« Blue | Main | Jólahrollvekjan »

Neytendahornið

kfc.gif Dr.Hrollur hlýtur að geta verið með svona neytendahorn einsog Dr.Gunni. En það sem sló sálu mína utanundir um daginn var auglýsing frá kfc, uppáhalds veitingastaðnum mínum. "0 gr transfita!" Ég hef ekki þorað að fá mér skamt hjá þeim síðan ég sá þetta, vill frekar leifa góða bragðinu að lifa í minningunni en að skemma það með transfituleysi. Ég viðurkenni það að ég veit svosem ekkert hvað hún gerir, annað en að setjast inní kransæðar og stýfla, en eitthvað hlýtir að vera gott við hana, mér dettur í hug einsog sykur í gosi ... og þá er kannski transfitulaus kfc einsog diet kók :o Það náttúrulega gengur ekki, það ætti allavega að vera þá hægt að fá transfitu með í lítilli dollu, svona einsog kokteilsósu, og kannski sprautu með, ef maðu skyldi vilja sprauta henni inní kjúllann ;) Og hvað er svo málið með kartöflumúsina og hrísgrjónin! Ef maður ætlar að vera í hollustunni, þá fer maður bara á grænan kost eða eitthvað, ekki skemma kfc :( Ég ætlaði ekkert að væla yfir verðinu á honum, en nú kostar skammtuirnn 949 krónur og fer hækkandi, fyrir þann pening getur maður fengið kíló af kjúklingabitum, 2 lítra af pepsí, 1 kg af frönskum og stóra dollu af hrásallati í bónus, sem endist í matinn örugglega 4x. Þannig að já, kannski mætti aðeins slá af verðinu hjá þeim, þarna í transfitulausa, kartöflumúsa og verðbólgukvetjandi kjúklingabitastaðnum.

red_bull.gifÖnnur gleðitíðindi, þó ekki fyrir hjartað, þá sá ég í einni af mörgum ferðum mínum í bónus, að þeir eru loks farnir að selja Red Bull! Össss! Það er nú besta blandið í bænum og veitir áfenginu hið fullkomna bragð, hressir, bætir, kætir og sprækir. Smá hjartsláttartruflanir hafa aldrei skaðað neinn, er það nokkuð?? Ég sá nú ekki verðið, ætli dósin sé ekki á 200 kall eða svo, vonandi ekki mikið meira. Sá líka euroshopper orkudrykk, hann kostaði 99 krónur, og ef ég þekki vini mína hjá euroshopper rétt, þá er þetta örugglega bara díselolía bragðbætt með ísvara :) En svo er það líka annað, einsog með redbull, um leið og hann fæst hér í bónus þá fer mesti glansinn af honum og verður ekki eins spennandi einsog þegar hann fékst bara í útlöndum, líkt og m&m&m-ið forðum daga.

Jæja, núna er klukkan að ganga 10 að morgni til!
Já, að morgni til. Ég er í viðsnúningsprógrammi á líkamsklukkunni, en hún var farin að hallast aðeins meira að sofa út langt frammeftir degi, og sofna svo ekki á næturna fyrr en langt undir morgun. Var farið að leiðast það og greip því gæsina þegar ég fann fyrir þreytu í gær klukkan 10 að fara bara að sofa! Vaknaði líka klukkan 6 í morgun og er búinn að vera vakandi síðan hehe .. en samt drulluþreyttur, en má ekki leggja mig, því þá skemmist programmið, það er bara í háttin klukkan 1 í kvöld/nótt. Maður þarf að hafa sólarhringinn réttann áður en ég byrja á vefsíðugerðarnámskeiðinu sem ég er að fara á í næstu viku, það verður örugglega ekki leiðinlegt, og hrollurinn á eftir að hafa gott af því, en þetta eru alveg 60 tímar, versna varla við það ... þannig það eru spennandi tímar framundan á hrollinum... ;)

ani_counter.gifÁn þess að hafa sótt námskeiðið smíðaði ég þetta script sem sést hér til hliðar, en þetta er beintenging við seðlabankann og sýnir raungengi krónunnar, einsog það er akkúrat núna! :)


Vatnsberi: Þér tekst vel upp við að finna eitthvað aðdáunarvert í fari fólksins í kringum þig. Haltu öllum verkefnum aðskildum og raðaðu þeim upp í forgangsröð.

