« október 2008 | Main | desember 2008 »

nóvember 2008 Archives

nóvember 3, 2008

Blue

hrollnet_blue2.gif Sama síðan, sama ruglið en nýtt útlit. Jájá, hrollurinn fór í smá makeover í vikunni, byrjaði með smá fikti sem endaði með þessum ósköpum. Þetta er svosem ekkert nýtt, skipti bara um liti, sama grindin á bakvið. Fannst þurfa svona vetrar-kulda-kreppulit á þetta hjá mér;) ... á eftir að ákveða hvort ég hafi nokkuð farið yfir strikið með að skella íslandskortinu þarna á logoið. Útlitið á því minnti mig nefnilega eitthvað svo á venus ... sem er nú heitasta plánetan í sólkerfinu, kannski viðeigandi að heitasta síðan á internetinu hafi þannig logo -hehe.

Annars er nú lítið að frétta, ég held ég verði atvinnulaus í allavega 5 mánuði í viðbót með þessu áframhaldi. Atvinnuástandið var lélegt í sumar, svo versnaði það, svo varð það mjög vont en núna er það vonlaust. Það er varla að maður nenni að senda umsóknir. Ég var alveg að fara hreppa þessa fínu vinnu hjá ónefndu fyrirtæki, fór í viðtal og strax 2 dögum seinna var ég kallaður inn aftur og fékk að skoða allt og leist bara vel á. Svo sögðust þau ætla hafa samband við mig og hringdu 3 dögum seinna, en þá var komið stopp á ráðningar hjá þeim, ég get fengið vinnuna... ef ég vill byrja í janúar... miðað við að ástandið hafi skánað þá. Ég veit ekki hvort ég held þetta út þangað til, það eru að vísu bara 2 mánuðir í janúar, en verður ástandið skárra þá? Annars er maður eiginlega búinn að gleyma hvernig er að vinna, veit allavega að ég get ekki séð af 9 klukkutímum af sólarhringnum í eitthvað svoleiðis rugl, nóg annað að gera:)

Stór galli við atvinnuleysið er að hafa ekki möguleika á að taka þátt í singing bee, ha! Ég meina afhverju ekki? Ég væri "so there" ;) ... heyri Jónsa alveg fyrir mér kynna þáttinn: "í kvöld keppir dominos við atvinnulausa!!!!" Jájá, svo finnst mér alveg vanta svona starfsmannafélag hjá atvinnulausum, það eru engin bjórkvöld eða neitt svoleiðis, ekkert jólaglögg :(
Þetta er kannski eitthvað sem ég tek að mér bara, hringi í jó-sig (Jóhönnu Sigurðardóttur) á morgun og ber þetta undir hana, hún verður þokkalega til í þetta, enda svört.

Nissi er enn ekki með neinar græjur, þó svo að uppáhaldssystir mín hafi sent mér þennan fína geislaspilara til að setja í hann, ég hef bara ekki haft tíma (hef ekki nennt) að setja hann í, enda kalt úti og svona, dimmt líka. Svo verður honum bara stolið ef ég set hann í. Ég hef ekki enn fengið svar frá mínu tryggingarfélagi heldur hvort þeir bæti eitthvað, þeir hljóta koma sér undan þessu, en kemur í ljós.

En í þessu atvinnuleysi og kreppu hefur maður neyðst til að djamma bara aðrahverja helgi, sem er mjög leiðinlegt, gott samt að síðasta helgi var djammlaus, sem þýðir að næsta verður góð:) Svo er það spurning hvort maður ætti að skella sér norður í viku kringum miðjan, bara svona til að fá einhvarja hreyfingu, er kominn með pullufar á síðuna eftir sófann minn, held ég eyði of miklum tíma þar. Mikil pæling.

Vatnsberi: Þú býrð yfir krafti sem getur orðið öðrum hvatning til framkvæmda. Rangt! Þú munt fá heilmikið út úr því sem þér finnst vanalega þrautleiðilegt.

