« desember 2008 | Main | febrúar 2009 »

janúar 2009 Archives

janúar 8, 2009

Janúarpistillinn

hrollur_off.gif Hrollurinn byrjaði nýja árið í netleysi, ég veit ekki hvort það boði mikla farsæld fyrir síðuna á árinu sem er að hefjast. En 1. Janúar kl c.a 8 um morguninn hætti serverinn hjá mér að ná sambandi við umheiminn og datt þar með hrollurinn út líka. Ég var staddur fyrir norðan og ætlaði að njóta þess að "stríma" til mín sjónvarpsefni til að gera þynnkuna bærilegri, en þess í stað fékk ég að hafa áhyggjur af þessu netleysi, hvað hefði eiginlega gerst? Væri rafmagnslaust og allt að skemmast í ísskápnum, hefði verið brotist inn og öllu rústað eða var netlöggan búin að loka tengingunni minni vegna mislöglegs niðurhals. Þetta pældi ég mikið í. Ekki var hægt að hringja í þjónustuverið, það var bara opið frá 1 - 4, ég uppgvötaði þetta um 5 leitið. En föstudagskvöldið 2. jan þegar ég var mættur suður, sá ég að það var svosem í lagi með allt, allar þessar kenningar mínar voru rangar, routerinn náði bara ekki sambandi við netþjónustuna, en það var samt adsl merki á línunni. Ég var búinn að ákveða að lykilorðið mitt hafði dottið út 1. jan, því það var svosem ekkert bilað. Og auðvitað var ekki hægt að fá það lagað, þar sem það vinna engir tæknimenn um kvöldin og um helgar hjá netveitunni minni og þurfti ég því að þjást í netleysi allt kvöldið :) ... laugardaginn fór ég og sótti nýjann router til að komast þá allavega á netið, þangað til þetta lykilorð yrði lagað á mánudaginn. Gallinn við að vera með þennan lánsrouter var að síðan mín virkar ekkert í honum og varla hægt að vera á torrent, þar sem þetta er allt harðlæst hjá þeim og ekki hægt að opna fyrir portin, nema hringja, og nennti því ekki fyrir einn dag. Svo loks kemur mánudagur, og ég hringi frekar pirraður í netveituna, tæknimennirnir þar fullvissa mig um að lykilorðið sé í lagi, línan sé í lagi og ef það sé eitthvað að þá er það í stillingum hjá mér eða bilaður router ... og ég var bara "nei, það er ekki séns, þetta er pottþétt hjá ykkur". Það var boðist til þess að stofna mig aftur í kerfinu og svona til að friða mig, meðan átti ég bara að bíða rólegur. Á meðan ég beið datt mér í hug að velja þarna "restore factory settings" og setja inn stillingarnar aftur, og var svo pottþéttur á því að það myndi ekki virka, langaði bara rétt að prófa ... og viti menn, uhh, þetta var bilað mín megin :o Þá hafði routerinn farið yfirum, líklegast útaf of mörgum torrent tengingum, og lagaðist ekkert við að vera tekinn úr sambandi eða endurræstur. Þannig að ég mátti hringja með skottið á milli lappanna og segja "uhh, þetta var víst hérna meginn, þannig það þarf ekki að stofna nýtt lykilorð fyrir mig"

Meira vesen hefur líka gerst fyrir mig á þessu ári, sem er nú bara rétt vikugamalt. En ég fór með Nissa litla á dekkjaverkstæði í dag til að láta setja undir hann nagladekkin, ekki seinna að vænna því það er nú alveg að koma vetur! Fann dekkin mín og fanst þau bara í fínu ástandi, enda eiginlega aldrei undir bílnum :) Fór svo með þau og lét skipta. Á heimleiðinni datt mér í hug að kíkja í Hagkaup og fá mér eitthvað gott í kvöldmat, en ég var varla kominn kílómeter frá dekkjaverkstæðinu (á höfðanum) þegar það springur eitt dekkið á bílnum!! Og hvar er ég þá?? Jú, þá er ég á miðri Miklubrautinni klukkan 5!! Einmitt þegar umferðin er í hámarki :o Mér fannst vera alltof langt í næsta afleggjara hefði ég viljað komast af brautinni þannig ég kom mér bara í skjól á einni aðreininni og setti hazzardljósin á. Þar hef ég sjaldan verið jafn skelkaður á æfinni. Ég var semsagt á svipupum stað og Hagkaup, þar sem Miklabrautin er alveg 7 akreinar með þessari aðrein, og 80 eða 90 km hámarkshraða (allir á 100), rigning, dimmt og mikil umferð. Það var einsog bílarnir föttuðu ekki að ég var stopp, þó ég væri þarna í kantinum með blikkljósin á. Keyrðu alveg þvílíkt hratt alltaf upp að mér og sveigðu frá á síðustu stundu, sumir stoppuðu. Svo sá ég alltaf í speglunum einn og einn sem var að nálgast á þvílíka hraðanum og greinilega vissi ekki að ég væri stopp og sveigðu frá á síðustu stundu, sem betur fer var þá laust pláss fyrir þá á næstu akrein við hliðina, annars hefði þetta endað illa.. Ég sá fljótt að þetta var kannski ekki alveg að virka og keyrði einhverja 200 metra á sprungna dekkinu til að komast í strætóskotið, sem er þarna bakvið Hagkaup, þar allavega var ég ekki í þessari brjáluðu umferð ... eða þangað til brjáluðu stætóarnir byrjuðu að koma! Þeir eru snar! En þarna hringdi ég einmitt í dekkjaverkstæðið og sagði þeim að ég hefði komist 1 km á dekkjunum og hvað væri í boði fyrir menn sem lenda í svoleiðis. Þeir buðust til að senda mann með loft til að prófa pumpa í dekkið svo ég kæmist til baka, og var það gert. Nema hvað að dekkið var alveg flatt og greinilega orðið eitthvað skakt á felgunni þannig þetta var vonlaust. tire.gif Setti hann því varadekkið mitt bara undir og sagði mér að koma aftur á verkstæðið. Þeir eru ekkert rosalega skarpir þar, því ég fór bara á biðstofuna á meðan þetta yrði lagað, en þá kom einn og bað mig að sjá dekkið, því það væri ekkert að því, en það var varadekkið, sem þeir voru byrjaðir að affelga, það er á ljótri stálfelgu og ekkert líkt hinum dekkjunum... og SUMARDEKK! En mitt dekk var víst með rifnum kanti, sem ég veit nú ekki hvernig gerist, en líklega hefur það verið þeim að kenna, þar sem mér var gefið eitthvað notað sólað nagladekk, sem var líka sett frítt undir bílinn. Gamla dekkið var örugglega mikið betra, en þetta var svo loðið alltsaman, fékk aldrei að skoða það gamla einusinni. En þetta ætti vonandi að koma mér norður í hálkunni sem verður líklega í næstu viku, það vantar allavega ekki frostið í kortunum þá. Akureyri -23° brrrrrr.

