« Nissi svívirtur ... | Main | Neytendahornið »

Blue

hrollnet_blue2.gif Sama síðan, sama ruglið en nýtt útlit. Jájá, hrollurinn fór í smá makeover í vikunni, byrjaði með smá fikti sem endaði með þessum ósköpum. Þetta er svosem ekkert nýtt, skipti bara um liti, sama grindin á bakvið. Fannst þurfa svona vetrar-kulda-kreppulit á þetta hjá mér;) ... á eftir að ákveða hvort ég hafi nokkuð farið yfir strikið með að skella íslandskortinu þarna á logoið. Útlitið á því minnti mig nefnilega eitthvað svo á venus ... sem er nú heitasta plánetan í sólkerfinu, kannski viðeigandi að heitasta síðan á internetinu hafi þannig logo -hehe.

Annars er nú lítið að frétta, ég held ég verði atvinnulaus í allavega 5 mánuði í viðbót með þessu áframhaldi. Atvinnuástandið var lélegt í sumar, svo versnaði það, svo varð það mjög vont en núna er það vonlaust. Það er varla að maður nenni að senda umsóknir. Ég var alveg að fara hreppa þessa fínu vinnu hjá ónefndu fyrirtæki, fór í viðtal og strax 2 dögum seinna var ég kallaður inn aftur og fékk að skoða allt og leist bara vel á. Svo sögðust þau ætla hafa samband við mig og hringdu 3 dögum seinna, en þá var komið stopp á ráðningar hjá þeim, ég get fengið vinnuna... ef ég vill byrja í janúar... miðað við að ástandið hafi skánað þá. Ég veit ekki hvort ég held þetta út þangað til, það eru að vísu bara 2 mánuðir í janúar, en verður ástandið skárra þá? Annars er maður eiginlega búinn að gleyma hvernig er að vinna, veit allavega að ég get ekki séð af 9 klukkutímum af sólarhringnum í eitthvað svoleiðis rugl, nóg annað að gera:)

Stór galli við atvinnuleysið er að hafa ekki möguleika á að taka þátt í singing bee, ha! Ég meina afhverju ekki? Ég væri "so there" ;) ... heyri Jónsa alveg fyrir mér kynna þáttinn: "í kvöld keppir dominos við atvinnulausa!!!!" Jájá, svo finnst mér alveg vanta svona starfsmannafélag hjá atvinnulausum, það eru engin bjórkvöld eða neitt svoleiðis, ekkert jólaglögg :(
Þetta er kannski eitthvað sem ég tek að mér bara, hringi í jó-sig (Jóhönnu Sigurðardóttur) á morgun og ber þetta undir hana, hún verður þokkalega til í þetta, enda svört.

Nissi er enn ekki með neinar græjur, þó svo að uppáhaldssystir mín hafi sent mér þennan fína geislaspilara til að setja í hann, ég hef bara ekki haft tíma (hef ekki nennt) að setja hann í, enda kalt úti og svona, dimmt líka. Svo verður honum bara stolið ef ég set hann í. Ég hef ekki enn fengið svar frá mínu tryggingarfélagi heldur hvort þeir bæti eitthvað, þeir hljóta koma sér undan þessu, en kemur í ljós.

En í þessu atvinnuleysi og kreppu hefur maður neyðst til að djamma bara aðrahverja helgi, sem er mjög leiðinlegt, gott samt að síðasta helgi var djammlaus, sem þýðir að næsta verður góð:) Svo er það spurning hvort maður ætti að skella sér norður í viku kringum miðjan, bara svona til að fá einhvarja hreyfingu, er kominn með pullufar á síðuna eftir sófann minn, held ég eyði of miklum tíma þar. Mikil pæling.

Vatnsberi: Þú býrð yfir krafti sem getur orðið öðrum hvatning til framkvæmda. Rangt! Þú munt fá heilmikið út úr því sem þér finnst vanalega þrautleiðilegt.

...sæææll, hvað þýðir þetta?? "Býrð yfir miklum krafti"...svo bara EEERRHHH!! WRONG!!

Comments (6)


thelma:

iii ég hélt að ég væri á röngum slóðum! svo var ekki, góð breyting félagi! ;)

Leitt að heyra með atvinnuleysið 4 life, en við getum svosem bara búið til club!! saman...

niggah plis ekki setja neitt í nizza, brennt barn forðast eldinn..


Ernir:

Það er svona Almar express look á þessu.


:

Góður!
U getur búið þér til vinnu við snjómokstur þegar snjórinn kemur-labbar bara breiðholtið og bankar uppá í einbýlishúsunnum hjá ríka fólkinu-get ekki ímyndað mér að þau nenni að moka sjálf tröppurnar....fínn svartur péningur-mar reddar sér í kreppunni :D :D
eða út að ganga með kanínuna hjá mér-ekki veitir henni af hreyfingunni-hún er hlaupin í svo mikið spik, greyið, er orðin hrædd um að heimilisfaðirinn sé farinn að fita hana viljandi á bak við mig til að komast hjá Því að þurfað kaupa jólasteikina ;(


Rosie Rose:

jam, og ég skrifaði þetta síðasta :D
greinilegt að ég kann ekki að kommenta hja öðrum :P


anný:

glæsilegt nýja lukkið:) en finnst nú ekki vera nógu gott hljóðið í þér gamli minn.... ertu ekkert að fara að koma bara heim??? og p.s hvernig er með það? þú hafðir tíma í þetta nýja útlit en ekki til að setja gamlar og góðar myndir inn?? það væri nú gaman að skoða þær núna og rifja það upp að maður átti sér líf einu sinni hehehe knús anný


almar:

Hehe takk, ég held að snákaskinnið í hliðunum sé að gera góða lukku ;)
Ég varð að fara skella þessum myndum inn, set það á planið, ætli maður hafi ekki einhvern tíma ;) .. og á planinu er ekkert nema norðurflutningur, nema ég skyldi finna einhverja vinnu fyrir 1. Des, líkurnar á því eru hinsvegar ekki spes í dag.

Mér líst samt vel á snjómoksturshugmyndina hjá Rósu, það vantar bara snjóinn ... og ekki vitlaust að hafa kanínu í jólamatinn hehe, ekki víst að Sara fíli það samt :)

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on nóvember 3, 2008 2:03 FH.

The previous post in this blog was Nissi svívirtur ....

The next post in this blog is Neytendahornið.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34