...sæææll, hvað þýðir þetta?? "Býrð yfir miklum krafti"...svo bara EEERRHHH!! WRONG!!

nóvember 18, 2008

Neytendahornið

kfc.gif Dr.Hrollur hlýtur að geta verið með svona neytendahorn einsog Dr.Gunni. En það sem sló sálu mína utanundir um daginn var auglýsing frá kfc, uppáhalds veitingastaðnum mínum. "0 gr transfita!" Ég hef ekki þorað að fá mér skamt hjá þeim síðan ég sá þetta, vill frekar leifa góða bragðinu að lifa í minningunni en að skemma það með transfituleysi. Ég viðurkenni það að ég veit svosem ekkert hvað hún gerir, annað en að setjast inní kransæðar og stýfla, en eitthvað hlýtir að vera gott við hana, mér dettur í hug einsog sykur í gosi ... og þá er kannski transfitulaus kfc einsog diet kók :o Það náttúrulega gengur ekki, það ætti allavega að vera þá hægt að fá transfitu með í lítilli dollu, svona einsog kokteilsósu, og kannski sprautu með, ef maðu skyldi vilja sprauta henni inní kjúllann ;) Og hvað er svo málið með kartöflumúsina og hrísgrjónin! Ef maður ætlar að vera í hollustunni, þá fer maður bara á grænan kost eða eitthvað, ekki skemma kfc :( Ég ætlaði ekkert að væla yfir verðinu á honum, en nú kostar skammtuirnn 949 krónur og fer hækkandi, fyrir þann pening getur maður fengið kíló af kjúklingabitum, 2 lítra af pepsí, 1 kg af frönskum og stóra dollu af hrásallati í bónus, sem endist í matinn örugglega 4x. Þannig að já, kannski mætti aðeins slá af verðinu hjá þeim, þarna í transfitulausa, kartöflumúsa og verðbólgukvetjandi kjúklingabitastaðnum.

red_bull.gifÖnnur gleðitíðindi, þó ekki fyrir hjartað, þá sá ég í einni af mörgum ferðum mínum í bónus, að þeir eru loks farnir að selja Red Bull! Össss! Það er nú besta blandið í bænum og veitir áfenginu hið fullkomna bragð, hressir, bætir, kætir og sprækir. Smá hjartsláttartruflanir hafa aldrei skaðað neinn, er það nokkuð?? Ég sá nú ekki verðið, ætli dósin sé ekki á 200 kall eða svo, vonandi ekki mikið meira. Sá líka euroshopper orkudrykk, hann kostaði 99 krónur, og ef ég þekki vini mína hjá euroshopper rétt, þá er þetta örugglega bara díselolía bragðbætt með ísvara :) En svo er það líka annað, einsog með redbull, um leið og hann fæst hér í bónus þá fer mesti glansinn af honum og verður ekki eins spennandi einsog þegar hann fékst bara í útlöndum, líkt og m&m&m-ið forðum daga.

Jæja, núna er klukkan að ganga 10 að morgni til!
Já, að morgni til. Ég er í viðsnúningsprógrammi á líkamsklukkunni, en hún var farin að hallast aðeins meira að sofa út langt frammeftir degi, og sofna svo ekki á næturna fyrr en langt undir morgun. Var farið að leiðast það og greip því gæsina þegar ég fann fyrir þreytu í gær klukkan 10 að fara bara að sofa! Vaknaði líka klukkan 6 í morgun og er búinn að vera vakandi síðan hehe .. en samt drulluþreyttur, en má ekki leggja mig, því þá skemmist programmið, það er bara í háttin klukkan 1 í kvöld/nótt. Maður þarf að hafa sólarhringinn réttann áður en ég byrja á vefsíðugerðarnámskeiðinu sem ég er að fara á í næstu viku, það verður örugglega ekki leiðinlegt, og hrollurinn á eftir að hafa gott af því, en þetta eru alveg 60 tímar, versna varla við það ... þannig það eru spennandi tímar framundan á hrollinum... ;)

ani_counter.gifÁn þess að hafa sótt námskeiðið smíðaði ég þetta script sem sést hér til hliðar, en þetta er beintenging við seðlabankann og sýnir raungengi krónunnar, einsog það er akkúrat núna! :)


Vatnsberi: Þér tekst vel upp við að finna eitthvað aðdáunarvert í fari fólksins í kringum þig. Haltu öllum verkefnum aðskildum og raðaðu þeim upp í forgangsröð.

About nóvember 2008

This page contains all entries posted to hrollur.net in nóvember 2008. They are listed from oldest to newest.

október 2008 is the previous archive.

desember 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34