | 17. október 2008 kl 18:21
Öss pakk sem gerir sonna, veðja að þetta er hjólhýsapakk, sem má rotna mín vegna :D
Posted by Helga | 18. október 2008 kl 01:30
Úff, þetta er alveg rosalegt að heyra. Fyndið samt að þetta skuli hafa gerst niðrí Skeifu en ekki í gettóinu :)
Er þá ekki bara kominn tími til að græja sig upp með Denver hátölurum, keilum og spilara?
Posted by Siggeir | 18. október 2008 kl 11:03
Æji elsku nissi..
enn er nokkuð hægt að gera svona sögu mikið skemmtilegri enn þetta??
hahaha vældi hérna úr hlátri..reyndi svo heiðalega tilraun til að lesa fyrir bjössa hvað þetta væri fyndið og eina sem að hann heyrði var haa aa bla.. meikaði ekki mikinn sens og honum fannst ekkert fyndið?? omg..
ég sparka í sköfluningin á þessum aumingjum þegar þeir finnast.,
þoli ekki svona pakk..
knús á nissa :)
heh
kv. Jóka
Posted by Jóka | 18. október 2008 kl 19:08
Nissi er enn bitur útaf þessu öllu, og ekkert að gerast, hef hvorki heyrt frá löggu né tryggingum. Þetta er spurning um að vera með denvergræjur, og viðvörun á glugganum að hér séu bara denvergræjur hehe. Varadekkið var skilið eftir já, en þeir hafa kíkkað á það samt, hólfið var opið.
Posted by almar | 19. október 2008 kl 17:19
hvenær verður síðan þetta "boð" fyrir uppáhalds vini þina?? :)
Posted by thelma | 29. október 2008 kl 23:32
æji aumingja nissi það sem hann þarf að þola:) ef það er ekki verið að bjóða í hann þá er bara stolið úr honum, hann hefur þvílíka aðdráttaraflið eins og eigandinn:):) en já ég held hann vilji bara fytja norður til frænku:) ástarkv petra
Posted by petra sif | 30. október 2008 kl 13:03
haha já nissi er langflottastur ;) ... það gæti nú endað með norðurflutningi, ef ruglið hérna á atvinnumarkaðinum heldur áfram :o
Já Thelma, ég þarf að fara halda boðið ;) ... annars styttist nú í litlu jólin okkar og svona :þ
Posted by almar | 1. nóvember 2008 kl 00:55
hvernig væri að blogga oftar en 1x á ári, flott nýja lúkið á síðunni, mí like
Posted by Helga | 2. nóvember 2008 kl 19:05