Jólahrollvekjan
Eru ekki jólin að fara detta í hús með allri sinni gleði ;) Mig hlakkar nú alltaf mest til tímans milli jóla og nýárs, því þá er pakkavesenið allt að baki og aflsöppun og djamm tekið við. Ekki það að ég sé neitt úrvinda á því að vera í endalausu sumarfríi, en það verður líka gaman að geta kallað það jólafrí núna. Plönin eru alltaf að breytast, á dagskránni núna er Reykjavíkurdjamm 19.des (því ég hef nú ekki djammað hér í 5 vikur í röð!!) ...já, það er satt!, verð að ná einu góðu áður en ég fer "heim". Og daginn eftir, eða 20.des ætlaði ég mér að bruna norður og jafnvel komast í sjallann á sálarball. Veit þetta er nú fullmikil bjartsýni hjá mér að halda ég geti þetta allt sömu helgina, en eftir 5 vikna pásu heldég að það verði ekkert stórmál. Ég er að reyna redda mér fari eða bílaleigubíl til þess að þurfa ekki að splæsa í umfelgun og bensín á nissa, hann er enn á sömmerunum ;) því maður veður ekkert í seðlum svona þegar maður gerir ekki neitt. Svo hafði ég hugsað mér að skella mér suður strax eftir áramót, til þess þá að flytja út úr íbúðinni minni og koma dótinu mínu fyrir í geymslu. Þá skelli ég að sjálfsögðu vetrartuðrunum undir nissa og fyllann af bensíni, en janúar verður nú ódýrari mánuður heldur en desember, og ætti það nú að reddast. Það hefði samt verið skemmtilegast að vera búinn að þessu, en held þetta sé eina leiðin. Mér finnst samt ótrúlega leiðinlegt að flytja og þrífa, og ekki langt síðan ég gerði það síðast, en þetta verður maður víst að gera.
En munar allavega um að borga ekki leiguna í Reykjavík, heldur betur. Þannig að maður verður orðinn Akureyringur aftur í byrjun janúar ef ekkert breytist, einsgott að það verði stuð :)
Það væri gaman að fá að heyra af því ef einhver veit um geymslu á góðu verði fyrir sófa, rúm, eldhúsborð og stóla, tölvuborð og sófaborð, því sama hvað ég reyni þá kemst þetta ekki í nissa, eða í herbergið sem ég verð í fyrir norðan :)
Vatnsberi: Hver kunningi sem þú eignast reynir á félagsfærnina.
Tilfinningar þínar láta þér líða vel og hugsa um lífið á jákvæðan hátt.