Comments (15)


BeggaRacer:

Haha.. Almar þú drepur mig :)
KFC er vibbi með eða án transfitu. Væri gaman að fara bráðum að djamma og djúsa með góðu fólki :) Gangi þér vel í viðsnúningsprógraminu og farðu vel með Nissa litla :)


Rúnar Ágúst:

Begga, það er stranglega bannað að tala illa um KFC!!!!

Begga verslar einmitt bara skyndibitann sinn á grænum kosti :D

En já, ég styð fyllerí með góðu fólki.. og beggu :)


almar:

hehe snilld ... Já, það er orðið of langt síðan gott fólk kom saman og djammaði ;)


Helga:

ruuuugli johns. En já það vantar eitt stk. tjútt með góðu fólki. En veistu kfc án transfitu enginn munur, fékk sonna vibba mat um daginn, smakkast eins so no worry getur verslað þér KFC vibba!!


Thelma:

KFC er best!
Með og án transfitu!

En atvinnulausi auminginn hefur ei efni á svoleiðis hátíðarskyndibita (þeas ég)


Siggeir:

Transfita gerir ekkert nema að drepa þig hægt og rólega, svo að ég fagna því að minn uppáhalds skyndibiti sé loksins laus við hana. Hef reyndar ekki smakkað eftir breytinguna en ég efa að það sé einhver munur.


thelma:

minn kominn í jólabúning !!


Birkir:

þetta er Almar eins og í gamla daga, það er orðið svo mikið af drasli á síðunni að maður fær illt í augun.
Svona á þetta að vera, allt blikkandi og skemmtilegt :)


anný:

jeiiii jóladraslið komið.. núna kemur maður hingað ef maður þarf að vita hvað er langt til jóla í mín:)


almar:

haha, þetta er skrautið síðan í fyrra, það var bara ofaní kassa bakvið örgjörvann. Þemað á nátturulega að vera "bit over the top" og minnir jafnvel á "blikk"gluggann sem Birkir skreytti í breiðholtinu forðum daga haha;) Tölvan mín ræður samt varla við þessa forsíðu, og byrjar að spila jólalagið falskt :o
Og anný, þetta er síðan sem maður fer á til að sjá hvað er langt til jóla í sekuntum! ;)
Ef kennarinn minn á heimasíðunámskeiðinu sæi þetta myndi hann örugglega senda mig heim bara ... með F. - og nei F þýðir víst ekki Fabulous! einsog ég hélt alltaf þegar ég fékk svoleiðis í skóla :)


Birkir:

hvenar kemur þú norður í jólafrí til mömmu?
Þér veitir nú sjálfsagt ekkert að góðu jólafríi eftir allt atvinnuleysið :)


BeggaRacer:

Hvenær ætlar eiginlega allt þetta góða fólk og ég að koma saman og drekka bjór?


almar:

hehe já það er satt, veitir ekki af smá jólafríi ;) ... ég var að hugsa um að renna í kringum næstu helgi, 18-21, ekki ákveðinn hvenar.

Ég var einmitt að pæla í því líka Berglind, það virðast allir vera hættir að skemmta sér :( ... en ég er alltaf til ;)


Helga:

Alltaf til hmmm stemmir ekki, þú ætlaðir að taka reyni með þér næstu helgi, leim


Birkir:

er þetta komið í það að vera eitt blogg í mánuði aftur?

Post a comment

ATH: Það getur tekið nokkrar sec að
skrá comment eftir að það er ýtt á [post]

About

This page contains a single entry from the blog posted on nóvember 18, 2008 9:19 FH.

The previous post in this blog was Blue.

The next post in this blog is Jólahrollvekjan.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34