hrollarnir báðir fluttir
Ég splæsti í ódýra hýsingu handa hrollinum, því ég er alltaf að flytja og nenni ekki að hafa suðandi netþjón í herberginu hjá mér. Sú hýsing er í London en í gegnum íslenskt fyrirtæki. Mér fannst alveg tilvalið að styrkja vini okkar þarna í Bretlandi ;) ... og vænlegt að hafa hrollinn á netþjónabúi sem er örugglega knúið með kolabrennslu eða kjarnaorku. Þannig að hver músasmellur brennir kannski einum kolamola og styður þannig við "global warming" .. veitir ekki af að fá nokkrar gráður í plús hérna þessa dagana, kannski minna að skafa og svona hehe. Þó svo að þetta séu alveg topp netþjónar, þá er þetta frekar svifaseint finnst mér. Er mikið að pæla í að fá einhverja hýsingu frekar innanlands. Þó það hafi verið helvítis bras að flytja síðuna, eða gagnagrunninn, þá verður það lítið mál svona í annað skiptið og tekur enga stund.
Svo er ég líka fluttur, kominn í B5, eða Bjarkarlund 5. Þar býr systir mín ásamt manninum sínum og hundinum Tuma. Mig hefði aldrei grunað hvað er gaman að svona hundum, hef alltaf bara búið með kisum, þær eru allt örðuvísi. Æðislegt hvað hann tekur alltaf vel á móti manni þegar maður kemur heim og svona.
Ég var líka það heppinn að þau eru með gervihnattadisk, svo ég missi nú ekki af neinu í sjónvarpinu. Annars hefði ég verið vís með að troða disk einhversstaðar á kofann. Var að tengja í kvöld og get loksin tekið gleði mína á ný ;) ... reyndar þurfti ég að strengja kapalinn mjög svo ósmekklega eftir miðjum húsveggnum til að koma honum í herbergið mitt, það er ekkert rosalega flott á nýju húsinu, en kemur í ljós hvort maður taki hann eða reyni að ganga betur frá þessu.
Vinna, það er eitthvað minna. Maður er alltaf bara atvinnulaus, eða að skrifa doctorsritgerð einsog Georg Bjarnfreðarson kallaði það. Mér leiðist það reyndar ekkert, þó myndi ég nú frekar vilja vera í vinnu og eiga meiri pening, þarf að skoða það eitthvað nánar.
Svo eignaðist ég lítinn frænda 2. Febrúar. Bróðir minn var að koma með sitt þriðja barn. Ég hef nú ekki hitt guttann enn þar sem hann fæddist og býr í bandaríkjunum, en mamma er farin út að kíkja á litla kallinn. Ég á von á að sjá hann um páskana, þegar þau koma til landsins.
Vatnsberi: Samskipti við stofnanir eða hið opinbera koma flatt upp á þig á einhvern hátt. Farðu þér hægt í að velja þér trúnaðarvini sérstaklega af hinu kyninu.