Ég býst við að keyra á fimmtudeginum norður, með fullan bíl að dóti, annað fer svo í geymslu. Vona að það hafist alltsaman, og að ég finni einhvern til að bera með mér þungu hlutina, sjónvarpið útí bíl og svona, það hlýtur eiginlega að vera. Annars kemur það örugglega allt í febrúarpistlinum, hvernig flutningarnir gengu, komst nissi alla leið norður og hvernig lífið sé á Akueryri ;)

Vatnsberi: Þú getur lært heilmargt um sjálfa/n þig af samræðum þínum við aðra í dag. Leyfðu þeim að flæða, þótt ekki sé það allt jafnskemmtilegt, sem þú upplifir.

janúar 20, 2009

Akureyringur

ak_pan.JPG
Þá er maður mættur í sveitina sína gömlu. Flutningar gengu vel og nissi fór bara létt með þetta norður, þó það væru nokkurhundruð kíló af drasli í bílnum. Dótið er reyndar enn í bílnum síðan á föstudag, en hver pælir í því svosem :) Mér fannst ógeðslega erfitt að burðast með alla þessa kassa, stóla og borð, sjónvörp og græjur, og er fyrst núna að losna við strengi og bakverki síðan í flutningunum. Maður er búinn að safna að sér alltof miklu drasli, það mætti henda svona 70% af dótinu og maður myndi ekki sakna þess neitt. Ég fyllti heila geymslu í Reykjavík, ætli hún hafi ekki verið svona 6 fermetrar, og það var alveg uppí loft! Nissa troðfyllti ég líka, það þétt að ég var farinn að troða skóm í göt sem ég sá á staflanum, því annars hefði skórnir mínir ekki komist með. Og þegar ég var lagður af stað fattaði ég mér til mikillar skelfingar á einu hringtorginu að ég sá ekki út um hægri hliðina, hvorki úr glugga né spegli. Það var ekki alveg að virka þannig ég bætti einni dýnu í geymsluna fyrir sunnan, svo ég sæi nú út á leiðinni heim. En ferðin sjálf gekk mjög vel, fyrir utan þoku sem var svona 30% af allri leiðinni, mjög þykk. Smá vesen á nissa reyndar, en eftir innbrotið þá er rafmagnskerfið í smá rugli, háu ljósin virkuðu ekki alveg sem skyldi, en tókst að fá þau til að virka á leiðinni, þarf eitthvað að kíkja á þetta greinilega.
Hrollinum kom ég í loftið í gær, setti serverinn niður í bílskur bara, með þráðlausu korti, það er ekki að virka neitt rosalega vel, bæði lélegt samband og þráðlausa kortið seinvirkt, en þetta dugar alveg þangað til ég flyt á næsta stað. Er semsagt hjá mömmu núna, en flyt í Bjarkarlundinn til systur minnar og kallsins hennar einhverntímann í næstu viku. Þar stefni ég á að vera nett blanda af Arthur Spooner og Ted Mosby, en þeir sem hafa séð How I met your mother og King of Queens ættu að þekkja þá ... held ég verði meiri Arthur samt hehe. Það er hundur á heimilinu, þannig það ætti að vera hægt að fá svona hundalabbara fyrir okkur báða ;)
Það er strax búið að testa djammið á Ak. Fór í þetta fína partý á lau sem var helvíti gaman, skemmti mér að vísu ekki einsvel í bænum, þar sem ég vill alltaf bara fara í sjallann og leiðist yfirleitt ef ég fer á pöbbana.
Svo fer þetta bara vera spurning um að finna sér einhverja vinnu hérna í sveitinni, ég er ekkert rosalega vongóður, en maður reynir allavega. Þó það sé vissulega ekki hvatning til þess að hækka atvinnuleysisbæturnar svona.

About janúar 2009

This page contains all entries posted to hrollur.net in janúar 2009. They are listed from oldest to newest.

desember 2008 is the previous archive.

febrúar 2009 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.34