Þá er maður mættur í sveitina sína gömlu. Flutningar gengu vel og nissi fór bara létt með þetta norður, þó það væru nokkurhundruð kíló af drasli í bílnum. Dótið er reyndar enn í bílnum síðan á föstudag, en hver pælir í því svosem :) Mér fannst ógeðslega erfitt að burðast með alla þessa kassa, stóla og borð, sjónvörp og græjur, og er fyrst núna að losna við strengi og bakverki síðan í flutningunum. Maður er búinn að safna að sér alltof miklu drasli, það mætti henda svona 70% af dótinu og maður myndi ekki sakna þess neitt. Ég fyllti heila geymslu í Reykjavík, ætli hún hafi ekki verið svona 6 fermetrar, og það var alveg uppí loft! Nissa troðfyllti ég líka, það þétt að ég var farinn að troða skóm í göt sem ég sá á staflanum, því annars hefði skórnir mínir ekki komist með. Og þegar ég var lagður af stað fattaði ég mér til mikillar skelfingar á einu hringtorginu að ég sá ekki út um hægri hliðina, hvorki úr glugga né spegli. Það var ekki alveg að virka þannig ég bætti einni dýnu í geymsluna fyrir sunnan, svo ég sæi nú út á leiðinni heim. En ferðin sjálf gekk mjög vel, fyrir utan þoku sem var svona 30% af allri leiðinni, mjög þykk. Smá vesen á nissa reyndar, en eftir innbrotið þá er rafmagnskerfið í smá rugli, háu ljósin virkuðu ekki alveg sem skyldi, en tókst að fá þau til að virka á leiðinni, þarf eitthvað að kíkja á þetta greinilega.
Hrollinum kom ég í loftið í gær, setti serverinn niður í bílskur bara, með þráðlausu korti, það er ekki að virka neitt rosalega vel, bæði lélegt samband og þráðlausa kortið seinvirkt, en þetta dugar alveg þangað til ég flyt á næsta stað. Er semsagt hjá mömmu núna, en flyt í Bjarkarlundinn til systur minnar og kallsins hennar einhverntímann í næstu viku. Þar stefni ég á að vera nett blanda af Arthur Spooner og Ted Mosby, en þeir sem hafa séð How I met your mother og King of Queens ættu að þekkja þá ... held ég verði meiri Arthur samt hehe. Það er hundur á heimilinu, þannig það ætti að vera hægt að fá svona hundalabbara fyrir okkur báða ;)
Það er strax búið að testa djammið á Ak. Fór í þetta fína partý á lau sem var helvíti gaman, skemmti mér að vísu ekki einsvel í bænum, þar sem ég vill alltaf bara fara í sjallann og leiðist yfirleitt ef ég fer á pöbbana.
Svo fer þetta bara vera spurning um að finna sér einhverja vinnu hérna í sveitinni, ég er ekkert rosalega vongóður, en maður reynir allavega. Þó það sé vissulega ekki hvatning til þess að hækka atvinnuleysisbæturnar svona.
Comments (5)
Velkominn aftur á netið :)
Já ég vil heyra meira af þessum djömmum að þau séu ekki nógu góð! Þá vonandi fer maður að fá þig aftur hingað í menninguna :)
Ef þér leiðist vantar mig vettlinga, þú kannski prjónar fyrir mig :)
kossar og vín alla leið
Posted by Thelma | 22. janúar 2009 kl 02:17
öss Netið er ofmetið... nei djók
En já ég held að djömmin í Rvk séu skemmtilegri, færð allavega ekki jafn flott sörpræs teiti einsog frá okkur Thelmu, so sorry.
Hvenær á svo að koma á reykjavíkurtjútt?
Posted by Helga | 22. janúar 2009 kl 13:16
Já, ég byrja á vettlingunum, eiga þeir ekki annars að vera bláir? ;)
Maður saknar nú Reykjavíkurdjammsins, ætli maður kíki ekki suður í mars og apríl.
Posted by almar | 23. janúar 2009 kl 12:02
já segðu, ég sakna reykjavíkurdjammsins og ég bý þar, lélegt dæmi skoooo
Posted by Helga | 30. janúar 2009 kl 02:13
Jú passar bláir! Síðan vantar mig trefil í stíl!! :)
Posted by thelma | 1. febrúar 2009 kl 15:20